Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
8. umferð millisvæðamótsins í Ung-
veijalandi:
Jóhanntapaði
fyrir Adorjan
JÓHANN Hjartarsson tapaði
með svörtu mönnunum fyrir
stórmeistaranum Adorjan frá
Ungverjalandi í 46 leikjum í 8.
umferð millisvæðamótsins í
Ungveijalandi, sem tefld var í
gær, og er í 5.-6. sæti á mótinu
ásamt Englendingnum Nunn
með 5 vinninga. Sovétmaðurinn
Beljavskí er efstur á mótinu
með 5,5 vinninga og frestaða
skák við Svíann Anderson.
Önnur helstu úrslit í 8. umferð
voru þau, að Beljavskí gerði jafn-
tefli við Ljubojevic frá Júgóslavíu,
Englendingurinn Flear vann
Nunn, Milos frá Brasilíu vann
Alan frá Kanada og Portisch frá
Ungveijalandi vann Todorscevic,
sem teflir fyrir Mónakó. Portisch,
Ljubojevic og Milos eru í 2.-4.
sæti með 5,5 vinninga.
I 7. umferð, sem tefld var á
sunnudaginn, gerði Jóhann jafn-
tefli við Anderson, Ljubojevic
vann Alan, Salov og Milos gerðu
jafntefli, Beljavskí vann Tod-
orscevic, Portisch gerði jafntefli
við Flear og Nunn vann Marin.
Níunda umferð verður tefld í
dag og hefur Jóhann hvítt gegn
alþjóðlega skákmeistaranum Mar-
in frá Rúmeníu. Alls verða tefldar
sautján umferðir á mótinu, sem
lýkur 10. ágúst.
Afreiðslustúlkur
Vöruhússins komu
að uppsprengdum
afgreiðslukössum í
gærmorgun. Á
myndinni er Ásdís
Þórisdóttir.
Selfoss:
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Brotist inn í Vöruhús
Kaupfélags Arnesinga
Selfossi.
BROTIST var inn í Vöruhús
Kaupfélags Árnesinga aðfarar-
VEÐUR
í DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kf. 16.15 i gær|
VEÐURHORFUR I DAG, 28.07.87
YFIRLIT á hádagi í gær: Fyrir austan land er hæðarhryggur á
hægri hreyfingu austur. Á sunnanveröu Grænlandshafi er 1007
millibara djúp lægð sem þokast norðaustur.
SPÁ: Austan gola og súld með suðaustur- og austurströndinni.
Annars staðar norðan gola með smáskúrum norðanlands en lóttir
smám saman til sunnan lands og vestan. Hiti á bilinu 7 til 11 stig
nyrðra en 10 til 15 stig syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
MIÐVIKUDAGUR: Hæg norðvestlæg átt. Bjart veður sunnan lands
og austan og hiti á bilinu 12 til 17 stig. Skýjað í öðrum landshlutum
og hiti 8 til 12 stig.
FIMMTUDAGUR: Suðvestlæg átt. Rigning um sunnan- og vestan-
vert landið og hiti á bilinu 9 til 12 stig. Þurrt veður og hlýnandi
norðaustanlands.
TAKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CO Mistur
—|- Skafrenningur
jT Þrumuveður
V-t t 1
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hltl veður
Akureyri 11 skýjað
Reykjavík 11 rigning
Bergen 16 Iðttskýjaö
Helslnkl 16 skýjað
Jan Mayen 6 skýjað
Kaupmannah. 14 skýjað
Narssarsauaq 10 skýjað
Nuuk S þokumóða
Osló 20 úrkomafgr.
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 30 heiðskfrt
Amsterdam 16 alskýjað
Aþena 36 helðskfrt
Barcelona 24 léttskýjað
Berlfn 17 rlgnlng
Chicago 21 alskýjað
Feneyjar 23 léttskýjað
Frankfurt 13 rignlng
Glasgow 17 skýjað
Hamborg 12 súld
Las Palmas 25 mistur
London 21 skýjað
Los Angeles 17 heiðskfrt
Lúxemborg 14 rigning
Madríd 24 helðskfrt
Malaga 26 léttskýjað
Mallorca Miami 26 alskýjað vantar
Montraal 18 skúr
NewYork 23 heiöskfrt
París 17 rignlng
Róm 28 léttskýjað
Vfn 19 skýjað
Washlngton 27 léttskýjað
Winnipeg 17 hálfskýjað
nótt mánudagsins. Afgreiðslu-
kassar voru brotnir upp og þaðan
teknir peningar. Einnig var brot-
ist inn í skrifstofii vöruhússtjóra
og leitað peninga.
Innbrotsþjófamir fóru inn um
þakglugga og virtust hafa gengið
hreint til verks að leita peninga.
Allir afgreiðslukassar voru spenntir
upp og þaðan tekin skiptimynt, um
tvö hundruð þúsund. Að öðru leyti
var aðkoman góð og ekki að sjá
að neinum vörum væri stolið. Allt
var á rúi og stúi á skrifstofu vöru-
hússtjóra. Þar var rammgerður
peningaskápur sem þjófamir kom-
ust ekki í.
Innbrotsþjófamir óku á brott í
hvítri sendibifreið X 1075 af Dats-
un- gerð sem stóð inni í vöruaf-
greiðslu hússins. Bifreiðin fannst
við Austurberg í Breiðholti eftir
hádegi í gær.
• Sig. Jóns.
Pétur Georgsson
netagerðarmeist-
ari látinn
Akranesi
PÉTUR Georgsson netagerðar-
meistari á Akranesi lést síðastlið-
inn fostudag, 56 ára að aldri.
Pétur fæddist á Akranesi 5. júní
1931, sonur hjónanna Georgs Sig-
urðssonar sjómanns frá Melstað á
Akranesi og Vilborgar Ólafsdóttur.
Pétur starfaði sem netagerðar-
maður og rak um langt árabil
Nótastöðina hf á Akranesi í félagi
við aðra, en var aðaleigandi hennar
nú hin síðari ár. Pétur var á yngri
árum landskunnur knattspymu-
maður og var lykilleikmaður í hinu
kunna „gullaldarliði" Skagamanna.
Hann lék meðal annars nokkra
landsleiki fyrir ísland á þeim árum.
Eftirlifandi eiginkona Péturs er
Emilía Jónsdóttir, dóttir Ragnheið-
ar Þórðardóttur og Jóns Ámasonar,
fyrrum alþingismanns. Þau eignuð-
ust fjórar dætur.
J.G.
Ásgeir Blöndal
Magnússon látinn
ÁSGEIR Blöndal Magnússon
fyrrverandi forstöðumaður
Orðabókar Háskólans lést síðast-
liðinn laugardag, 78 ára að aldri.
Ásgeir var fæddur 2. nóvember
1909 að Tungu í Kúluþorpi í Auð-
kúluhreppi í Amarfirði. Hann var
sonur hjónanna Magnúsar Sigurðs-
sonar verkamanns og Lovísu
Halldóm Friðriksdóttur ljósmóður.
Ásgeir Blöndal Magnússon lauk
cand. mag. prófi í íslenskum fræð-
um frá Háskóla íslands árið 1945
og var fyrsti fastráðni starfsmaður
Orðabókar Háskólans. Þar starfaði
hann sem sérfræðingur frá 1947
til ársloka 1979 og var forstöðu-
maður hennar síðustu tvö árin. Þá
lét hann af störfum fyrir aldurs
sakir.
Ásgeir var um hríð í yfirkjör-
stjóm í Kópavogi, í stjóm Bóka-
safns Kópavogs og í miðstjóm
Sósíalistaflokksins og Alþýðu-
bandalagsins.- Hann sá lengi um
þættina Daglegt mál og á síðari
árum vann hann að orðsifjabók sem
út kemur á næsta ári í útgáfu Orða-
bókar Háskólans. Af ritum sem
eftir Ásgeir Iiggja em Marxisminn,
nokkur fmmdrög, Reykjavík 1937,
og ýmsar ritgerðir um málfræðileg
efni í tímaritum, innlendum og er-
lendum og í afmælisritum.
Ásgeir var tvígiftur. Fyrri kona
hans var Sigríður Sigurhjartardótt-
ir, en hún lést árið 1951. Þau
eignuðust þijá syni. Síðari kona
hans var Njóla Jonsdóttir og lifír
hún mann sinn.
ilctUliltÍIIÍÍilllltÍlMttillKllKli
IIIII