Morgunblaðið - 25.04.1987, Síða 65

Morgunblaðið - 25.04.1987, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987 65 Stiörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Námskeið í stjörnu- speki Síðastliðinn laugardag fjöll- uðum við um stjömuspeki í arabískri menningu miðalda. Heimsmynd Bandaríski sagnfræðingur- inn Lynn Thomdike, prófess- or við Columbia-háskólann, hefur haldið því fram að heimsmynd fyrri tíma, fram á 16. öld, hafi mótast að tölu- verðu leyti af stjömuspeki. Aðrir vilja ganga svo langt að kalla stjömuspeki móður nútímavísmda. Frceðigrein Hvort sem síðastnefnda full- yrðingin er rétt eða ekki er það staðreynd að stjömu- speki var virt fræðigrein til foma og nátengd öðrum greinum. Sem dæmi má nefna að arabar, sem varð- veittu foma texta grískrar menningar, höfðu fyrst og fremst áhuga á stjömuspeki. Margar uppgötvanir þeirra í stærðfræði og stjömufræði vom t.a.m. til komnar vegna áhuga á að þróa stjömu- speki. (N. Campion, Kynning á sögu stjömusjjeki, ISCWA 1982, s. 38). Lifibrauð Margir fremstu stjömufræð- ingar og vísindamenn mið- alda voru einnig stjömuspek- ingar og höfðu að miklu leyti lifibrauð sitt af stjömuspeki, þ.e. hún gaf af sér peninga og næði til að sinna „alvar- legri" fræðigreinum. Má þar nefiia ekki ómerkarí menn en Tycho Brahe, Johannes Kepler og Galileo Galilei. Sagnfrceði Það er þvi svo, hvort sem við viðurkennum það eða ekki, að nútímavísindi standa í þakkarskuld við stjömuspeki. Við ættum amk. að virða hana fyrir það og fyrir þá sök að hún hefur í árþúsundir verið mikilvægur hlekkur i menningarþróun okkar. Þó það sé útúrdúr, hef ég aldrei getað skilið sagnfræðinga sem neita að skoða eða viður- kenna mikilvægan hlekk í menningarsögu mannsins. Hnignun Áður en ég tek til við sögu stjömuspeki í Evrópu frá 10., 11. öld er rétt að geta tímabilsins fram að þeim tíma frá falli Rómarveldis. Oft er talað um hinar myrku miðaldir og siðastliðinn iaug- ardag sagði ég að evrópsk menning hefði lagst af á þessum tíma. Það er að sjálf- sögðu fulldjúpt i árinni tekið, betra væri að tala um hnign- un, því í raun voru margvís- leg fræði iðkuð á þessum tíma þó í takmörkuðum mæli. írar Til eru sögur um það að Ját- varður konungur af Norð- humbralandi (616—632) hafi haft stjömuspeking í þjón- ustu sinni. írskir munkar eru sagðir hafa haft tengsl við Koptísku kirkjuna í Alex- andríu og ættu því amk. að hafa vitneskju um heimspeki- legrí hliðar stjömuspeki. Alcuin Enskur munkur að nafni Alcuin, fæddur 735, er talinn hafa haft töluverð áhrif á evrópska stjömuspeki. Hann setti á fót skóla fyrir Karl mikla, stofnanda hins Heil- aga rómanska keisaradæmis. Þar var stjömuspeki ein aðal- kennslugreinin og er m.a. talið að Karl mikli hafi sjálfur lært stjömuspeki. Upp frá þeim tíma var enginn sá prins meðal prínsa sem ekki hafði stjömuspeking sem ráðgjafa. GRETTIR úg vÆrrEKKU 6ÆTI \7ER1P &KELI-A . UÓSKA SMAFÓLK UUHV CAN'T I JU5T TAKE OFF UilTHOUT 5AVIN6 ANVTHIN6? Ég hefi alltaf þessa sekt- arkennd ... En hví skyldi ég hafa hana? Af hveiju get ég ekki bara farið án þess að segja orð? Nei, ég hefi alltaf þessa sektarkennd og ég spyr alltaf... er að fara i bæ- inn ... Viltu að ég færi þér eitthvað? Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Guðlaugur Sveinsson og Magnús Sverrisson voru eina AV-parið sem lét eftir sér að fara í sex grönd í eftirfarandi spili. Þetta var f Daihatsumót- inu. Vestur gefur; AV á hættu. Vestur ♦ ÁG6 VÁD3 ♦ D10 ♦ ÁK865 Norður ♦ KD954 VG2 ♦ 7652 ♦ 32 III Suður ♦ 1082 ♦ K9875 ♦ G98 ♦ D4 Austur ♦ 73 ♦ 1064 ♦ ÁK42 ♦ G1097 Sjálfsagt hefur vestur ekki verið mjög bjartsýnn þegar blindur kom upp. Jafnvel þótt laufdrottningu kæmi í leitimar vantaði enn tvo slagi. Og útspil- ið var ekki sérlega þægilegt, spaðakóngur. Norður fékk að eiga fyrsta slaginn á spaðakónginn skipti t " yfir í tígul. Það hjálpaði sagn- hafa nokkuð. Hann tók tvo tígulslagi, toppaði laufið, fór inn á laufgosann og tók ÁK í tígli. Og náði svo í 12. slaginn með vel heppnaðri hjartasvíningu. Norður hefði auðvitað átt að spila laufi í öðrum slag. Það gat ekki gefið neitt, sem sagnhafi gat ekki náð í sjálfur. En spilið á að vinnast fyrir það. Bæði getur sagnhafi notað innkom- umar á G10 í laufi til að svfna tígultíunni og þjartadrottning- 'S unni — auk þess sem spilið vinnst sjálfkrafa með bvingun á norður í spaða og tfgli, ef tígulsvfningin er látin eiga sig. Umsjón Margeir Pétursson Á svæðamóti S-Ameríku sem er nýlokið kom þessi staða upp í skák þeirra Silva, Chile og Urday, Perú, sem hafði svart og átti leik. Hvítur lék síðast af sér, 31. Hc5 - c8?? 31. — Dxg2+I og hvítur gafst upp, því hann er mát eftir 32. Rxg2 — Rf3. Tveir ungir skák- meistarar komust áfram, Milos frá Brazilfu sem hlaut ll'A v. af 15 mögulegum og stórmeist- arinn Granda Zunjiga, sem hlaut IOV2 v. Gamla kempan Oscar Panno frá Argentínu varð f þriðja sæti með 10 v. og kemst því ekki áfram á millisvæðamót að þessu sinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.