Morgunblaðið - 28.07.1987, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
3
4ra dyra - GL - 5 gíra beinskiptur verð kr. 848.000
diesel verð kr. 1.085.000
3ja dyra sjálfskiptur verð kr. 515.000
burðarg. 1,51. á kr. 725.000 burðarg. 2,71. á kr. 895.000
Listasafti íslands:
Æviráðn-
ing for-
stöðu-
manns
aftiumin
Menntamálaráðherra hyggst á
næsta þingi bera fram frumvarp
þar sem æviráðning forstöðu-
manns Listasafns íslands verður
afnumin og í staðinn tekin upp
timabundin ráðning eins og er í
gildi í til dæmis Þjóðleikhúsinu.
Staða forstöðumanns Listasafns
íslands hefur nú verið auglýst í
dagblöðum og Lögbirtingablaðinu
og er skijafrestur umsókna 25.
ágúst nk. í auglýsingunni er tekið
fram að ráðgert sé að setja í stöð-
una til eins árs.
Segir í frétt frá menntamála-
ráðuneytinu að þetta sé í samræmi
við starfsáætlun ríkisstjómarinnar,
þar sem kveðið er á um að æviráðn-
ing embættismanna verði afnumin.
Unnur Jóhanna Brown
• •
Fórst á Oxna-
dalsheiði
STÚLKAN sem lést í bílveltunni
á Öxnadalsheiði síðastliðinn
föstudag hét Unnur Jóhanna
Brown, til heimilis í Skálagerði
5 í Reykjavík. Unnur fæddist 24.
maí 1965. Hún lætur eftir sig
eitt barn.
Banaslys á
V esturlandsvegi
BANASLYS varð á sunnudags-
morgun á Vesturlandsvegi, f
beygjunni við Brúarland í Mos-
fellssveit. Tveir bílar, jeppi og
fólksbifreið, skullu saman með
þeim afleiðingum, að ökumaður
annarrar bifreiðarinnar lét lífið
samstundis. Hann hét Árni Sig-
urður Gunnarsson, til heimilis á
Sundlaugarvegi 10, Reykavík,
fæddur 25. nóvember 1968. Hann
lætur eftir sig unnustu.
Jeppabifreiðin, sem var af Dai-
hatsugerð með G-númeri var á leið
til Reykjavíkur og á móti henni kom
Arni Sigurður Gunnarsson
bifreið af gerðinni Toyota Tercel
með R-númer. Að sögn vitna missti
ökumaður Toyota-bifreiðarinnar
stjóm á bflnum í beygjunni við Brú-
arland og snerist bfllinn á veginum
vegna bleytu. í þá mund skall jeppa-
bifreiðin inn í hlið hinnar. Ökumað-
ur Toyota-bifreiðarinnar lét lífið
samstundis, að því er talið er. Öku-
maður jeppabifreiðarinnar hlaut
minniháttar meiðsl, en hann var í
öryggisbelti.
Bflamir voru báðir á mjög mikl-
um hraða og engin bremsuför sáust,
þannig að áreksturinn hefur verið
geysilega harður. Eftir að bflamir
skullu saman fóm þeir báðir út af
veginum og em gjörónýtir.
Bifreið mannsins sem lést.
Morgunblaðið/Júlíus