Morgunblaðið - 25.04.1987, Side 80
80
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
FJÖREGG
Skessur tvær höfðu náð Hlina kongssyni á vald sitt, en samferða-
menn Hlina höfðu misst hann frá sér í mikilli þoku, er þeir voru á
veiðum. Kóngur lét nú það boð út ganga að hver, sem fyndi son sinn
og kæmi með hann heim aftur, skyldi eignast hálft ríki sitt. Karl og
kerling voru í Garðshomi. Þau áttu eina dóttur, er Signý hét. Hún
lagði strax af stað með nesti og nýja skó að leita að Hlina. Að áliðn-
um degi kom hún að helli einum og fann Hlina sofandi í reklqu með
gullofínni ábreiðu yfír sér. Rúnir voru ritaðar á rekkjuna, sem hún
skildi ekki. Viidi hún vekja Hlina en gat ekki. Fór nú Signý fram að
hellisdyrum og faldi sig á hurðarbaki. Brátt komu inn í heilinn tvær
skessur stórskomar mjög. „Fuss um fei, mannaþefur í helli okkar,"
segir önnur. En hin segir að það sé af Hlina kongssyni. Síðan gengu
þær inn að rekkju þeirri, sem kongsson svaf í, og segja svo: „Syngi,
syngi svanir mínir, svo hann Hlini vakni."
Hlini vaknar og spyr þá
yngri skessan hvort
hann vilji borða og
hvort hann vilji ekki
eiga sig. Hann neitar því þver-
lega. Þá kallar hún upp og segir:
„Syngi, syngi svanir mínir, svo
hann Hlini sofni." Svanimir sungu
og hann sofnaði. Morguninn eftir
fóru skessumar burt úr hellinum.
Signý vakti nú kongsson, eins og
skessumar höfðu að farið og lagði
honum þau ráð að þegar skessan
spyrði hann að kvöldi hvort hann
vilji eiga hana, skuli hann játast
henni með því móti að hún segi
honum hvað ritað sé á rekkjuna
og hvað þær skessur séu að haf-
ast að á daginn. Gekk þetta nú
eftir, að Hlini játaðist skessunni
og fékk að vita hvað rúnimar á
reklqunni þýddu. „Renni, renni
rekkja mín, hvert sem maður vill.“
Skessan sagði: „Á daginn erum
við að veiða dýr og fugla úti á
skóginum, en þegar okkur verður
á milli með það, setjumst við und-
ir eik eina og hendum á milli okkar
Qöregginu okkar." Hlini spyr,
hvort nokkuð sé vandfarið með
það. „Brotni það erum við báðar
dauðar," segir skessa. Eftir næt-
ursvefn fóru skessumar út í skóg
við eik eina. Þar heyrðu þau hlát-
ur mikinn. Að ráðum Signýjar fór
Hlini upp í eikina. Sá hann þá
báðar skessumar undir eikinni,
og hélt önnur þeirra á gulleggi,
og snaraði því að hinni. í sama
vettvangi skaut kongsson spjóti
sínu og kom það á eggið á flug-
inu, svo það brotnaði. Við það brá
skessunum svo að þær ultu útaf
með froðufalli. Kongssonur og
Signý fóm nú heim, giftust og
unnust vel og lengi. Þar með lýk-
ur þessari endursögn á sögunni
af Hlina kongssyni, sem árið 1903
birtist í kverinu Þijatíu ævintýri,
úrval úr þjóðsögum og ævintýrum
Jóns Ámasonar.
Því er þessi saga rakin hér og
nú, að oft hefur mér sýnst sem
glannaskap þeim, sem skessumar
sýndu í meðferð flöreggs síns og
varð þeim að flörtjóni, megi jafna
við sofandahátt, skilningsleysi og
jafnvel glannaskap, sem við ís-
lendingar sýnum á meðferðinni á
okkar eigin flöreggi, frelsinu.
Það er ekki sjálfgefíð að við
íslendingar höfum tjáningarfrelsi,
trúfrelsi, ferðafrelsi og kosninga-
rétt og Iqorgengi, og reyndar em
þær þjóðir miklu færri, sem eiga
fjöreggið sitt óbrotið, en hinar,
sem mega horfa upp á það brotið
og fótum troðið. Við skulum því
ekki fara í skessuleik mkeð fjör-
eggið okkar, ekki kasta því á
milli okkar, því víst er setið um
það. Heldur fela það varðveislu
þeim, sem vita hvers virði fjöregg-
ið frelsið er.
Meðan við hlustum á kosninga-
tölumar skulum við næra okkur
á einhveiju góðu.
Pylsur með skinku
og osti
10 pylsur
1 msk. sterkt sinnep
10 sneiðar skinka
10 sneiðar maribo-ostur (nota má
annan feitan ost)
1 dl tómatsósa
1 meðalstór laukur
1 msk. matarolía
1 hvítlauksgeiri
1 meðalstór rauð paprika
6 dropar tabaskósósa
2 tsk. soyasósa.
1. Skerið rifur í pylsumar,
smyijið þær síðan að innan með
sinnepi.
2. Veflið skinkusneiðamar í
rúllur og setjið eina sneið í hverja
pylsu.
3. Skerið ostsneiðamar í sundur
:langsum, leggið ofan á skinkuna
að endilöngu.
4. Hitið glóðarrist og glóðars-
teikið pylsumar í 5—7 mínútur.
Ef þið hafíð ekki glóðarrist er
hægt að steikja pylsumar í 220°C
heitum bakarapfni.
5. Afhýðið láukinn og hvítlauk-
inn, skerið smátt. Takið steinana
úr papríkunni og skerið smátt.
6. Hitið matarolíu í potti, steik-
ið lauk, hvítlauk og papríku í
pottinn og sjóðið í 7 mínútur.
Setjið tómatsósun og soya-sósuna
út í.
7. Berið sósuna með pylsunum
ásamt einhverskonar brauði.
Kjúklingasalat
1 steikur eða soðinn kjúklingur
250 g ferskir hvítir og fallegir
sveppir
200 g Port Salut-ostur
3 harðsoðin egg
4—5 meðalstórir tómatar
1 dl matarolía
safi úr 1 sítrónu
2 tsk. milt gott sinnep
tsk. salt
6 dropar tabaskósósa
nýmalaður pipar
ristað brauð og smjör.
1. Skerið tómatana í sneiðar
og setjið á botninn á djúpu fati.
2. Ef þið notið soðinn kjúkling,
þarf að taka húðina af honum,
en ef hann er steiktur, er húðin
notuð með. Rífíð kjúklinginn í
smábita, skerið ekki með hníf.
Gott er að nota gaffal við að rífa
kjúklinginn niður. Setjið bitana í
skál.
3. Takið skumina af eggjunum,
og saxið frekar smátt. Setjið sam-
an við lquklingabitana.
4. Þerrið sveppina með eldhús-
rúllu, þvoið ekki. Skerið síðan í
sneiðar. Skerið ostinn í litla bita.
Setjið sveppina og ostinn með í
skálina.
5. Setjið olíu, sítrónusafa, sin-
nep, salt, tabaskósósu og pipar í
aðra skál. Þeytið saman. Hellið
síðan yfír það sem er í hinni skál-
inni. Blandið varlega saman með
tveimur göfflum.
6. Hellið salatinu ofan á tómat-
ana á fatinu.
7. Berið ristað brauð og smjör
með.
Heitt brauð með beik-
oni, eplum og osti
10 formfranskbrauðssneiðar
smjör til að smyrja brauðið með
feitur ostur ofan á 10 brauðsneið-
ar
2 stór epli, helst súr
5 stórar sneiðar beikon.
1. Smyijið brauðið, setjið ost
ofan á sneiðamar.
2. Skerið eplin í sneiðar, sting-
ið úr þeim kjamann, en afhýðið
ekki. Leggið eina sneið á hveija
brauðsneið.
3. Skerið hveija beikonsneið
þversum í sundur, klippið síðan
með skæram langsum í ræmur.
Þannig að fjórar ræmur myndist
úr hverri beikonsneið.
4. Setjið tvær ræmur í kross
ofan á eplasneiðina.
5. Hitið bakaraofn í 200 °C,
blásturofn í 180°C. Notið ekki
glóðarrist. Setjið brauðið í ofninn,
og bakið í 12—15 mínútur.
6. Berið brauðið fram heitt.
Pönnukökur með blað-
lauk og rækjum
Pönnukökurnar:
2 egg
tsk. salt
4 dl mjólk
2 dl hveiti
1 dl heilhveiti
tsk. lyftiduft
1 msk. matarolía.
1. Hrærið eggin með saltinu.
2. Blandið saman hveiti, heil-
hveiti og lyftidufti.
3. Setjið mjöl og mjólk út í
eggin og hrærið vel saman.
4. Setjið matarolíuna út í. Þetta
á að verða þykkt deig.
5. Hitið pönnukökupönnu og
bakið 12—15 pönnukökur úr deig-
inu.
Fyllingin:
1 stór blaðlaukur (púrra)
2 dl saltvatn til að sjóða laukinn í
250 g rækjur
30 g smjör eða smjörlíki
3 msk. hveiti
1 peii kaffíijómi
safínn af blaðlaukum
tsk. múskatduft
2 msk. ijómaostur án bragðefna
50 gr rifínn maribó eða óðalsost-
ur.
6. Skerið gróf blöð af lauknum,
skolið síðan vel undir rennandi
vatni. Kljúfíð og láta renna inn í
hann. Skerið síðan ( sneiðar.
7. Hitið saltvatn og sjóðið lauk-
inn í því í 5—7 mínútur. Hellið á
sigti en geymið soðið.
8. Bræðið smjörið í potti, hellið
út í það hveiti. Hrærið síðan ijóma
og blaðlaukssoði út í.
9. Setjið múskat og ijómaost
út í og hrærið vel saman.
10. Setjið blaðlaukinn og rækj-
umar út í.
11. Skiptið þessu jafnt á pönnu-
kökumar og vefjið upp. Setjið í
eldfast mót.
12. Rífíð ostinn og stráið yfír.
13. Hitið bakaraofn í 200°C,
blásturofn í 180°C. Setið fatið í
ofninn og bakið í 15 mínútur.