Morgunblaðið - 25.04.1987, Side 38

Morgunblaðið - 25.04.1987, Side 38
38^' MORGUNBLAÐIÐ; LAUGARDAGUR' 25. APRÍL 1987™« manna og nemenda. í lokin var svo boðreið þar sem keppendur þurftu að leysa af hendi þrautir svo sem að drekka vatn úr plastmáli, sporð- renna einum banana og hleypa hestinum yfir eina hindrun. Að þessu loknu var haldið heim að Hólakirkju þar sem keppendur skeifukeppninnar röðuðu sér fyrir framan kirkjuna og verðlaun voru afhent. Þrátt fyrir að krakkamir hafi ekki getað átt við tamningar í hret- inu sem gekk yfír landið í nokkra daga fyrir skömmu var ekki annað að sjá en vel hafí tekist til með tamningamar í vetur. Mátti þama sjá innan um bráðefnilega tamn- ingamenn (konur era líka menn), reyndar hefur sigurvegarinn, hún Eyrún Anna starfað við tamningar um árabil og meðal annars við kyn- bótabúið á Hólum. Einnig mætti nefna tvær stúlkur sérstaklega í þessum efnum, þær Bimu M. Sigur- bjömsdóttur og Ragnheiði Samú- elsdóttur, sem virðast hafa ótvíræða hæfíleika til að fást við hesta þann- ig að vel fari. Úrslit skeifukeppninnar urðu sem hér segir: 1. Eyrún Anna ' Sigurðardóttir, Flugumýri, á Kolgrími frá Kjam- holtum, 114,08 stig. 2. Bima M. Sigurðardóttir, Laug- húsum, Fljótum, á Ási frá Neðra- Ási, 113,4 stig. 3. Þórarinn Leifsson, Keldudal, á Ögra frá Keldudal, 113,25 stig. 4. Efemía F. Valgeirsdóttir á Byl frá Ytra-Vallholti, 110,27 stig. Að lokinni keppni stilltu nemendur sér upp ásamt reiðskjótum sinum framan við Hólakirkju sem er táknræn fyrir Hólastað. 5. Ragnheiður Samúelsdóttir, Nes- Skeifukeppnin á Hólum: Stelpurnar „rúlluðu“ strákunum upp ________Hestar Valdimar Kristinsson Þá er rannin upp sú stund að stúlkumar nái forystunni í keppn- inni um Morgunblaðsskeifuna í Bændaskólanum á Hólum. Er sú forysta tvíþætt því auk þess að skjóta strákunum aftur fyrir sig í sjálfri keppninni vora þær nú í fyrsta skipti fleiri en strákamir. Má segja að stelpumar hafí hrein- lega rúllað strákunum upp. En það sem er kannski merkilegast við keppnina að þessu sinni var að sig- urvegarinn, Eyrún Anna Sigurðar- dóttir frá Flugumýri, er bams- hafandi og komin 8 mánuði á leið. Hesturinn sem hún sýndi er Kolgrímur 4 vetra stóðhestur frá Kjamholtum. Er hann undan Hraunari frá Sauðárkróki sem fannst dauður í haga í stóðhesta- stöðinni aðeins þriggja vetra gamall fyrir nokkram áram. Var hann að margra mati talinn einn efnilegasti stóðhestur landsins á þeim tíma en það er nú önnur saga. Móðir Kolgríms er Glókolla 5353 frá Kjamholtum og er hann því sam- mæðra Kolbrá 5354 og Kolfínni 2020 sem bæði era þekkt kyn- bótahross. Má af þessu ætla að hér sé á ferðinni kynbótahestur sem vert er að gefa gaum á komandi áram. En þrátt fyrir óléttuna lét Eyrún Anna sig ekki muna um það að mæta til leiks og hlaut hún einnig viðurkenningu Félags tamninga- manna fyrir bestu ásetuna. í öðra sæti varð Bima M. Sigurbjöms- dóttir frá Langhúsum og veitti hún Eyrúnu Önnu harða keppni og munaði aðeins 0,68 stigum á þeim en hámarksstigafjöldi er 140 í þess- ari keppni. Bima keppti á Ási 5 vetra frá Neðra-Ási í Skagafírði en hann er undan Hervari 963 frá Sigurvegari Skeifukeppninnar, Eyrún Anna Sigurðardóttir, á Kolgrim frá Kjamholtum. Tveir svifléttir á brokki og að sjálfsögðu hlaupa þeir í takt enda ekki annað við hæfi eftir vetrarlanga sámæfingu. Sá fjórfætti er Bliki frá Garðshomi en tvífætlingurinn heitir Hermann G. Jónsson. kaupstað, á Nös frá Halldórsstöð- um, 110,03 stig. Gæðingakeppni 1. Menja frá Hólum, knapi Ingimar Ingimarsson. 2. Ás frá Neðra-Ási, knapi Bima M. Sigurbjömsdóttir. 3. Olga frá Hólum, knapi Ragn- heiður Samúelsdóttir. (Engar einkunnir gefnar.) Keppnin um Morgunblaðsskeifuna var hnifjöfn og spennandi og hefði sigurinn allt eins getað lent hjá Birau M. Sigurðardóttur sem situr hér Ás frá Neðri-Asi en hún hlaut viðurkenningu tímaritsins Eiðfaxa fyrir bestu ástundun og hirðingu. Þrátt fyrir að Ragnheiður Samúelsdóttir sparaði töltið í keppninni hafnaði hún í fimmta sæti á hryssunni Nös frá Halldórsstöðum. Sauðárkróki og hryssu frá Neðra- veitir fyrir bestu hirðingu og Ási. Bima hlaut hinsvegar viður- ástundun en það era nemendur kenningu sem tímaritið Eiðfaxi sjálfír sem velja sigurvegarann í leynilegri kosningu. í þriðja sæti varð svo Þórarinn Leifsson frá Keldudal og var hann á 5 vetra stóðhesti, Ögra frá Keldu- dal, en sá er undan Seifí frá Keldudal og Hrund 6555 frá sama stað. Dagskrá skeifudagsins á Hólum var með hefðbundnum hætti, að lokinni skeifukeppninni var gæð- ingakeppni með þátttöku staðar-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.