Morgunblaðið - 24.06.1987, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1987
Hentuqur
hand-
lyftari
HPV800
Lyftigeta: 800 kg.
Lyftihæð: 80 cm.
Hentugt hjálpartæki
við allskonar störf.
Sparið bakið,
stillið vinnuhæðina.
BiLDSHÖFDA 16 SÍML6724 44
lngerhillur
oq rekkar
mm
Eigum á lager og útvegum með
stuttum fycirvara allar gerðir af
vörurekkum ög lagerkerfum.
Veitum fúslega allar nánari
upplýsingar.
2/ / /
y 2/ £
UMBODS- OG HE/LDVERSLUN
BÍLDSHÖFDA 16 SÍML672444
Öllum, sem sýndu mér vinarhug á 80 ára
afmœlinu, sendi ég mínar bestu þakkir.
Bjarni G. Tómasson,
BarmahliÖ 49.
BILATORG
NÓATLN 2 - SÍMl iClll.V'
SAAB 9000 turbo 16 árg. 1987
Til sölu nýr Saab 9000 turbo 16
sjálfskiptur. Verð kr. 1.200.000,-
í i ku'fx'íÁí 11? V ?. /
mJm m * vÆ
Morgunblaðið/Þorkell
Nokkrír aðstandenda sænsku vörukynningarinnar. Frá vinstri Ægir Björnsson umboðsmaður Grund-
éns, Esbjörn Sköld frá sænska útflutningsráðinu, Ágúst Hafberg framkvæmdastjóri ÍSARN hf., Ágúst
Ragnarsson frá Saab umboðinu, Bert Christiansson frá sænska útflutningsráðinu, Vigfús Geirdal blaða-
fulltrúi, Reynir Guðmundnsson frá Gísla J. Johnsen, Guðmundur Ólafsson frá Johan Rönning, Sigurður
Daníelsson frá Landsmiðjunni og Gunnar Ingibergsson innanhúsarkitekt.
Þijátíu íslensk fyrirtæki
kynna sænskar vörur
SÆNSK vörukynning er haldin í
Scania húsinu við Skógarhlíð og
stendur hún yfir dagana 23. til
27. júni í tilefni af komu sænsku
konungshjónanna hingað til lands.
Sýningin var opnuð f gær kl. 15.30
og voru Karl XVI Gustaf Svíakon-
ungur og Silvia drottning viðstödd
opnunina ásamt forseta íslands
Vigdísi Finnbogadóttur. Mats
Hellström, landbúnaðar- og sam-
starfsráðherra Svíþjóðar flutti
opnunarræðuna.
Þijátíu íslensk fyrirtæki taka þátt
í kynningunni. Fyrirtækin flytja öll
inn sænskar vörur og á sýningunni
kennir ýmissa grasa. Sem dæmi má
nefna að sýndir verða stórir þunga-
flutningabílar, loftpressur, fólksbílar,
heimilistæki, málningarvörur, tölvur
og tölvubúnaður, matvæli, fatnaður
og listiðnaðarvörur svo eitthvað sé
nefnt.
Er vörukynningin var kynnt fyrir
blaðamönnum voru m.a. viðstaddir
Esbjöm Sköld fulltrúi sænska út-
flutningsráðsins og Bert Christians-
son, einnig fulltrúi sænska útflutn-
ingsráðsins og jafnframt forstjóri
The Swedish Fishery Group. Á fund-
inum kom m.a. fram að íslendingar
fluttu inn vörur frá Svíþjóð fyrir 4.1
milljarð íslenskra króna á síðasta ári
og nemur það 9% af öllum innflutn-
ingi til landsins.
Svíar flytja mun minna inn frá
íslandi. Innflutningur frá íslandi hef-
ur þó aukist jafnt og þétt á síðastliðn-
um árum. Milli áranna 1985 og 1986
jókst hann úr rúmum 100 milljónum
sænskra króna í 189 milljónir, eða
um 87%.
Eftirtalin fyrirtæki taka þátt í
vörukynningunni: ÍSARN hf., Veltir
hf., Gunnar Ásgeirsson hf., Saab
umboðið, Kosta Boda, Bangsi-Fix,
Vélaverkstæði Sig. Sveinbjömssonar
hf., Kristján Ó. Skagfjörð hf., Kristj-
án Siggeirsson hf., Vélar og verkfæri
hf., Vörumarkaðurinn, Ofnasmiðjan
hf., Johan Rönning hf., Landsmicýan
hf., Samband íslenskra samvinnufé-
laga, Gísli J. Johnsen sf., Kúlulegu-
salan hf., Kassagerð Reykjavíkur
hf., Ásbjöm Ólafsson hf., Egill Áma-
son hf., Vífilfell hf., Þórður Sveinsson
co. hf., Ragnar-Herrafataverslun,
Bjami Stefánsson, Sól hf., Vélsmiðj-
an Héðinn hf., Slippfélagið í
Reylgavík hf., Einar J. Skúlason hf.,
Heildverslun Þorsteins Gíslasonar og
Harðviðarval.
Útskrifaðist sem
sjóliðsforingi
Fyrsti íslendingxirinn sem lýkur prófi frá
Háskóla bandarísku strandgæslunnar
UNGUR íslendingur, Ásgrímur
Lárus Ásgrímsson, útskrifaðist
nýlega sem sjóliðsforingi frá
Háskóla bandarísku strandgæsl-
unnar. Hann er fyrsti íslending-
urinn sem lýkur sjóiiðsforingja-
prófi frá þessum skóla.
Ásgrímur, sem er 23 ára gam-
all, hefur stundað nám við foringja-
skóla bandarísku strandgæslunnar
síðastliðinn fjögur ár og var hann
Umboðsmaður óskast
fyrir verkfræðiforrit
MAPDAT A/S, sem er undirfyrirtæki VIAK A/S í Noregi, sérhæfir sig í talfræðilegri kortagerð
og þróun og leiðbeiningu við notkun tölvuforrita.
Við erum að leita eftir umboðsmanni eða sölumanni fyrir tölvuforrit okkar á íslandi.
Við óskum eftir að komast í samband við fyrirtæki sem býr yfír góðri þekkingu á: land-
mælingum, kortagerð, aðveitu- og fráveitufræði ásamt þekkingu á tölvum.
Forrit okkar ná yfir landmælingar, hitaveitu-, vatnsveitu- og fráveituleiðslur, kapalkerfi (sjón-
varps), kortaskráningu, flatmálsreikninga (skógrækt), líkanagerð á landslagi, upplýsingasöfnun
með þrívíddar-ritara, breytingareikninga og fasteignaskráningu.
Þróun á nýjum þrívíddarforritum fyrir skipulagsáætlanir og byggingahönnun er vel á veg komin'
Vinsamlegast hafíó samband vió MAPDA TA/S, Postboks J53,1360Nesbru eóa hafíð sam-
band riö Frode Roifsen eða Truls Korsæth í síma:90-47-2-849580um nánari uppiýsingar.
MapDctf as
eini útlendingurinn sem útskrifaðist
þaðan að þessu sinni. Meðal þeirra
sem voru viðstaddir útskriftina voru
foreldrar hans, Camilla Pétursdóttir
og Ásgrímur Bjömsson skipstjóri.
Þá var Hörður Bjamason, sendifull-
trúi við íslenska sendiráðið í
Washington viðstaddur útskriftina
fyrir hönd jslensku Landhelgis-
gæslunnar. í fréttablaðinu „The
Day“, sem er svæðisblað þar sem
skólinn er í Connecticut, var löng
grein um útskrift sjóliðsforingjanna
þar sem Ásgríms er sérstaklega
getið sem fyrsta íslendingsins sem
lýkur prófi frá skólanum. Þar er
þess ennfremur getið að Hörður
Bjamason hafi verið viðstaddur sem
fulltrúi íslensku utanríkisþjón-
ustunnar.
Ásgrimur Lárus Ásgrímsson að
loknu prófi í einkennisbúning
bandariskra sjóliðsforingja.
Að lokinni stuttri dvöl hér á landi
að prófi loknu hélt Ásgrímur á ný
til Bandaríkjanna þar sem hann
mun gangast undir sérstaka þjálfun
í eitt ár hjá bandarísku strandgæsl-
unni, en hann fer í þessa þjálfun á
vegum íslensku Landhelgisgæsl-
unnar.
Nýútskrifaðir sjóUðsforingjar fagna próflokum með því að kasta
húfum sínum og merkjum samkvæmt gamalli hefð. Mynd þessi birt-
ist í svæðisblaðinu „The Day“.