Morgunblaðið - 24.06.1987, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1987
41
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Sameinuðu arabisku furstadæmin:
Hæstráðendurnir hafa
náð samkomulagi í bili
EFTIR nýjustu fréttum að dæma hafa furstamir í Sameinuðu arab-
isku furstadæmunum ákveðið, að hæstráðandinn i Sharjah, Súltan-al
Quassimi fái að taka aftur við stjómartaumunum þar. Um tima leit
svo út fyrir, að forseti furstadæmanna sjö, Zayed stjóraandi þess
fjölmennasta, Abu Dhabi væri hallur undir þá hugmynd, að leyfa
bróðurnum og valdaránsmanninum Abdel Azez að taka við. And-
staða sú sem var gegn því hjá ráðamönnum í Dubai virðist hafa
ráðið úrslitum. Á hinn bóginn telja menn liklegt, að Súltan fursti
verði að láta meiri völd i hendur bróðurins fyrir vikið. Einnig hefur
hann nú formlega verið útnefndur krónprins Sharjah.
Zayed forseti - hefur dregið úr völdum hans? Zayed forseti og
Súltan fursti í Sharjah
Shaijah er þriðja fjölmennasta
furstadæmið. Þar búa um 220
þúsund manns og byggja afkomu
á olíuvinnslunni, þótt samdráttur
og verðfall hafi komið óþyrmilega
við á þeim bæ sem annars staðar.
í fréttum um valdaránstilraun Abd-
els var bent á, að ein meginástæðan
fyrir henni hefði verið sú, að honum
hefði blöskrað óstjóm Súltans bróð-
ur á efnahagsmálum. Furstadæmið
væri skuldum vafið og sæi ekki út
úr erfiðleikum sínum. An efa er það
hluti af skýringunni. En væntan-
lega eru þær fleiri.
í fyrsta lagi em bræðravíg og
fjölskyldudeilur í Sameinuðu fursta-
dæmunum algeng. Reyndar hefur
verið friðsamlegt þar furðu lengi.
Þetta landssvæði var áður undir
yfírstjóm Breta, en þegar þeir fóm
á braut frá hinu síðasta í kringum
1970, tóku áhrifamestu ættimar sig
saman og ákváðu að mynda ríkja-
samband það, sem við köllum síðan
Sameinuðu arabisku furstadæmin.
í öndverðu vakti fyrir furstunum
að fá Quatar og Bahrein inn í sam-
bandið, en af því varð ekki.
Fáir vom trúaðir á, að fursta-
dæmin héldust saman. Ekki er vafí
á því, að gríðarlegir olíuhagsmunir
hafa ráðið þar miklu. Samstaða
innan furstaættanna hefur ekki
alltaf verið til fyrirmyndar og áður
og fyrmm þótti það ekki tiltöku-
mál, þótt einhveijir forystumenn
hyrfu sporlaust. Næsti fjölskyldu-
meðlimur tók við og meira var ekki
gert með það.
Nú er ekki raunin sú, að olía sé
í öllum furstadæmunum sjö, þó að
öll hafí þau á einn eða annan hátt
hagnast á olíuauðnum og sums
staðar standi rannsóknir yfír, þar
sem ekki hefur fundizt olía enn. Á
fyrstu ámm olíuævintýrsins í þess-
um heimshluta er ekki nokkur vafí
á því aðíbúamir vom hálft í hvom
að týna áttum vegna þessa skyndi-
lega og auðfengna auðs, sem
þeyttist úr iðmm jarðar. Það vom
sjaldnast arabamir, sem bám hita
og þunga af ránnsóknum og leit
og vinnslu. Erlend fjölþjóðayfírtæki
önnuðust slíkt og vinnulið frá Pa-
kistan og Indlandi sá um erfíði-
svinnuna.En langmest af gróðanum
rann svo til arabanna. Auðvitað
hefur svo smám saman náðzt jafn-
vægi að nokkm , svo að í flestum
furstadæmanna hefur verið reynt
að veita gróðanum að vemlegu leyti
til margvíslegrar uppbyggingar og
til alls konar þjóðþrifamála. Unnið
hefur verið að rannsóknum í sjávar-
útvegi og fískveiðar hafa eflzt
vemlega. Byggðar hafa verið heil-
sugæzlustöðvar og öll læknisþjón-
usta er endurgjaldslaus. Skóla-
byggingar hafa verið reistar og í
opinbemm plöggum jafnan lögð
áherzla á, að allir séu hvattir til
að mennta sig. Konur em með sömu
réttindi og karlar, að minnsta kosti
á pappímum. Nokkur misbrestur
vill verða á að þessari hvatningu
sé fylgt eftir, svo að mikið vantar
upp á að ástandið sé eins glæsilegt
og stjómendur vilja vera láta. Þá
hefur verið leitað að vatni því að
vatnsskortur er geigvænlegur.
Leiddar hafa verið vatnsleiðslur
langar leiðir, meðal annars frá
Saudi Arabiu, en það er langt í land
að það dugi til að auka að gagni
akuryrkju og landbúnað.eins og er
þó á áætlunum allra furstadæ-
manna.
Meðal þess sem keppt hefur ver-
ið að er að ýta undir siglingar og
verzlun og höfnin í Dubai er nú ein
helzta umskipunarhöfn í heimi og
skapar mörgum atvinnu. Síðast en
ekki sízt má nefna ferðamannaiðn-
aðinn. í Abu Dhabi, Dubai og
Shaijah hafa verið byggð hin glæsi-
legustu hótel og þau hafa flest það
upp á að bjóða, sem glatt getur
ferðamenn í leyífum sínum. Agæt
aðstaða er til íþróttaiðkana af öllu
tagi og svo mætti lengi telja. Al-
þjóðaflugvellir em einnig í þremur
áðumefndum furstadæmum.
Shaijah var hvað lengst á veg
komið að þróa þessa grein. Ferða-
menn streymdu til Sharjah bæði
úr öðmm Arabalöndum og hinum
ýmsu heimshomum.Ferðamálaráð
furstadæmisins bjó til slagorð, sem
varð frægt: Brostu - þú ert kominn
til Shaijah.
Þótt fáir staðir í heimi séu jafn
dýrir fyrir ferðamenn og fursta-
dæmin, jókst ferðamannastraumur-
inn jafnt og þétt. Og þar eð Shaijah
hefur ekki nándar nærri eins miklar
olíulindir og Abu Dhabi og Dubai
var unnið að því öllum ámm að
laða þangað enn fleiri ferðamenn.
En fyrir tveimur ámm ákvað Súltan
fursti svo, eftir áskomn frá Fahd,
kóngi í Saudi Arabiu og vini sínum,
að banna allt áfengi í furstadæm-
inu. Vín hafði aðeins verið á
boðstólum á hótelunum. Útlending-
ar búsettir furstadæmunum þurfa
sérstakt leyfi til að kaupa áfengi.
Ekki er ætlunin að innfæddir fái
vín, svo að þetta þótti erlendu gest-
unum augljóslega að þeim einum
beint. Og það kom fljótlega í ljós,
að ferðamenn sættu sig ekki við,
að geta ekki valið hvort þeir vildu
vín eða ekki. Varla er ofmælt að
segja að ferðamannaiðnaðurinn í
Shaijah hefur nánast hmnið síðustu
tvö ár. Gestir leita til hinna fursta-
dæmanna í staðinn og Dubai og
Abu Dhabi hafa notið þess.
Áfengisbannið hefur ekki mælzt
vel fyrir hjá nánum samstarfsmönn-
um furstans, eftir að kom í ljós,
að það myndi hafa alvarlegar eftia-
hagslegar afleiðingar. Og það var
raunar eitt af því sem fréttaský-
rendur töldu, að bróðirin Abdel
Aziz hefði hugsað sér að breyta.
Ásamt með því að hann sakaði
Súltan bróður sinn um að almenn
óreiða væri í efnahagsstjómun
Shaijah.
Eins og komið hefur fram í grein
um Sameinuðu furstadæmin s.l.
vetur em aðeins 20 prósent íbúa
arabar, hinir em frá Austurlöndum
Qær að miklum meirihluta frá Indl-
andi og Pakistan. Stéttamunur er
mikill og skipting auðs ákaflega
ójöfn. Þó hafa allir í sig og á og
vel það, því að undanfarin ár hafa
furstadæmin verið með einar hæstu
meðaltekjur í heimi. Þó að menn
þekki einkum tvö þau stærstu og
áhrifamestu Abu Dhabi og Dubai -
og nú kannski Shaijah, láta furstar
hinnar Qögurra að sér kveða. Þau
heita Ras al Khaimah, Fujairah,
Ajman og Um al Quiwain. Hvert
furstadæmi hefur sína eigin stjóm
og foringja, sem situr í Æðsta ráð-
inu furstanna sjö. Þar eiga allir að
vera jafnir en eins og oft vill verða
em það yfírmenn stærstu furstadæ-
manna, sem hafa verið jafnari en
aðrir.
Þó er niðurstaða mála nú mjög
athyglisverð með hliðsjón af því sem
í upphafi sagði; hafí Zayed forseti
í Abu Dhabi verið því fylgjandi að
Abdel Aziz tæki völdin, bendir það
til að hann hafi orðið að lúta í lægra
haldi fyrir furstanum í Dubai, Ras-
hid, sem studdi Súltan eindregið.
Og Rashid fursti hefur þá greinilega
fengið talið hina á að fylgja sér. í
fljótu bragði séð gæti þetta svo
boðað breytingu á valdahlutföllum
í furstadæmunum. Og athygli
heimsins beinist í auknum mæli að
þeim, ekki aðeins vegna olíu, heldur
og sakir þess að þau em partur af
þeim heimshluta sem hvað eld-
fimastur er nú um stundir.
Olian er undirstaða alls Konur hafa á pappímum jafna aðstöðu
til náms
„Já, vertu nú með upp í
Vatnaskóg..."
Almenna mótið í Vatnaskógi
26.-28. júní
ORÐ GUÐS — UPPSPRETTA GLEÐINNAR
— Kristilegar samkomur alla dagana:
Föstudagur:
Kl. 21.00 Upphafssamkoma
Laugardagur:
Kl. 10.00 Biblíulestur*
Kl. 17.00 Fjölskyldusamkoma
Kl. 20.30 Vitnisburðarsamkoma
Kl. 23.45 Miðnætursamvera
Sunnudagur:
Kl. 10.15 Guðþjónusta*
Kl. 14.00 Kristniboðssamkoma*
Kl. 17.00 Lokasamkoma
*Barnasamkoma á sama tíma
— Einstakt tækifæri til útivistar í fögru umhverfi (göngu-
ferðir, íþróttir, bátsferðir o.fl.)
— Kaffitería, sælgætisverslun og matsala á staðnum.
Stakar máltíðir til sölu. Þeir sem vilja geta haft með
sér nesti.
— Biblían og kristilegar bækur til sölu.
— Mótsgjald, kr. 350,- fyrir 12 ára og eldri (200 kr. fyrir
heimsókn einn dag), er innheimt við komu á staðinn.
Tjaldstæði og önnur notkun á staðnum innifalin.
— Hafið viðlegubúnað og skjólgóðan fatnað meðferðis.
Allir eru hjartanlega
velkomnir á mótið
Samband íslenskra kristniboðsfélaga
Tryggingafélag bindindismanna