Morgunblaðið - 25.04.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
27
Menntun í ferðaþjónustu
eftirFriðrik
Haraldsson
Ferðaþjónustan hérlendis er
orðinn veigamikill þáttur í atvinn-
ulífi þjóðarinnar, hefur þegar
skipað sér í sess meðal þýðingar-
mestu útflutningsatvinnuveganna,
og á ennþá eftir að vaxa fiskur
um hrygg. Þrátt fyrir mikilvægið,
hefur þessi atvinnugrein verið, og
er ennþá, olnbogabam að mestu
leyti. I því tilefni má nefna, að
einungis tvær greinar ferðaþjón-
ustunnar njóta einhvers skipulegs
undirbúnings og menntunar, þ.e.
leiðsögumenn og matreiðslu- og
framreiðslufólk.
Það er því fagnaðarefni, að
Gunnar G. Schram, alþingismað-
ur, hefur fylgt í höfn þingsálykt-
unartillögu um kennslu í
ferðamálum áður en þingi var slit-
ið nú í vetur. Gunnar ritaði um
þessi efni í Morgunblaðið, nú
síðast 2. apríl sl., og reifaði nauð-
syn þess, að verkin þyrftu að
fylgja. I nefndri grein hans kemur
fram, að hann hafi ekki talið
ástæðu til að tilgreina lengd náms,
og hvar það skuli fara fram í skóla-
kerfínu en sér samt ástæðu til að
álykta, að það eigi ekki heima á
háskólastigi. Þess má geta að af-
föll í Leiðsöguskola Ferðamálaráðs
Islands eru alltaf mikil, m.a. vegna
þess, að fólk hefur ónóga undir-
búningsmenntun og a.m.k. 60%
af félögum í Félagi leiðsögumanna
hafa minnst 3 ára háskólanám að
baki.
Nú um eins árs skeið hefur
starfað nefnd á vegum mennta-
málaráðuneytisins til að undirbúa
stofnun ferðamálaskóla, þar sem
skólamenn og leikmenn í ferða-
þjónustu hafa lagzt á eitt til að
finna æskilegustu lausnina. Þar
hafa fulltrúar leiðsögumanna fært
fullgild rök fyrir því, að menntun
þeirra sé og þurfí að vera svo
víðfeðm, að engin leið sé til að
henni verði lokið í ijölbrauta- eða
menntaskólum, auk þess, að ungt
fólk, sem útskrifast þaðan hafí
ekki þann aldur, þroska og þekk-
ingu til að bera til að takast á við
þetta veigamikla starf.
Víða um lönd fá leiðsögumenn
ekki að yrða á ferðamenn fyrr en
að loknu allt að 4 ára háskóla-
námi. Þar skilja stjómvöld og
forsvarsmenn ferðamála hve áríð-
andi þáttur þessarar stéttar er í
öflun gjaldeyristekna og hve þessi
hluti ferðaþjónustunnar er mikils-
verður þáttur í landkynningunni.
í þessum sömu löndum er stétt
leiðsögumanna líka lögvemduð og
þess stranglega gætt, að engir
viðvaningar stefni ferðaþjón-
ustunni í hættu.
Hérlendis em alltaf nokkur
brögð að því, að aðskotafólki sé
falin fararstjóm og leiðsaga er-
lendra ferðamanna og því miður
oftast með slæmum árangri,
stundum með hörmulegum afleið-
ingum.
Fyrir nokkmm ámm gerðu
Kópavogskaupstaður og mennta-
Leiðrétting
EITT orð misritaðist í grein
Ragnhildar Helgadóttur, heil-
brigðisráðherra, í Morgunblað-
inu á finuntudaginn og
brenglaði merkingu efnislega.
Orðið „lágmark“ stóð þar sem
átti að standa „lágmarkslaun."
Rétt hljóðar málsgreinin, þar
sem villan var, svo: „Við teljum
eðlilegt að elli- og örorkulífeyrir
ásamt tekjutryggingu og heimilis-
uppbót hækki í lágmarkslaun."
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
„Hérlendis eru alltaf
nokkur brögð að því,
að aðskotafólki sé falin
fararstjórn og leiðsaga
erlendra ferðamanna
og því miður oftast með
slæmum árangri, stund-
um með hörmulegum
afleiðingum.“
málaráðuneytið með sér samning
um byggingu og rekstur ferða-
málaskóla í bænum, en fátt hefur
gerzt í þeim efnum. Þessi samn-
ingur, líkt og lög um opinber
fjárframlög, er úr mjög teygjan-
legu efni. Orð eru til alls fyrst,
en er ekki búið að tala nóg?
Gildandi reglur
Samkvæmt lögum og reglu-
gerðum um ferðamál á Ferðamála-
ráð meðal annars að annast
rekstur leiðsöguskóla og gæta
Friðrik Haraldsson
þess, að innlendir leiðsögumenn
með réttindi séu í fylgd með er-
lendum hópum eða veita hæfum
einstaklingum atvinnuleyfí til
slíkra starfa með venjulegum fyr-
irvörum. Hinu fyrmefnda hefur
verið sinnt að meðaltali annað
hvert ár frá 1977 en sú rökstudda
tilfinning hefur læðzt að fólki, að
Ferðamálaráð vilji eindregið losna
undan þeim krossi. Ekki vegna
þess, að skólinn sé of dýr í rekstri,
heldur fremur vegna áhugaleysis.
Nemendur í Leiðsöguskólanum
hafa sjálfir greitt a.m.k. helming
kostnaðar með skólagjöldum til
þessa og nú í vetur allan kostnað-
inn. Hvar gerist svona lagað
annars staðar í skólakerfinu?
Hvemig er staðið að menntun
fólks í öðmm undirstöðuatvinnu-
vegum þjóðarinnar? Sums staðar
er fólk á launum við að læra.
Þáttur ferðamála-
samtaka
Fyrir nokkmm ámm hóf Ferða-
málaráð herferð fyrir stofnun
ferðamálafélaga og samtaka um
land allt. Þetta tókst mæta vel og
varð aflvaki þeirra breytinga, sem
við höfum séð og munum sjá í
bættum skilyrðum til móttöku
ferðamanna. Meðal þess fyrsta,
sem mörg þessara félaga og sam-
taka komust að niðurstöðu um,
var, að nauðsynlegt væri að
mennta staðarleiðsögumenn.
Mætir skólamenn vom fengnir til
að ýta þessari hugmynd af stokk-
unum og þetta skyldi gert á
örsköi.imum tíma og án alls samr-
áðs við Ferðamálaráð, Leiðsögu-
skólann og Félag leiðsögumanna.
Sem betur fer tókst hér um bil
að sannfæra viðkomandi um fá-
nýti slíkra vinnubragða og betra
væri að byggja á fenginni reynslu.
Samt sem áður kom í Jjós, að
árangur af þeim tveimur nám-
skeiðum, sem haldin hafa verið,
var alls ekki ákjósanlegur.
Á þessu stigi málsins er full
ástæða til að benda á, að til er
reglugerð um menntun leiðsögu-
manna og Leiðsöguskólinn hefur
einn rétt til að útskrifa þá. Marg-
ir skólar á landsbyggðinni hafa
áhuga á opnun ferðamálabrautar,
núna síðast Menntaskólinn á Eg-
ilsstöðum og Reykholtsskóli. Það
er ekki gott að rasa um ráð fram
á þessu sviði, heldur að fara eftir
gildandi reglum og leggja hönd á
plóginn við vandaðan undirbúning
staðlaðrar námskrár og náms-
gagna fyrir slíkar brautir og
Ferðamálaskóla framtíðarinnar.
Höfundur er formaður Félags
leiðsögumanna.
Stóíiniesjametm
Ellert
Eiríksson,
sveitarstjóri,
er í framboði til Alþingis.
Hann er Suðurnesjamaður og gjörkunnugur málefnum kjördæmisins. í störfum sínum hefur
hann sýnt og sannað að þar fer ábyrgur maður og með kjöri hans tryggjum við okkur traustan
og góðan fulltrúa á þing. Við undirritaðir kjósendur Sjálfstæðisflokksins beinum því til allra
Suðurnesjamanna að þeir veiti Ellert brautargengi í kosningunum. Ellert er í 4. sæti D-listans,
sem er baráttusæti okkar Suðurnesjamanna. Stöndum saman um kosningu Ellerts Eiríkssonar
og kjósum D-listann.
Tómas Tómasson, Keflavík
Svanlaug Jónsdóttir, Keflavík
Finnbogi Björnsson, Garði
Dagný H. Hildisdóttir, Garði
Sæmundur Þórðarson, Vognm
Særún Karlsdóttir, Vogum
Áki Granz, Njarðvík
Margrét Sanders, Njarðvík
Eiríkur Tómasson, Grindavik
Agústa Gísladóttir, Grindavík
Björgvin Lúthersson, Höfnum
Alma Jónsdóttir, Sandgerði
Jón Erlingsson, Sandgerði