Morgunblaðið - 25.04.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
37
Hamsun og
Harr í Nor-
Nóbels-
skáldið
heilsar upp
áleikara
Dramaten í Stokkhólmi sýndi á
fímmtudagskvöldið í Þjóðleikhús-
inu leikritið „En liten ö í havet",
sem samið er eftir Atómstöð
Halldórs Laxness. Heiðursgestur
sýningarinnar var Halldór Lax-
ness, en hann átti sem kunnugt
er 85 ára afmæli þennan dag. í
leikslok heilsaði skáldið upp á
sænsku leikarana.
ræna húsinu
OPNUÐ verður laugardaginn 25.
apríl kl. 15 sýning í anddyri
Norræna hússins á myndun eftir
norska iistamanninn Karl Erik
Harr og verður hann viðstaddur
opnunina. Sendiherra Noregs,
Niels L. Dahl, flytur ávarp við
þetta tækifæri.
Á sýningunni eru teikningar,
skissur og steinprent, sem Harr
hefur gert við skáldverk Knuts
Hamsun, en Harr er sá listamaður
sem hefur myndskreytt flestar bæk-
ur Hamsuns. Viðfangsefni Karls
Eriks Harr og sögusvið Hamsuns
er Norður-Noregur, en Harr er
fæddur og uppalinn á þeim slóðum
og sækir einatt myndefni sitt þang-
að.
Auk þess sýnir Karl Erik Harr
frumdrætti, riss og allt það stein-
prent sem hann hefur unnið við
texta Hamsuns og þrykkt í París
undanfarin ár.
Karl Erik Harr er fæddur 1940
í Troms. Hann stundaði listnám við
Listaháskólann í Osló og hélt fyrstu
sýningu sína_ í Harstad í N-Noregi
1963 og í Ósló sýndi hann fýrst
1968. Hann hefur haldið sýningar
víða á Norðurlöndum og verk hans
eru í eigu listasafna og prýða stofn-
anir, hótel og skip í Noregi. Karl
Erik Harr hefur einnig fengist við
ritstörf og sent frá sér nokkrar
bækur.
Hrafn Bachmann:
Kjötíð frá
Grísabóli
hreinna og
seljanlegra
„VIÐ látum slátra svínunum þjá
Grísabóli í Reykjavík vegna þess
að kjötið þaðan er miklu seljan-
legri vara en frá öðrum slátur-
húsum, þar á meðal Höfn á
Selfossi,11 sagði Hrafn Bachmann
hjá Kjötmiðstöðinni, er hann var
spurður um ástæður þess að fyr-
irtæki hans gerir þær kröfur til
svínabænda, sem fyrirtæki hans
verslar við, að svínunum sé slátr-
að hjá þessu tiltekna svinaslátur-
húsi.
Hrafn sagði að fyrirtæki hans
væri með mikla svínakjötssölu, eða
22—26 tonn á mánuði. Samkeppnin
á þessum markaði væri mjög hörð
og þyrfti fyrirtækið stöðugt að
tjalda sínu besta til að halda stöðu
sinni. Hann sagði að kjötið frá hinu
nýja sláturhúsi Grísabóls væri miklu
hreinna og virtist vera betur frá-
gengið en svínakjöt frá öðrum
sláturhúsum og væri því miklu selj-
anlegri vara.
Pegar við leggjum grunn að
framtíðinni notum við aóeins
bestu byggingarefni
SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS
FRAMLEIÐIR:
Portlandsement í venjulega steinsteypu.
Hraðsement í steypu sem verður að harðna
hratt.
Blöndusement í steypu sem má harðna hægt
en verður að vera þétt og endingargóð. (Sér-
staklega ætlað í stíflur, brýr og hafnarmann-
virki, en einnig í múrhúð).
STYRKLEIKI:
Portlandsementið er framleitt í samræmi við
íslenskan sementsstaðal IST9. Styrkleiki sem-
ents er aðaleiginleiki þess.
Styrkleiki íslensks Portlandsements:
Styrkleiki kg/sm2 eftir
Portlandsement
Lágmarkskrafa IST9
3 daga 7daga 28 daga
250 350 500
175 250 350
GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR FYRIR
HÚSBYGGJENDUR:
- Það er ekki alltaf hægt að treysta því að
steinsteypa sé gallalaus. Látið því kunnáttu-
menn framleiða og meðhöndla steypuna.
- (slenska sementið er blandað varnarefnum
gegn alkalíhvörfum, sölt steypuefni eða salt
steypuvatn getur ónýtt þessa vörn. Hvers
konar önnur óhreinindi, svo sem sýrur og
fínefni í steypuefnum, geta valdið skemmd-
um í steinsteypunni.
- Sparið vatnið í steypuna. Hver lítri vatns
fram yfir það sem nauðsynlegt er, rýrir end-
ingu hennar.
- Gerið steypuna þjála, þannig að hún þjappist
vel í mótin. Varist þó að nota meira vatn en
steypuframleiðandinn gefur upp.
- Hlífið nýrri steypu við örri kólnun og útþurrk-
un. Sláið ekki frá mótum of snemma og ein-
angrið opna fleti. Annars getur steypan enst
verr vegna sprungumyndana.
- Leitið ávallt ráðgjafar hjá sérfræðingum ef
þið ætlið að byggja hús eða önnur mannvirki
úr steinsteypu. Betri ending bætir fljótt þann
kostnað.
®SEMENTSVERKSMIÐJA
RÍKISINS