Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
Kosningarnar
Nýju kosningalögin:
62 þingsætum skipt á kjördæmi
eitt jöfnunarsæti er óbundið
í dag er í fyrsta sinn kosið sam-
kvæmt nýjum kosningalögum.
Markmiðið með þeim er í fyrsta
lagi að jafna kosningarétt eftir
búsetu og í öðru lagi er reynt
að ná fullum jöfnuði milli flokka.
Einn þeirra, sem hefur verið
þingmönnum til aðstoðar við að
útfæra reglur í samræmi við
þessi markmið er Þorkell Helga-
son prófessor við raunvisinda-
deild Háskólans. Hann ritaði
grein um nýju kosningalögin hér
i blaðið 7. mars síðastliðinn og
hefur veitt leyfi sitt til að sá
kafli hennar, þar sem nýja kerf-
inu er lýst sé endurbirtur i dag.
Fer hann hér á eftir.
Þingsæti verða alls 63 og skipt-
ast þannig í hefðbundin kjördæmis-
sæti og sæti sem háð eru
jöfnunarákvæðum (uppbótarsæti):
Kjörd. Jöfn. AUs
sæti sæti
Reykjavík 14 4 18
Reykjanes 9 2 11
Vesturland 4 1 5
Vestfirðir 4 1 5
Norðurland vestra 4 1 5
Norðurland eystra 6 1 7
Austurland 4 1 5
Suðurland 5 1 6
Samtals 50 12 62
Auk þess er eitt jöfnunarsæti
óbundið kjördæmum og getur kom-
ið sem viðbót í eitt þeirra. Ræðst
það af kosningaúrslitum hvert það
fer. Svipar þessu sæti því til hinna
gömlu uppbótarsæta. Reyndar er
nokkur sveigjanleiki í skiptingu
sæta milli kjördæma. Átta af þing-
sætunum 62 er skipt fyrir hverjar
kosningar milli kjördæmanna sam-
kvæmt sérstakri formúlu sem tekur
mið af kjósendatölu. Ofangreind
skipting gildir við næstu kosningar.
Ekki er þó líklegt að þessi niðurröð-
un riðlist í náinni framtíð.
Kjördæmissætum er úthlutað
með reglu stærstu leifar. Hvemig
það gerist verður best lýst með
dæmi. Lítum á fimm-manna kjör-
dæmi þar sem þrír listar voru í kjöri
og hlutu atkvæði sem hér segir:
X-listi Y-listi Z-Iisti Samt.
2800 1500 1200 5500
Þá skal fyrst ákvarða kjördæmis-
tölu sem svo er nefnd í lögunum.
Er hún meðaltal atkvæða að baki
hveiju þingsæti, þ.e.a.s. tala gildra
atkvæða deilt með þingsætatolunni.
í dæminu nemur því kjördæmistal-
an 5500/5=1100 atkvæðum.
Úthlutun fer þannig fram að fyrst
hlýtur sá listi sæti er fékk flest
atkvæði, eða X-listinn. Atkvæðatala
hans er síðan lækkuð sem nemur
kjördæmistölunni og er þá 1700.
Enn á X-listinn flest atkvæði og
hlýtur því einnig annað sætið. Að
því loknu verður atkvæðaleif hans
600 atkvæði. Er þá komið að Y-list-
anum að hljóta þriðja sætið og á
hann þá atkvæðaleif upp á 400
atkvæði. Síðasta kjördæmissætið,
það ijórða, fellur þá til Z-listans út
á 1200 atkvæði og eftir verða 100
atkvæði. Þetta er dregið saman í
næstu töflu þar sem sýnd er at-
kvæðatala að lokinni hverri úthlut-
un og endanlegar atkvæðaleifar:
X-listi Y-listi Z-Iisti Samt.
2800 1500 1200 5500
1700 400 100
600
Röðsæta l.og2. 3. 4. 4
Atkv.leif 600 400 100 1100
Þannig er kjördæmissætum
hvers kjördæmis úthlutað og ganga
þá út 50 sæti alls. Þau sæti sem
eftireru, 13 talsins, eru til jöfnunar
á milli flokka og er þeim skipt eftir
landsfylgi með d’Hondts-reglu. Er
hér engin breyting frá samsvarandi
ákvæðum kosningalaganna frá
1959 og skal því ekki farið nánar
út í þá sálma.
En nú er eftir að koma þessum
13 sætum til einstakra framboðs-
lista. Er það ekki auðvelt verk svo
öllum líki. Einfaldast virðist að líta
á þær atkvæðaleifar, sem nú eru
eftir og halda áfram úthlutun á
grundvelli þeirra. I kjördæminu,
sem haft var til viðmiðunar, hefur
X-listinn stærstu atkvæðaleif. Ef
það er stærsta atkvæðaleif á
landinu færi samkvæmt þessu
fyrsta jöfnunarsætið til hans svo
framarlega sem flokkur hans á rétt
á jöfnunarsætum. Ef ekki, verður
að ganga fram hjá listum X-flokks-
ins. Úthlutun á þessum nótum er
þó ekki sanngjöm vegna mismun-
andi stærðar kjördæma. Oll fyrstu
jöfnunarsætin gengju út í Reykjavík
og á Reykjanesi og gæti þá reynst
erfitt að koma síðustu jöfnunar-
mönnum fyrir á landsbyggðinni.
Skv. nýju lögunum er því mæli-
kvarðinn á stöðu manna ekki sjálf
atkvæðaleifín heldur hlutfall henn-
ar af kjördæmistölunni. Þannig
er t.d. staða næsta manns á X-list-
anum mæld sem 600/1100=55%.
Flokksbróðir hans, sem hreppir
hærri atkvæðaleif eða t.d. 1000
atkvæði í öðru kjördæmi þar sem
kjördæmistala er 2500, er þá lægra
settur þar sem hlutfall hans er ein-
ungis 40%.
Að fengnum þessum mælikvarða
á stöðu manna mætti ætla að nú
væri unnt að ganga á röðina og
úthluta eftir hlutfalli atkvæðaleifa
af kjördæmistölu. Þegar svo var
gert þótti þingmönnum að ekki
fengist eðlileg dreifíng milli þétt-
býlis og dreifbýlis í þingliði flokk-
anna. Því var farin málamiðlun sem
felst í því að skipta úthlutun jöfnun-
arsætanna í nokkra áfanga:
í fyrsta áfanga ganga þeir menn
fyrir sem hafa atkvæðaleif er nem-
ur a.m.k. 4/s, eða 80%, af kjördæm-
istölu og gildir þá einu í hvaða
kjördæmi það er. I liðnum kosning-
um hefðu þessir forgangsmenn
oftast verið í Reykjavík 'og á
Reykjanesi, t.d. tveir í Reykjavík
en einn á Reykjanesi.
I öðrum áfanga er úthlutun tak-
mörkuð við eitt sæti í hveiju þeirra
kjördæma sem ekki hlaut sæti f
fyrsta áfanga. í þessum áfanga er
þá lokið úthlutun á landsbyggðinni,
en að jafnaði er engu sæti úthlutað
á suðvesturhominu.
FÉLAG heyrnarlausra hélt fund
með fulltrúum flokkanna 11.
apríl síðastliðinn i húsnæði fé-
lagsins á Klapparstíg 28. Mættu
þar fulltrúar frá Alþýðuflokkn-
Með þriðja áfanga er lokið út:
hlutun kjördæmisbundinna sæta. í
reynd eru það síðustu sætjn í
Reykjavík og á Reykjanesi.
Fjórði áfangi tekur til úthlutun-
ar á óbundna sætinu. Þegar að því
kemur er vitað hvaða flokkur fær
sætið, en eftir er að fínna þvi kjör-
dæmi. Er það gert með sérreglu.
Nokkurra sérákvæða er vert að
geta. Þannig koma þeir listar ekki
til álita við úthlutun kjördæmissæta
sem hlotið hafa minna en 2/s af
kjördæmistölu. (Ef þetta nær til
fleiri en eins lista er þessi þröskuld-
ur í reynd lægri.) Á sama hátt eru
listar undir þriðjungi af kjördæmis-
tölu útilokaðir frá öllum jöfnunar-
sætum. í öðrum áfanga gildir og
sérstakur þröskuldur Ganga skal
fram hjá listum með minna en 7%
fylgi.
Að lokum er atriði sem flækir
lögin, en er því miður nauðsynlegt
innan þess kerfis sem hér er lagt
til grundvallar: Eftir að flokkur er
úr leik, vegna þess að hann hefur
fengið úthlutað öllum þeim sætum
sem honum ber, verður að endur-
reikna kjördæmistölur og atkvæða-
leifar. Er það gert þannig að felld
um, Sjálfstæðisflokknum, Al-
þýðubandalaginu, Flokki
mannsins, Borgaraflokknum og
Kvennalistanum. Á fundinum
eru niður atkvæði og þingsæti þessa
flokks. Lítum aftur á dæmið og
gerum ráð fyrir að X-flokkurinn
hafí hlotið öll þau sæti sem honum
ber áður en komið er að úthlutun
á jöfnunarsætinu í kjördæminu og
eigi því ekki frekari rétt til sæta.
Virk atkvæði er þá 5500-2800=2700
sem skiptast á milli 5-2=3 þing-
sæta. Ný kjördæmistala verður þá
2700/3=900 atkvæði. Atkvæðaleif
listanna er þá 1500-900=600 hjá
Y-lista og 1200-900=300 hjá Z-
lista. Athygli skal vakin á því að
summa leifanna er 600+300=900
atkvæði eða jöfn nýju kjördæmis-
tölunni. Áhrif endurreikninganna
eru einmitt þau að ónotuð atkvæði
nægja á hverjum tíma fyrir þeim
sætum sem eftir er að úthluta, en
í dæminu er það aðeins eitt sæti.
Nú verður mælikvarðinn á stöðu
þessara lista að sjálfsögðu hlutfall
leifanna af nýju kjördæmistölunni
eða 600/900=67% hjá Y-lista en
300/900=33% hjá Z-lista.
Samsvarandi endurreikningi á
kjördæmistölu er og beitt ef listi
fellur undir lágmarksákvæðið við
kjördæmisúthlutun.
bar margt á góma, m.a. málefni
heyrnarlausra, en ræður og svör
voru flutt jafnóðum á táknmáli
fyrir fundargesti.
Morgunblaðið/Þórarinn Friðjónsson
g* raöauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
Að kröfu Byggðastofnunar og lönlánasjóðs, fer fram oplnbert upp-
boð á húseigninni Vesturbraut 20, Búðardal, þinglýstri eign Mel-
borgar hf. þriðjudaginn 28. apríl kl. 14.00.
Uppboðiö fer fram i skrifstofu sýslumanns Búöardals.
Pátur Þorsteinsson,
sýslumaður.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Heiðarbrún 52, Hveragerði, þingl. eign Sveins Kristins-
sonar, fer fram í skrifstofu embættisins, Hörðuvöllum 1, Selfossi,
þriðjudaginn 28. apríl 1987 kl. 11.15.
Uppboösbeiöandi er veðdeild Landsbanka Islands.
Sýslumaður Árnessýslu.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta fer fram á Ólafsvegi 12, eign Gunnlaugs Gunnlaugs-
sonar, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 16.00 á eigninni sjálfri.
Bæjarfógetinn i Ólafsfirði,
24. april 1987.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Bröttuhlíð 8, Hveragerði, þingl. eign Sigriðar Gunnars-
dóttur, fer fram í skrifstofu embættisins, Hörðuvöllum 1, Selfossi,
fimmtudaginn 30. aprfl 1987 kl. 10.00.
Uppboösbeiðandi er veödeild Landsbanka (slands.
Sýslumaður Árnessýslu.
Nauðungaruppboð
á þingl. eignarhluta Einars Oddssonar [ jörðinni Vestri Loftsstaðir,
Gaulverjabæjarhreppi, en talin eign Helga Þórs Jónssonar, fer fram
i skrifstofu embættisins, Hörðuvöllum 1, Selfossi, miðvikudaginn 29.
apríl 1987 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er Búnaðarbanki (slands.
Sýslumaður Árnessýslu.