Morgunblaðið - 24.06.1987, Side 46
T'K _ Y»pr t’/t'tt. tp 5TTTn/.aTT”T”^H/ rTTa/..TRT/unqnM
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1987
fclk f
fréttum
Listin
sekkur
Þetta sjö metra langa píanó, sem
virðist vera að því komið að
sökkva í sæ, er hluti af mótmæla-
sýningu í Amsterdam, þar sem
hollenskir listamenn sýna, undir
yfirskriftinni „Maður og vinna".
Listamaðurinn, Theo Blankensteijn,
er með þessu verki að mótmæla
skeytingarleysi hollenskra stjóm-
valda gagnvart list og listsköpun
og á það að tákna „drekkingu hol-
lenskrar listar".
Oskarsverð-
launahafinn
opnar
flóttamanna-
sjúkrahús
Leikarinn frá Kampútseu, Haing Ngor, sem
hlaut óskarsverðlaunin í fyrra fyrir leik
sinn í kvikmyndinni „Killing Fields", hefur
ákveðið að setja á stofn sjúkra hús í Thailandi
fyrir flóttamenn frá Kampútseu. Ngor, sem
sjálfur er læknir, flúði til Thailands 1979.
Sjúkrahúsið verður sett upp nálægt landamær-
um Thailands og Kampútseu og er ætlunin
aðsérþjálfa sjúkraliða til að starfa meðal þeirra
250 þúsund flóttamanna sem dveljast í búðum
á landamærum.
Sjúkrahúsið mun, að sögn Ngor, byggja
starfsemi sína eingöngu á fijálsum framlögum
og söfnunum og hafa honum þegar borist sem
nemur sex miljónum króna frá Belgíu. Einnig
hafa ijörutíu læknar boðið fram aðstoð sína
við þjálfun starfsfólks úr hopi flaóttamanna.
Ngor leggur ríka áherslu á að þetta verkefni
sé algerlega ópólitískt og sver af sér öll tengsl
við hvers kyns hagsmunahópa í Kampútseu.
Reuter
Heimsins dýrasti
brúðarkjóll
Þessi demöntum skrýddi brúðar-
kjóll, sem metinn er á 1.8
miljónir Bandaríkjadala, sem sam-
svarar 72 miljónum íslenskra króna,
er áreiðanlega lang dýrasti brúðar-
kjóllinn í heiminum. Það var
japanska leikkonan Yurie Nitani
sem klæddist honum við brúðkaup
sitt og poppsöngvarans Hiromi
Go,16.júní s.l., en ástralska ferða-
málaráðið hélt þeim veglega
brúðkaupsveislu til að vekja athygli
nýgiftra hjóna frá Asíu á landinu
til brúðkaupsferða.
Óskarsverðlauanahafinn, dr. Haing S. Ngor.
Reuter
Leiðrétting
ÆT
Ilausavísu eftir Elías Þórarins-
son á Sveinseyri, sem birtist
hér í Fólki í fréttum sl. fimmtu-
dag, slæddist inn prentvilla sem
breytir dálítið merkingu vísunn-
ar. Þar sem stóð unnfar átti að
vera umfar. Umfar er gamalt
orð yfír planka, eða borðaröð í
súðbirtum báti, en vísan, sem
segir frá smíðaferli báts er rétt
svona:
Eftir að gnoð er afsúðuð
öll að fomum hætti,
sérhvert umfar gæði Guð
giftu sinni og mætti.
Elías er hér með beðinn vel-
virðingar á þessum mistökum.
Reuter
0
Norrænir hótel- og* veitingamenn á Stykkishólmi.
Snæfellsnes:
Norrænir
hótelmenn á ferð
Stykkishólmi
m þessar mundir heldur Nor-
ræna Hótel- og veitingasam-
bandið ársfund sinn á Tslandi.
Sambandið skiptir ársfundum
sínum meðal Norðurlandanna og í
ár varð ísland fyrir valinu. Á föstu-
deginum, 12.júní, stefndu fulltrúar
fundarins á Snæfellsnes, því í sam-
bandi við fundina er venja að fara
í skoðunar- og kynningarferðir.
Þeir skoðuðu hótelið í Stykkishólmi
og dvöldu þar næturlangt og einnig
fóru þeir eyjasund með hraðferðum
Eyjaferða s.f. og Einars Bjamason-
ar. Farið var til Flateyjar og vom
þeir ákaflega heppnir með veður
og létu gestimir óspart í ljós að-
dáun sína á Breiðafirði.
Þijátíu manns, fulltrúar allra
Norðurlandanna, voru í þessarri
ferð. Fréttaritari Morgunblaðsins
átti stutt samtal við þá við hótelið
á Stykkishólmi, þegar þeir bjuggust
til farar til Reykjavíkur. Þeir voru
allir sammála um að þeir hefðu
ekki viljað missa af þessarri ferð.
Þeir sögðust hafa byrjað fundar-
höldin hér á landi á því að ræða
það hvemig veitingarekstur og að-
stæður hans yrðu um næstu
aldamót, bæði hvað snerti starfsfólk
og annað. Komu fram margar hug-