Morgunblaðið - 05.07.1987, Page 62
- f
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
$
>
' íhbbí
■jOt'
Alice við innsiglinguna.
Undur í lisulandi
Franskar hefðardömur á kaffihúsi.
TEXTIOG MYNDIR:
ELISABET JOKULSDOTTIR
Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? Einhverra hluta
vegna spurði ég Alice aldrei þessarar spurningar, sem annars
er svo vinsæl af fullorðnum, þegar börn eiga í hlut.
Alice var svo upptekin við að
vera til og vera lítil og stór. Það
er kannski þess vegna sem ég
veit ekki, hvað hún ætlar að verða
þegar hún er orðin stór.
Castelorizo er pínulítil grísk
eyja upp við strendur Tyrklands.
Þar er bara eitt þorp. Alice er sex
ára gömul stúika sem bjó eitt
sumar með móður sinni á Castel-
orizo. Þær komu frá Frakklandi.
Tereza móðir hennar hafði fundið
sér heimili undir berum himni.
Veggimir voru næstu tré og í stað
malbikaðrar götu fyrir framan
húsið, lá hafið nánast í hlaðvarp-
anum. Þarna var eldhús, setustofa
og svefnherbergi. Stólar og borð
voru gerð úr steinum, sem lágu
þar fyrir tilviljun. A jörðinni lágu
litskrúðug teppi. Alice hafði
einkaherbergi. Það var blátt tjald,
þar sem hún lék sér með leik-
föngin sín, þegar hún vildi fá að
vera í friði. Tereza hafði hins veg-
ar reist sér lítið altari, en hún var
búddhatrúar. Á altarinu voru
blóm og hlutir úr náttúrunni, rey-
kelsi og lítið búddhalíkneski.
Alice átti barnabók um tilurð
búddha, og einn daginn fletti hún
bókinni fyrir mig, meðan hún út-
skýrði söguna á frönsku. Eg er
samt ekki viss um að hún hafi
verið mjög heit í trúnni, en hún
ræddi samt um fyrri líf, eins og
daglegt líf. Hún var til dæmis
viss um, að móðir hennar hefði
verið fugl í fyrra lífí.
Það var alltaf eitthvað að ger-
ast hjá Alice, á þessum stað, þar
sem annars gerðist aldrei neitt.
Alice spilaði tavli, lék byssubófa-
Alice les Búdda.
leik, klifraði um skúturnar í
höfninni eins og köttur, synti og
plottaði með félögum sínum
næstu ískaup. Hún talaði jöfnum
höndum grísku og frönsku og
blandaði líka öllu saman. Hún var
óspör á að kenna mér frönsku en
einu orðin sem hún lærði að segja
á íslensku voru tvíburanöfnin:
Garpur og Jökull. Og fannst ægi-
lega fyndið að bera þau fram.
Alice var eins og lítill fugl sem
lifði á loftinu. Og ís. Hún var yfir-
leitt aldrei klædd öðru en sund-
skýlu. Stundum fékk Tereza
áhyggjur af barninu og setti sig
í uppeldisstellingar. Leitaði hana
uppi, gaf henni jógúrt, þvoði henni
Spilað tavli.
hátt og lágt og greiddi og klæddi
hana í skrautlega kjóla.
Á eftir fóru þær mæðgur út
að borða og höguðu sér eins og
franskar hefðardömur. Á eftir
spilaði Tereza ef til vill á austur-
lenska hljóðfærið sitt, sem hún
gerði bæði til skemmtunar og
notaði í fjáröflunarskyni.
En þó Alice væri hálfgerður
villingur, alla vega að sumra áliti,
átti hún ægilega fína snyrtitösku,
sem hún geymdi í ótrúlegustu
hluti.
Ég hitti Alice á þjóðhátíðardag-
inn, þegar hún var að horfa á
skrúðgönguna og lúðrasveitina.
Þá gaf hún tvær litlar gjafir
úr töskunni sinni. En hvað það
var, er auðvitað leyndarmál.
Oswald leðurskór
með kögri
Kr. 990.-
TOPpffi
*21212
5% staðgreidsluafsláttur
Póstsendum
Stærðir: 35-41.
Litur: Svart, blátt, brúnt.
SKORIÍÍN
VELTUSUNDI 1
Hvaða kostur
er bestur?
st ÆTrr)
margnota rakvélar eru ódýrari en venju-
leg rakvélarblöð! Og hver rakvél dugar jafii-
lengi og eitt rakvélarblað.
The American College in London
og
The American College
for the Applied Arts
Atlanta and Los Angeles
vill þakka
góða þátttöku
sem var við kynningu á skólunum
í Reykjavík.
Við vorum ánægðir með hin ótrúlegu vióbrögð sem
þið sýnduð okkur og var sönn ánægja af að hitta
hvern ogeinn.
Nýlega sendum við í pósti bæklinga til þeirra sem
ekki fengu á kynningunni. Ef þið þarfnist fleiri
upplýsinga þá endilega hafið samband:
The
Amer ican College
in London
100 Marylebone Lane
London W1M 5FR ENGLAND
TEL. (01) 486-1772