Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 1
72 SIÐUR B
2
11
STOFNAÐ 1913
167. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hitabylgjan orðin óbærileg:
Yfir milljón manns
hafa flúið Aþenu
Aþenu, Róm og Madrid, Reuter.
MESTU sumarhitar í manna minnum hafa haft í för með sér dauða
og eyðileggingfu víða í Suður-Evrópu. Þannig hafa líkgrafarar í
Grikklandi mátt vinna dag og nótt að undanfómu við að grafa 700
manns sem talið er að dáið hafi af völdum hitanna þar. í Frakk-
landi börðust 800 slökkviliðsmenn örvæntingarfullri baráttu við að
hemja skógarelda, sem þegar hafa valdið gífiirlegu tjóni í suðustur-
hluta landsins. Er orsök eldanna rakin til hita og þurrka á þessum
slóðum að undanförnu.
Á Suður-Ítalíu hefur nú orðið að
taka upp vatnsskömmtun. Þar er
vitað um 50 manns og þá fyrst og
fremst aldrað fólk, sem látizt hefur
af völdum hitanna. Þar hefur hitinn
verið yfir 40 stig á Celcius 5 daga
í röð.
Gert er ráð fyrir, að hitabylgjan
í Grikklandi, sem nú hefur staðið í
9 daga, haldizt út þessa viku. Víða
hefur verið lýst yfir neyðarástandi.
í Aþenu hefur hitinn komizt jrfír
47 stig. Borgin er nú að miklu leyti
mannlaus, því að yfir ein milljón
borgarbúa hefur þegar yfirgefíð
hana og leitað út til stranda og upp
til fjalla í von um svalara loft. Svo
mikill er hitinn í Aþenu, að jafnvel
kettimir, sem mergð er af í borg-
inni, hafa horfið af götum hennar.
Andstætt þessu hefur kuldi og
vætutíð verið ríkjandi í Norður-
Evrópu. Haft var eftir talsmanni
belgísku veðurstofunnar í gær, að
sólarleysið þar í sumar væri með
eindæmum. Þannig hefðu aldrei
komið jafn fáar sólarstundir þar í
júnímánuði síðan 1887.
í Danmörku er svipaða sögu að
segja. Þar voru sólarstundir í júní
færri en nokkm sinni á þessari öld
og ástandið hefur lítið breytzt í júlí.
Krím-Tatarar í Moskvu:
Oánægðir með fimd
sinn og Gromykos
Moskvu, Reuter.
FULLTRÚAR Krím-Tatara létu
í gær í ljós óánægju með fund
þann, sem þeir áttu sfðdegis með
Andrei Gromyko, forseta Sov-
étríkjanna. Sögðu þeir, að hann
Svisslendingum
hótað heíndum
- framseljiþeir
flugræningjann Har-
iri í hendur Frökkum
Beirút, Reuter.
LÖGREGLUMENN í Beirút tóku
sér stöðu í gær við svissneska
sendiráðið þar í borg vegna hót-
ana í garð Svisslendinga, ef
líbanski fiugræninginn Hussein
Ali Mohamed Hariri yrði fram-
seldur Frökkum.
Hariri myrti franskan mann í
síðustu viku, eftir að hann hafði
rænt þotu frá flugfélaginu Air
Afrique með 163 mönnum um borð.
Það tókst þó að yfirbuga Hariri,
er flugvélin var lent á flugvellinum
í Genf. Var hann síðan handtekinn
af svissnesku lögreglunni.
Óþekktur maður, sem kvaðst
vera talsmaður samtaka, er kalla
sig „Grænu sellumar", hringdi í
fréttastofu í Beirút í gær. Sagði
maðurinn, að Svisslendingar fengju
að gjalda þess, ef þeir framseldu
Hariri í hendur Frökkum.
hefði ekki komið fram með neina
raunhæfa lausn á málum þeirra.
Krím-Tatarar hafa að undan-
fömu hert mjög baráttuna fyrir því
að komast aftur til sinna fomu
heimkynna á Krímskaga. Hafa þeir
staðið fyrir þriggja sólarhringa
mótmælaaðgerðum f Moskvu og
náðu þær hámarki um helgina, er
þeir efndu til sólarhrings langrar
mótmælastöðu á Rauða torginu.
„Við vildum fá afdráttarlaus
svör, en við fengu þau ekki,“ var
haft eftir Sabrie Seutova, blaða-
manni frá Mið-Asíulýðveldinu
Uzbekistan, en hún var í 21 manns
sendinefnd Krím-Tatara, sem gekk
á fund Gromykovs í gær
Annar meðlimur nefndarinnar,
Reshat Dzhemilyov, sagði, að
Krím-Tatarar hefðu vonazt til þess
að málstaður þeirra yrði kannaður
á vinsamlegan hátt af stjómar-
nefnd, sem komið hefði verið á fót
í síðustu viku undir forsæti Gro-
mykos.
Dzhemilov hefur hvað eftir annað
setið í fangelsum í Sovétríkjunum
fyrir baráttu sína fyrir málstað
Tatara. Hann sagði í gær, að Tatar-
ar kynnu á ný að grípa til mikilla
mótmælaaðgerða í grennd við
Rauða torgið, ef enginn árangur
næðist á fundinum með Gromyko.
Tatarar krefjast þess að fá að
snúa aftur til heimalands síns á
Krímskaga, en þaðan voru þeir
neyddir til að flytja burt árið 1944
af Josef Stalin, sem sakaði þá um
samvinnu við innrásarher nazista.
Biðraðimar við ferðaskrifstofumar
lengjast nú dag frá degi og mikill
svartamarkaður með farmiða þrífzt
þar nú vegna þess, að eftirspumin
eftir ferðum til sólarstaða er svo
miklu meiri en framboðið.
Sænska heilbrigðisráðuneytið
varaði í gær ferðamenn á sólar-
ströndum við hættum, sem að þeim
gætu steðjað vegna hitanna.
„Ferðamenn ættu að halda sig inn-
andyra yfír heitasta hluta dagsins
og drekka mikið af vökva en þó
ekki dropa af áfengi,“ sagði í til-
kynningu ráðuneytisins.
í Bretlandi fór hitinn sums staðar
niður í 11 stig á Celcius í gær og
víða rigndi þar án afláts. Talsmaður
veðurstofunnar í London hélt því
fram, að hitabylgjuna í Suður-
Evrópu mætti rekja til heitra vinda,
sem blésu þangað sunnan úr Sa-
hara-eyðimörkinni. „Það er lítil von
til þess, að þeir nái til Bretlands,"
sagði hann.
Reuter
Ungnr ferðalangur baðar sig í
gosbrunni á aðaltorgi Aþenu til
að kæla sig, en í gær komst hit-
inn þar í 47 stig á Celcius.
Reuter
Miklar viðsjár eru með Frökkum og írönum um þessar mundir. Hér sjást tveir menn með vélbyssur
fylgjast með konu með lítið barn i fanginu koma út úr franska sendiráðinu í íran. Baraið er sonur
franska ræðismannsins, Paul Torri, en flytja þurfti drenginn á sjúkrahús til læknismeðferðar.
Qtryggt ástand við Persaflóa:
Ekkert lát á bar-
dögnm á landi
Bahrain, Reuter.
EKKERT lát er nú á bardögum á landi milli írana og íraka þrátt
fyrir áskorun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna til þeirra i síðustu
viku um tafarlaust vopnahlé. Friðsamlegra hefur hins vegar verið
á Persaflóa síðustu daga, enda þótt ástandið þar sé mjög ótryggt
og hætta á að til stórtiðinda dragi hvenær sem er.
Óvíst er með öllu, hve lengi írak-
ar munu bíða með að hefja á ný
loftárásir á olíuskip og olíustöðvar
írana á Persaflóa, en þessar loftár-
ásir hafa verið með áhrifamestu
aðgerðum þeirra í stríðinu við írani.
Iranir segjast aftur á móti því
aðeins ráðast á olíuskip á Persa-
flóa, að írakir verði fyrri til, en þá
muni þeir heldur ekki hika við að
gera árásir á skip annarra landa
eins og Kuwait, sem þeir segja að
hafi stutt íraka í stríðinu.
íranir héldu því fram í gær, að
her þeirra hefði sótt fram og fellt
300 Iraki meðfram miðri víglínunni
milli landanna i gær og eyðilagt
fjölda skriðdreka og annarra her-
vagna. Sögðust íranir hafa beitt
bæði stórskotaliði og herþyrlum í
þessum átökum.
Frakkar hafa ákveðið að horfa
ekki aðgerðalausir á það, sem kann
að gerast á Persaflóa á næstunni.
í gær ákvað franska stjómin, að
flugmóðurskipið Clemenceau, tvær
freigátur og birgðaskip skyldu vera
i viðbragðsstöðu „vegna vaxandi
spennu á alþjóðavettvangi, einkum
á Persaflóa og fyrir botni Miðjarðar-
hafsins." Haft var eftir sérfræðing-
um í gær, að frönsku skipin myndu
sennilega ekki halda inn á Persaflóa
sjálfan, þar sem engir tundurdufla-
slæðarar eru á meðal þeirra.
Bandarísk stjómvöld skýrðu frá
því í gær, að George Shultz, ut-
anríkisráðherra hygðist eiga fund
með Tariq Aziz, utanríkisráðherra
íraks, síðar í þessari viku í von um
að draga úr hættunni á nýjum átök-
um á Persaflóa. Jafnframt var frá
því skýrt, að orrustuskipið Missouri
yrði sent í átt til Persaflóa. Er talið
líklegt, að olíuskipið Bridgeton eigi
að sigla suður Persaflóa sfðar í
þessari viku undir vemd banda-
rískra herskipa. Bridgeton varð
fyrir skemmdum, er það sigldi á
tundurdufl á Persaflóa í síðustu
viku.