Morgunblaðið - 25.04.1987, Page 20

Morgunblaðið - 25.04.1987, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987 Schiphol flugvöllur í Amsterdam er heimavöllur KLM. KLM er eitt af reyndustu flugfélögum heimsins og flýgur til 127 borga í 76 löndum, þar á meðal 17 borga í Afríku. Af þeim má nefna Nairobi, Dar es Salaam, Arusha og Khartoum. Schiphol hefur nú verið kjörinn besti tengivöllur heims, fimmta árið í röð. Eins og flestir farþegar sem fara í gegnum Schiphol gera, getur þú notið góðrar tengiflugþjónustu KLM. Ef þú, til dæmis, ferð frá Keflavík með Arnarflugi á laugardagsmorgni, ertu kominn á Schiphol um hádegi og hefur góðan tíma til að ná í flug KLM kl. 13.50 til Nairobi. Á Schiphol er allt undir einu þaki þannig að það gæti ekki verið þægilegra að skipta um vél. Að auki er á flugvell- inum stærsta og ódýrasta fríhöfn í Evrópu þannig að þú getur gert góð kaup í leiðinni. Næst þegar þú ferð til Afríku, notfærðu þér þá hin þægi- legu tengiflug KLM og kynnstu af eigin raun hvers vegna Schiphol er heimsins vinsælasti tengiflugvöllur. Nánari upplýsingar hjá Arnarflugi í síma 84477 og hjá ferðaskrifstofunum. Aætlun ARNARFLUGS til Amsterdam Brottför Lending Brottför Lending Keflavík Amsterdam Amstcrdam Keflavík Mánudaga 08:00 12:05 12:55 17:05 Þriðjudaga 08:00 12:05 18:00 20:15 Fimmtudaga 08:00 12:05 12:55 17:05 Föstudaga 08:00 12:05 18:00 20:15 Laugardaga 08:00 12:05 18:00 20:15 Traust flugfélag KLM Royal Dutch Airlines Gamlir Verslunar- skólanem- ar hittast áSögu 30. apríl Fimmtudaginn nk., 30. april, er hinn heðfbundni skóladagur Verslunarskólanema. Sá dagur hefur um áratugaskeið verið hátiðisdagur skólans, þvi á árum áður var skólanum ávallt slitið þennan dag og nemendur héldu út i atvinnulífið eða til frekara náms. Á siðari árum hafa skóla- slitin færst á ýmsa daga í byijun maí, en 30. apríl er eftir sem áður hátiðisdagur nemendasam- bands skólans. Að venju gengst nemendasam- bandið fyrir veglegu hófi á Hótel Sögu 30. aprfl og þangað fjölmenna þeir árgangar sem minnast heils eða hálfs tugar afmælis frá braut- skráningardegi. Rósa Matthíasdóttir, nýkjörinn formaður nemendasambandsins, mun stýra hófinu, en nýtur við það fulltingis Kristins Hallssonar óperu- söngvara sem verið hefur formaður sambandsins í fulla þijá áratugi. Aðgöngumiðar að hófinu verða afhentir á skrifstofu Verslunar- mannafélags Reykjavíkur í Húsi verslunarinnar. (Úr fréttatilkynningu) Fyrir- lestur um gossögu Kröflu KRISTJÁN Sæmundsson jarð- fræðingur heldur fyrirlestur á vegum Hins íslenska náttúru- fræðifélags mánudagskvöldið 27. april. í fyrirlestrinum rekur Kristján gossögu eldstöðvakerfisins í Kröflu á síðastliðnum 3000 árum, en með hjálp öskulaga hefur tekist að finna hvaða gígar og hraunskikar eiga saman og tímasetja gosin. Fyrirlesturinn, sem er öllum op- inn, verður í stofu 101 í Odda, hugvísindahúsi Háskóla íslands, og hefst kl. 20.30. OPEli CORSA Þaö er ekki aö ástæðulausu aö OPEL CORSA er nú einn söluhæsti og vinsælasti bíll Evrópu jafnt meðal einstaklinga sem bílaleiga. Þeirvita aö baö má treysta á OPEL CORSA bótt hann vökni, þótt hann snjói, þótt hann frysti. Pú ættir aö slást í hóp þeirra öruggu og vera viss um aö komast á leiðarenda. mmr( Vertu viss! Veldu C0RSA! BiLVANGUR sr= HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 ■©■ GM OPEL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.