Morgunblaðið - 25.04.1987, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 25.04.1987, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987 Níðskrifum bæjarsljór- ans í Hafnarfirði svarað Bæjarstjórinn í Hafnarfirði reynir að fela óstjórn sína með rakalausum árásum á pólitíska andstæðinga Jr' Jóhann G. Bergþórsson „Þrátt fyrir það hefur bæjarstjóri, „fulltrúi hins nýja ábyrga afls“ eins og- hann kýs að lýsa sjálfum sér, ekki getað staðið í skilum með greiðslur á víxlum sem Hafnarfj arðarhöf n hafði samþykkt til Hag- virkis sem greiðslur upp í byggingarkostn- aðinn. Sl. miðvikudag voru tæpar 6 milljónir komnar í vanskil. Sýnir það ljóslega hversu horfir með fjármála- stjórn bæjarins undir stjórn bæjarstjóra, þetta eru þó engan veg- inn einu vanskil bæjar- ins. hefðu unnið frábært starf við bygg- ingu hússins á mettíma frá í janúar, sættu sig ekki við að vera reknir út úr húsinu. Þeir vildu vinna verk- ið og eftirlitsmaður gæti ákveðið einhliða verð fyrir það, næðist ekki samkomulag um verð, sem ekkert hefði á reynt. Til þess að gera bæjarstjóra ljóst hversu vel hefði verið unnið að byggingu hússins var strax eftir páska afhent bréf sem tíundaði þá fresti sem verktaki ætti rétt á vegna verkfalla og aukaverka, en það er til 5. maí nk. Húsið er tilbúið til afhendingar í dag, 24. apríl. Samþykkt endurskoðuð verk- áætlun gerði ráð fyrir 25. apríl. Þrátt fyrir að bæjarstjóra væri kunnugt um þessa afstöðu Hagvirk- is, þvingar hann með röngum upplýsingum fram samþykkt í hafn- arstjóm á tilboðinu, sem Hrafnkell Ásgeirsson hafði gerst málsvari fyrir. Þar með var bæjarstjóri búinn að koma málinu í illleysanlegan hnút með vinnubrögðum sínum. Agreiningur um lausn Rétt er að það komi fram, að innan hafnarstjómar og víðar er ágreiningur um hvemig staðið skuli að því að koma upp aðstöðu fyrir skrifstofur og fleira fyrir fískmark- aðinn. Ég og fleiri hafa viljað koma þessari aðstöðu upp í litlu timbur- húsi, sem sett yrði upp utan við húsið. Hrafnkell Ásgeirsson varafor- maður hafnarstjómar hefur hins vegar viljað byggja sérstakt hús inni í hinu nýja fískmarkaðshúsi yfír þessa starfsemi. Að sjálfsögðu hefur Guðmundur Ámi fylgt skoðunum Hrafnkels í blindni í þessu máli. Því er nú kom- ið sem komið er. í kostnaðinn horfa kratamir aldr- ei, þegar bæjarsjóður borgar. Sem betur fer hefur nú bæjarráð gripið inn í þetta mál og tekið fram fyrir hendumar á bæjarstjóra. Á fundi sínum síðastliðinn miðvikudag sam- þykkti bæjarráð að fela bæjarstjóra að vinna að því, að margumræddri skrifstofuaðstöðu fískmarkaðarins skuli komið upp í húsnæði utan hins nýja húss, en ekki byggt sér- stakt hús inni í fískmarkaðshúsinu. Bæjarstjóri var hins vegar ekkert farinn að gera í málinu, seinast þegar ég vissi, en Hrafnkell var enn að beijast fyrir því innan hafnar- stjómar að nýtt hús yrði byggt inni í fiskmarkaðshúsinu. eftirJóhann G. Bergþórsson Guðmundur Ámi Stefánsson bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Al- þýðuflokksins birtir á sumardaginn fyrsta óvenju rætna grein í Al- þýðublaði Hafnarfjarðar, þar sem hann ræðst á undirritaðan af sínu alkunna offorsi. Það vekur athygli, að þessi árás bæjarstjórans birtist tveimur dögum fyrir kosningar. Segir það að sjálfsögðu sína sögu um tilgang bæjarstjórans. Meginárásarefni Guðmundar Áma á mig em þau, að ég hafi tekið hagsmuni Hagvirkis umfram bæjarhagsmuni. Nefnir hann þar sem dæmi afstöðu mína til ný- gerðra kjarasamninga bæjarins við starfsmenn sína og byggingu Hag- virkis á húsi fyrir fiskmarkað í Hafnarfírði. í báðum tilfellum úir og grúir af rangfærslum hjá bæjarstjóranum og enn víðar er viðamiklum stað- reyndum sleppt og aðrar rangtúlk- aðar. Kemur það engum á óvart sem fylgst hafa með störfum og málflutningi Guðmundar Áma það tæpa ár, sem hann hefur gegnt störfum bæjarstjóra, að málflutn- ingur hans sé með þessum hætti. Fyrir hina sem ekki þekkja til mála- vaxta þykir mér rétt að skýra nánar frá staðreyndum þessara tveggja mála, sem bæjarstjóri reynir að nota til árása á mig nú rétt fyrir kosningar. Skal fyrst vikið að samn- ingum við bæjarstarfsmenn. Bæjarstjórinn skildi ekki samningana Þegar bæjarstjóri kynnti samn- ingana við bæjarstarfsmenn í bæjarstjóm kom meðal annars fram, að hann gat ekki gert grein fyrir hversu miklar kjarahækkanir væru í raun, hvorki í prósentuhækk- unum beint, krónutölum á árs- gmndvelli fyrir bæjarsjóð né hvaða munur var á samningunum og ný- gerðum almennum kjarasamning- um. í umræðum var honum bent á, að áhrif þessara samninga gætu verið víðtæk, gætu haft víxlverkan- ir m.a. vegna uppsagnarákvæða og haft í för með sér mun meiri hækk- anir en sem næmi beinum hækkun- um samningana, vegna þess, að aðkeypt vinna og þjónusta myndi hækka að sama skapi, ef aðrir hlið- stæðir samningar fylgdu á eftir. Við umræður um málið í bæjar- stjóm tók bæjarstjóri af sinni alkunnu háttvísi að dylgja með þau áhrif, sem kjarasamningur bæjarins kynni að hafa á laun starfsmanna Hagvirkis. Eru það orðin þekkt vinnubrögð hjá bæjarstjóranum, að slá þannig út í aðra sálma, til að breiða yfír rökþrot sitt í umræðum. Ég svaraði bæjarstjóranum því að allar víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags hefðu áhrif á kaup- greiðslur annarra fyrirtækja og þár á meðal að sjálfsögðu Hagvirkis líka. Slíkar hækkanir umfram þann ramma, sem samið var um í desem- ber, væru hins vegar aðeins til þess að kynda undir verðbólgunni og eyðileggja langþráðan stöðugleika efnahagslífsins. Guðmundur Ámi er einkennilega gleyminn á að hon- um er falin umsjá bæjarsjóðs, hann skal gæta hagsmuna bæjarins í hvívetna og allra bæjarbúa, líka í samningum við starfsmenn bæjar- ins. Til samningsgerðarinnar leitaði hann engra ráða hjá mönnum er til samningsgerðar þekkja, enda þótt hann augljóslega skildi þá ekki sjálfur. Það vakti athygli, að Guðmundur Ámi kynnti samningana sem „bú- bót“ til starfsmanna, en hirti ekki um áhrif á stöðu bæjarsjóðs, þótt ekki sé hún beysin eins og vikið mun að hér á eftir. Hér vom meintir kosningahags- munir Alþýðuflokksins settir ofar hagsmunum bæjarins. Fiskmarkaðurinn Síðara dæmið sem Guðmundur Ámi velur til árása á mig snýr að Fiskmarkaðnum væntanlega. Hagvirki var lægstbjóðandi í byggingu húss fyrir markaðinn. í lok nóvember sl. undirritaði fyrir- tækið síðan verksamning um smíði hússins. Framkvæmdir hafa gengið mjög vel og er þeim nú um það bil að ljúka. Allir venjulegir menn hefðu þakkað verktakanum góðan gang verksins, en Guðmundur Ámi virðist augljóslega ekki sú mann- gerð, sem metur það sem vel er gert. Þvert á móti stofnar hann nú til deilna í verklok, þar sem hann reynir án opins útboðs að koma aukaverkum við fískmarkaðshúsið í hendur utanbæjaraðila. Nýtur hann þar dyggilegs stuðnings vara- formanns hafnarstjómar, Hrafn- kels Ásgeirssonar. Af þessu tilefni verður ekki hjá því komist, að rifja lítillega upp sögu fískmarkaðarins til þess að mönnum verði ljóst hversu ranglega bæjarstjóri kýs að skýra frá mála- vöxtum. í útboði þar sem hver og einn verktaki hannaði húsið sjálfur var Hagvirki hf. hlutskarpast og bauð mjög hagstætt verð í byggingu hússins. Hafnarsjóður og bæjar- sjóður vom í vandræðum með íjármögnun framkvæmdanna, þannig að þess var farið á leit við Hagvirki hf. að það tæki Melabraut 18, 1.800 fermetra hús, upp í Fisk- markaðshúsið sem er 4.000 fer- metrar. Eftir nokkrar umræður og vegna áhuga forsvarsmanna Hag- virkis á að hugmyndin um að fískmarkaður yrði að vemleika náð- ist samkomulag og gerður var samningur með hagstæðum greiðsluskilmálum fyrir bæinn. Bæjarsjóður í millj ónavanskilum Ljóst er að Hagvirki hefur vem- lega aðstoðað bæjarsjóð við fjár- mögnun byggingar fískmarkaðar, auk þess að bjóða lægst. Þrátt fyr- ir það hefur bæjarstjóri, „fulltrúi hins nýja ábyrga afls“ eins og hann kýs að lýsa sjálfum sér, ekki getað staðið í skilum með greiðslur á víxlum sem Hafnarfjarðarhöfn hafði samþykkt til Hagvirkis sem greiðslur upp í byggingarkostnað- inn. Sl. miðvikudag vom tæpar 6 milljónir komnar í vanskil. Sýnir það ljóslega hversu horfír með fjár- málastjóm bæjarins undir stjóm bæjarstjóra, þetta em þó engan veginn einu vanskil bæjarins. T.d. má geta þess, að bæjarsjóður hefur stöðugt verið stórlega yfírdreginn frá því mánuði eftir að vinstri menn tóku við stjóminni í fyrravor. Deilur um aukaverk í samningunum um fískmarkað- inn em ákvæði um aukaverk, sem hljóða svo: „Verktaki skal vinna þau auka- verk sem eftirlitsmaður biður um, semja skal um verð fyrir siík auka- verk áður en þau em framkvæmd. Náist ekki samkomulag um slík aukaverk ákveður eftirlitsmaður einhliða verð fyrir þau og getur verktaki áfrýjað ákvörðunum eftir- litsmanns til gerðardóms skv. 10. grein þessa samnings". Fjöldi aukaverka hefur verið unn- inn eða er verið að vinna, m.a. starfsmannaaðstaða í vesturenda hússins, enda þótt ekki sé búið að ganga endanlega frá verði. Ljóst hefur verið frá því í des. sl. að Fisk- markaðurinn hf. myndi þurfa einhveija skrifstofuaðstöðu o.fl. í eða við húsið. Hefur ítrekað verið bent á nauðsyn þess, að ákvörðun um slíkt yrði að hraða til þess að ekki ylli töfum á opnun markaðar- ins. Hefur um það verið bókað í verkfundargerðum. Þrátt fyrir það er það fyrst 1. apríl, að beiðni frá bæjarstjóra berst um óformlegt tilboð í slíka aðstöðu. Ný lýsing með viðaukasetningum berst hinn 6. apríl. Tilboð Hagvirkis er afhent bæjarstjóm hinn 9. apríl. Er það í vandaða aðstöðu úr holsteini og múraða f hólf og gólf í samræmi við notkun inni í röku og óeinangr- uðu húsi. Bæjarstjóra þótti kostnað- ur við þessa aðstöðusköpun fyrir fiskmarkaðinn vera of hár skv. til- boðinu. Samkvæmt verksamningn- um gat hann vísað tilboðinu til úrskurðar eftirlitsmanns bæjarins eða gerðardóms, en þá leið vildi hann ekki fara. Hrafnkell fer á stúfana Næst gerist það, að varaformað- ur hafnarstjómar, Hrafnkell Ás- geirsson, fer á stúfana til mágs síns og tengdra aðila og fær yfír helgina unnar teikningar af bámjáms- klæddu timburhúsi inni í fískmark- aðnum. í kjölfarið fylgir svo tilboð, sem á bak við stendur í raun utan- bæjarfyrirtæki sem hvergi hafði áður komið að verkinu. Öðrum hafnfirskum fyrirtækjum var hins vegar ekki gefinn neinn kostur á að gera tilboð. Tvískinnungur bæjarstjóra Tvískinnungur Guðmundar Áma Stefánssonar í þessu máli átti þó eftir að koma enn betur í ljós. Á sama tíma og tæknilegur ráðu- nautur bæjarins með byggingu fískmarkaðarins er að afhenda tæknifræðingi Hagvirkis magnskrá yfír aðstöðu úr timbri til þess að gera tilboð í hringir bæjarstjóri í mig og segist vera með lægra tilboð í aðstöðuna. Krafðist hann þess, að Hagvirki fengi byggingameistara hússins tafarlaust til þess að heimila öðrum aðilum að he§a störf inni í húsinu áður en afhending færi fram og skrifa sig jafnframt frá verkinu. Að bíða eftir því að Hagvirki skilaði tilboði í það verk, sem trún- aðarmaður bæjarins hafði á svipaðri stundu verið að óska eftir tilboði í frá Hagvirki, kom ekki til greina af hálfu bæjarstjóra. Ég tjáði bæj- arstjóra að ég vildi ráðfæra mig við starfsmenn mína, áður en ég svar- aði kröfúm hans. Þeir upplýstu mig um að þeim hefði verið falið að gera tilboð í breytta útfærslu. Þeir vísuðu til ákvæða samningsins og töldu að þeir ættu að vinna verkið og að meistarar og starfsmenn, sem Lokaorð Hagvirki er í dag langstærsta verktakafyrirtæki landsins. Það veitir hundruðum manna atvinnu, þar á meðal ijölmörgum Hafnfirð- ingum. Fyrirtækið er ekki þekkt af því að gera illa við starfsfólk sitt nema síður sé. Það ágæta starfsfólk, sem hjá Hagvirki vinnur, er órækasta sönnunin fyrir því. Það níð og sá óhróður, sem Guð- mundur Ámi Stefánsson hefur nú gripið til að bera út um Hagvirki og mig persónulega, lýsir honum og hans hugarástandi miklu fremur en þeim, sem hann ætlar að reyna að ófrægja. Það er líklega til allt of mikils mælst af Guðmundi Áma að hann skilji mikilvægi þess fyrir hvert bæjarfélag, að þar séu góð og vel rekin atvinnufyrirtæki. Fyrir honum virðist pólitískur sandkassaleikur skipta mestu máli. Á meðan hann var í minnihluta í bæjarstjóm gerði þetta ekki svo mikið til, en nú eftir að hann er orðinn bæjarstjóri ætti hann að reyna að koma sér upp úr sand- kassanum. Vafalítið hefur Guðmundur Ámi ætlað að liðsinna Alþýðuflokknum með þessum níðskriftim sínum um mig. Aumur er sá málstaður, sem tel- ur sig þurfa á slíkum skrifum að halda sér til framdráttar. Hvers mega menn vænta, ef slíkir spekingar komast f ríkisstjóm. Höfundur er forstjórí Hagvirkis hf. ogbæjarfulltrúi Sjálfstœðis- fiokksins í Hafnarfirði. IONAOaRBANIU ÍSLANDS HF UA31 TILKYNNINO GRENSASÚTIBU HAALEITISBR. SS-60.K. UH VANSKIL VIXLAR - S1H1 tí2 756 DÁJJS. 31.03.B7 1.600.0U0.U0 37.5UU.0U 2AU.U0 1.537.740,00 EF PáR HAHO ÞEGAK GREm VINSAHLEGAST EYOILEGGIO TILKYNNINGUNA HAFNARFJAROARHÖFN 35U3-35U5 GREIOANOI HAGVIKKI HF 3525-1308 UTGEFANOI ALHENNak TRYGGINGAK HF 0267-3363 AÖEKINGUK OFANGKEINDUR VlAlLL ER ENN 1 VANSKILUH. HÉ.K HEO ER SKUKAO « YOUR AO GKEIOA HANN NU ÞEGAK ASAHl KUSTNAOl. vinsamlegast hafio aour senuan gkeiosluseoil HEOFEKOIS ÞEGAK GREITT ER. - ÞETTa EK LUKAAOVöKUN. Ein tilkynninganna um vanskil bæjarsjóðs vegna greiðslu á víxlum þeim sem samþykktir voru sem greiðslur upp í byggingaframkvæmd- ir við Fiskmarkaðshúsið. Vanskil skipta nú milljónum. GJALDD. VIXILNK• 15.03.87 70-U30083 HAGVIRKI HF SKUTAHRAUN 2 I!.. 2 2U HAFNAKFJOftOUR--- VIXILUPKHAO DKAlTARVEXUR KUSTNAÐUK --— SA/JITaLS .,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.