Morgunblaðið - 24.06.1987, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1987
þorski seldust á
Tyrsta uppboði
Faxamarkaðar
FYRSTA uppboð Faxamarkað-
arins fór fram við Reykjavíkur-
höfn í gær. Boðin voru upp rúm
57 tonn af þorski úr togaranum
Sléttanesi frá Þingeyri auk 500
kg af regnbogasilungi frá Hver-
gijóti í Dalasýslu. Fyrir kílóið
af þorski fengust að meðaltali
34 krónur, en hæsta verð á kari
var 44 krónur. Regnbogasilung-
urinn, sem kom fyrirvaralaust
inn á markaðinn, seldist ekki.
Tveir fiskmarkaðir starfa nú í
landinu. Fyrir viku tók til starfa
fískmarkaður í Hafnarfírði og
reyndist meðalverð á þorskkílóinu
þar 35,33 krónur í gær. Sá munur
er á starfsaðferðum fyrirtækjanna
tveggja að Faxamarkaðurinn býð-
ur upp á flokkaðan físk eftir stærð
og aldri. Fyrstu körin sem boðin
voru upp á Faxamarkaði innihéldu
stóran þorsk, eins til þriggja daga
gamlan og voru seld á 44 krónur.
Þorskur af millstærð fór á 40 krón-
ur, en smár og nýveiddur fískur á
tæpa 31 krónu, svo dæmi séu
nefnd.
Mannfjöldi var í skemmu Faxa-
markaðarins þegar uppboðið hófst
um kl. 18.00 og voru fæstir þar í
leit að þorski. Uppboðshaldara var
ætlaður staður í pontu á miðju
gólfí, en að baki hans voru gögn
um uppboðið skráð í tölvu.
Áður en uppboðið hófst sté
Ágúst Einarsson stjómarformaður
Faxamarkaðarins í pontu. „Það er
ailtaf gaman að taka þátt í nýsköp-
un og eiga hlut í nýjum tíma. Það
er að gerast í dag,“ sagði Ágúst.
„Hér hefja innreið sína eðlileg
vinnubrögð við verðmyndun í físk-
iðnaði og sérhæfíng og fjölgun
andlita í sjávarútvegi getur fylgt
í kjölfarið. Allt þetta getur ræst
en það verður tíminn að leiða í
Ijós.“ Hann færði þakkir þeim fjöl-
mörgu sem stuðlað hefðu að því
að Faxamarkaðurinn yrði að veru-
leika og nefndi sérstaklega Davíð
Oddsson borgarstjóra sem reynst
hefði mikill stuðningsmaður fýrir-
tækisins svo og borgaryfírvöld.
Tuttugu og einn kaupandi gaf
sig fram við uppboðshaldara og
fékk afhent spjald með númeri.
Viðskiptin fara þannig fram að
uppboðshaldari kallar það verð sem
í boði er en kaupendur halda á
lofti spjöldum sínum séu þeir til-
búnir til að greiða fyrir fískinn.
Þá hækkar uppboðshaldari verðið
um 25 aura í senn þar til aðeins
eitt spjald er á lofti. Fiskurinn er
þar með sleginn eiganda þess.
Afla Sléttanessins var skipt í
fímmtán stæður. í hverri þeirra
voru tíu kör með um hálfu tonni
af þorski. Kaupendur buðu í hveija
stæðu fyrir sig en var í sjálfsvald
sett hvort þeir keyptu öll körin eða
aðeins hluta þeirra. Yrði leif af
stæðu hóf uppboðshaldari aftur að
bjóða fískinn þar til allt seldist.
Menn eru enn að spá
Fyrsti kaupandinn var Ásbjöm
Jónsson frá Fiskkaupum hf. í
Reykjavík, sem bauð í 43.30 krón-
ur í tæp tvö tonn af þorski af
millistærð. Hann kvað fyrirtækið
vera með saltfískverkun, smáa í
sniðum. „Þetta er nokkru hærra
en það sem við höfum verið að
borga að undanfömu, en það hafa
verið um og yfír 35 krónur. Við
erum mest í föstum viðskiptum við
smábáta," sagði Ásbjöm í samtali
við blaðamann.
„Það kæmi vel til greina að
kaupa okkar físk í gegnum mark-
aðinn, en við verðum fyrst að sjá
hvemig málin þróast. Þeir sem við
eigum mest viðskipti við hafa ekki
ákveðið sig hvort þeir sendi sinn
afla á fískmarkað, menn em enn
mikið að spá,“ sagði Ásbjöm. Hann
hrósaði frágangi á físknum og virt-
ist nokkuð ánægður með þessi
kaup.
Áður en uppboðinu var lokið
sagði Vilhelm Ánnasson skipstjóri
Sléttanessins blaðamanni að hann
gerði sig ekki ánægðan með lægra
Uppboðshaldarinn kallar uppsett verð yfir hópinn en þeir sem áhuga sýna á því að borga það fyrir
fiskinn gefa slíkt til kynna með þvi að halda auðkenni sinu á lofti.
Pétur Þorbjömsson uppboðshaldari glöggvar sig á málum. Kaupend-
ur buðu í einstakar stæður en máttu aðeins taka hluta af fiskinum
og þurfti þá að bjóða afganginn upp að nýju.
Ágúst Einarsson stjóraarformaður Faxamarkaðarins ávarpaði við-
stadda gegnum gjallarhom uppboðshaldarans.
Vilhelm Annasson skipstjóri á
Sléttanesinu IS.
Silungurinn seldist ekki
Heldur tók að sljákka í mönnum
þegar leið á uppboðið. Síðustu
þorskkörin innihéldu undirmálsfísk
og vöktu ekki mikinn áhuga kaup-
enda. Pétur Þorbjömsson uppboðs-
haldari lækkaði þá lágmarksverðið
um helming, í 12,50 krónur og
seldi fiskinn að bragði. Hann leit-
aði að því búnu eftir tilboðum í
500 kg af regnbogasilungi sem
Hörður Guðmundsson eldisbóndi
vestan úr Dölum lagði inn á mark-
aðinn öllum að óvörum. Uppsett
lágmarksverð var 165 krónur fyrir
kíló og tóku menn því fálega. Hörð-
ur féllst á að lækka lágmarksverðið
um 55 krónur, tók sjálfur spjald
og reyndist sá eini sem bauð í físk-
inn.
„Ég á ekki von á því að koma
aftur með silung hér á markað-
inn,“ sagði Hörður við blaðamann.
„Þetta var svona tilraun út í loftið,
því þetta hefur ekki verið gert
áður. Nú fer ég væntanlega með
fískinn aftur vestur og verka hann
þar.“
Uppboðið tók tæpan klukk-
utíma. Margir kaupenda kusu að
gera reikninga strax upp við mark-
aðinn og nema fískinn á brott,
aðrir ætluðu að geyma körin næt-
urlangt í skemmunni og sækja
feng sinn í dag.
BS
Morgunblaðið/KGA
Ásbjörn Magnússon frá Fiskkaupum merkir sér fimm kör sem komu í hans hlut fyrir rúmar 43 krónur
hvert kíló.
meðalverð en 34 krónur fyrir afl-
ann. „Þegar við héldum á veiðar
var ákveðið að landa fisknum í
gáma hér fyrir sunnan. Um miðbik
veiðiferðarinnar kom síðan upp sú
hugmynd að setja helminginn á
markaðinn hér. Ef að líkum lætur
getum við búist við um 50 króna
meðalverði fyrir gámafískinn og
til þess að vega þetta upp þurfum
við að fá að minnsta um 34 krónur
fyrir fískinn hér,“ sagði Vilhelm.
Hann sagði að togarinn hefði
nær einvörðungu landað afla
sínum á Þingeyri í vetur, vegna
mikillar eftirspumar þar. Nú hefði
ræst úr þeim málum og væri stefnt
að því að selja ísfísk úr annarri
hverri veiðiferð í sumar. „Það er
svo mörgum spumingum ósvarað
um þessi mál.Eg held að það geti
ekki orðið stór hluti togarfísksins
sem fer í gegnum markaðina, en
við verðum að bíða og sjá til.
Ætli þróunin verði ekki sú að
menn líti á fiskmarkaðina sem við-
miðun, líkt og Rotterdamverð
ræður úrslitum á olíumarkaðnum.
Það tel ég jákvætt," sagði Vilhelm.
Uppboðsskráin var margþætt, menn þurftu að huga að
því hvaða stærð af fiski hentaði og hvað sanngjarnt
væri að gefa fyrir hann.
Um 57 lestir af