Morgunblaðið - 25.04.1987, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
tióðir leikarar á góðri stund. Hackman sem körfuboltaþjálfarinn og
Hopper sem bæjarbyttan i Leikið til sigurs.
Liðsandinn
í lagi
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
,
Leikið til sigurs — Best Shot
(Hoosiers) ☆ ☆☆
Leikstjóri: David Anspaugh.
Kvikmyndatökustjóri: Fred
Murry. Tónlist: Jerry Goldsmith.
Framleiðandi: Carter de Haven.
Aðalleikendur: Gene Hackman,
Dennis Hopper, Barbara Hers-
hey. Bandarísk Hemdale/Orion
1986.
Þá er okkur boðið uppá enn eina,
glænýja mynd að vestan. Hún hefur
verið skýrð upp fyrir Evrópumark-
aðinn og nefnist nú Best Shot, sem
höfðar til meginefnis hennar, sem
er körfubolti. I Ameríku gengur hún
hinsvegar undir nafninu Hoosiers,
^em hefur þótt heldur framandi
fyrir íbúa gamla heimsins. Enda er
það hábandarískt og er viðumefni
á íbúum Indiana-fylkis, en á þeim
slóðum er myndin tekin. En undir
þessari nafngift hefur nokkur hróð-
ur borist um myndina, m.a. fékk
gamla biýnið hann Dennis Hopper
tilnefningu til Óskarsverðlaunanna
í ár fyrir frammistöðu sína í mynd-
inni.
Leikið til sigurs fjallar um bar-
áttu gamalreynds körfuboltaþjálf-
ara við að koma góðu lagi á skólalið
í krummaskuði á berangurslegu
víðfeðmi Miðríkjanna og endur-
heimta jafnframt viðurkenningu í
augum fólks. Þama í fámenninu,
hvort tveggja, mikill áhugi fyrir
íþróttinni og andstaða og fordómar
gagnvart ákveðinni og markvissri
þjálfun Hackmans.
Eftir að hafa borið sigur úr být-
um á borgarafundi, þar sem borin
var fram vantrauststillaga gegn
honum, fer Hackman að ganga flest
í haginn og leiðir dvergliðið í glæsi-
lega sigurgöngu.
Þessi látlausa en vandaða mynd
gerir spuminguna um liðsanda að
aðalatriði, árangur samvinnu liðs-
heildarinnar gerir gæfumuninn.
Það em góðir kraftar sem standa
á bak við LTS. Leikstjórinn David
Ansapugh, sem hér er að öllum
líkindum að gera sína fyrstu alvöru-
mjmd, heldur endum vel saman.
Bæði er myndin spennandi hvað
viðvíkur kröfuboltakeppninni,
blessunarlega laus við nokkum
„Rockyffling", og mannleg, og at-
hyglisverð persónusköpun utan
vallar lykillinn að velgengni hennar.
Hackman er nú orðinn einn
traustasti, miðaldra karakterleikar-
inn í kvikmyndaborginni, (Eureka,
Misunderstood, Twice in a Life-
time), og hér bætir hann við enn
einni rós í hnappagatið í traustri
og líklegri túlkun sinni á hinum
seinheppna kröfuboltaþjálfara og
skaphundi. Hershey er svona slark-
fær en ástarævintýri þeirra passar
illa inní heildarmyndina og hefði
gjaman mátt missa sig.
Það kemur á óvart að sá af end-
emum frægur, Dennis Hopper,
hlaut tilnefningu í ár fyrir að leika
bæjarbyttuna. Hopper er svo sann-
arlega flinkur leikari, hér sem oft
áður, en alls ekki að gera neitt
merkilegt. Maður hefur heyrt þeirri
útskýringu fleygt að tilnefningin
hafi verið sárabót fyrir það að
Hopper hlaut ekki tilnefningu fyrir
bestan leik í aðalhlutverki í þeirri
umdeildu, (illræmdu?) Blue Velvet.
Kannski er málið svona einfalt,
a.m.k. er þetta ekki verri útskýring
en hver önnur.
Annað sem prýðir LTS er geysi-
lega falleg kvikmyndataka Murrys,
sem fangar listilega litadýrð slétt-
unnar, víðáttuna sem og þrengsli
íþróttasalanna. Leikið til sigurs
er sannarlega óvænt og vel gerð
sending frá henni Hollywood, þessi
óvenjulega mynd lýsir ljóslifandi
fáseðri hlið á bandarísku þjóðlífi og
Hackman er í toppformi. Góð
skemmtun fyrir alla aldursflokka.
IMttgþiiiSlfttoí#
Góðan daginn!
Fermingar 1. sunnu-
dag eftir páska
Ferming í Árbæjarkirkju sunnu-
daginn 26. aprU kl. 14.00. Prest-
ur: Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
Fermd verða:
Stúlkur:
Guðný Erla Jakobsdóttir,
Hraunbæ 164.
Laufey Jóna Högnadóttir,
Brekkubæ 18.
Lilja Kristín Magnúsdóttir,
Álakvísl 128.
Selma Gústafsdóttir,
Reykási 3.
Sigríður Þómnn Grétarsdóttir,
Rauðási 5.
Sigrún Karlsdóttir,
Grundarási 4.
Drengir:
Eyþór Hafbergsson,
Lambhaga v/Vesturlandsveg.
Freyr Eyjólfsson,
Funafold 67.
Guðmundur Öm Amarson,
Hraunbæ 98.
Gunnar Hákonarson,
Funafold 59.
ívar Þór Sigþórsson,
Hraunbæ 136.
Leó Þór Þórarinsson,
Hraunbæ 26.
Oddur Steinarsson,
Reyðarkvísl 24.
Ólafur Friðrik Óskarsson,
Hraunbæ 90.
Þórhallur Jónsson,
Blesugróf 24.
Breiðholtssókn. Ferming i Bú-
staðakirkju sunnudaginn 26.
apríl kl. 13.30. Prestur: Sr. Gísli
Jónasson.
Fermd verða:
Stúlkur:
Áslaug Hallvarðsdóttir,
írabakka 2.
Eva Hauksdóttir,
Ósabakka 9.
Guðrún Jóna Sæmundsdóttir,
írabakka 22.
Hafdís Einarsdóttir,
Dvergabakka 28.
Hafdís Inga Rafnsdóttir,
Hjaltabakka 4.
Hulda Bjamadóttir,
Hjaltabakka 24.
Inga Lind Gunnarsdóttir,
Irabakka 4.
Piltar:
Elmar Þór Þorkelsson,
Maríubakka 22.
Guðmundur Sverrisson,
Fiskakvísl 7.
Gunnar Már Ragnarsson,
Feijubakka 4.
Gunnar Svanberg Skúlason,
Vesturbergi 146.
Óskar Rúnar Harðarson,
Feijubakka 4.
Trausti Hafliðason,
Eyjabakka 3.
Þorgeir Valur Pálsson,
Skriðustekk 27.
Þórður Ámason,
Kóngsbakka 11.
Þröstur Daníelsson,
Eyjabakka 7.
Digranesprestakall. Ferming í
Kópavogskirbju sunnudaginn 26.
april kl. 10.30. Prestur: Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
Fermd verða:
Drengir:
Ami Þór Gunnarsson,
Neðstutröð 6.
Bjami Georg Einarsson,
Brekkutúni 20.
Bogi Hólmar Viðarsson,
Vatnsendabletti 235.
Friðfinnur Öm Hagalín,
Digranesvegi 74.
Geir Ragnar Róbertsson,
Birkigrund 16.
Guðmundur Tómasson,
Grenigrund 7.
Hlynur Eggertsson,
Daltúni 36.
Ingimundur Kárason,
Fumgmnd 52.
Jón Ólafur Bergþórsson,
Fífuhvammi 5.
Ólafur Guðni Friðriksson,
Ástúni 14.
Rúnar Vincent Jensson,
Fögmbrekku 25.
+
VIÐKJÓSUM