Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 7
7
«>r r.itJI, pft miViAammm dTfiA TPMTinnoM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
AL
EFNIS
KVÖLD
20:50
KALIFORNIA
HEILLAR
(California Girls). Ungur bílavið-
gerðarmaður frá NewJersey
ákveðurað freista gæfunnari
hinni sólriku Kaliforníu. Ævin-
týrin, sem hann lendiri, fara
fram úrhans björtustu vonum.
niiiiium
22:20
Flmmtudagur
LORETTA LYNN
Þáttur þessi er gerður til heiðurs
kántrisöngkonunni Lorettu
Lynn. i honum koma fram m.a.
Crystal Gayle, Sissy Spacek og
fjölmargir aðrir leikarar og
söngvarar.
A uglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lyklllnn fserð
þúhjá
Heimilistækjum
<ö>
HeímillstæKiDf
S:62 12 15
Jóhann Hjálmars-
son blaðafulltrúi
Pósts og síma:
Tafir er-
lendis seinka
stækkun
farsíma-
kerfísins
FARSÍMAKERFIÐ er ekki
sprungið, að okkar mati, þó álag-
ið á það sé vissulega mikið. Við
vinnum að þvi þessa stundina að
fjölga rásum og stöðvum en tafir
hafa orðið á sendingu efiiis frá
framleiðendum og seinkað verk-
inu,“ sagði Jóhann Hjálmarsson,
blaðafulltrúi Pósts og síma, þeg-
ar Morgunblaðið spurði hann
hvort sjálfvirka farsímakerfið
væri sprungið þar sem mjög er-
fitt er orðið að ná sambandi við
farsíma.
„Kerfið var hundrað rásir þegar
það var sett á laggimar í júlí á
síðasta ári en hefur sfðan verið
stækkað um 50% og er nú 150 rás-
ir á 31 stöð. Kerfið í Reykjavík
hefur, svo dæmi sé tekið, verið
fimmfaldað frá upphafi. Ef áætlan-
ir okkar standast verður kerfið
stækkað um 100 rásir til viðbótar
í haust og verða þá alls 250 rásir
sem dreifast á 40 stöðvar. Ástandið
ætti að lagast þegar þær komast í
gagnið." Þegar talað er úr venjuleg-
um síma við farsíma er ein rás í
notkun en ef talað er innan farsfma-
kerfisins þarf tvær rásir til.
Jóhann sagði að þegar hefði ver-
ið úthlutað 4200 farsímanúmerum
og þeim flölgaði stöðugt. Mikil sala
var á farsímum rétt áður en sölu-
skattur var lagður á tækin en svo
virtist sem ekkert hefði dregið úr
sölu á símum þó verð þeirra hefði
hækkað um 25%. íslendingar eru
nú í þriðja sæti, hlutfallslega, í
farsfmaeign í heiminum og jafngild-
ir sú fjölgun notenda, sem orðið
hefur á einu ári, því sem hefur
gerst á þremur til fímm árum hjá
öðrum þjóðum. „Við bjuggumst ein-
faldlega ekki við svona mikilli
fjölgun,“ sagði Jóhann.
„Ef gert er ráð fyrir hagstæðri
dreifingu símnotenda ættu 130-140
rásir að duga fyrir þennan fjölda
sfma sem nú eru í notkun. Vanda-
málið er að notendur færa sig mikið
milli svæða og margar af minni
stöðvunum eru ekki með nema 2-4
rásir. í Reykjavík hafa verið bilanir
á undanfömum vikum og þvf óneit-
anlega orðið erfiðara fyrir vikið en
ella að ná rás á annatíma."
Morgunblaðið/Júlfu8
Eldur laus í
sjónvarpstæki
TÖLUVERÐAR skemmdir urðu
vegna bruna í fbúðarhúsi að Linda-
braut 26 á Seltjamaraesi sfðastUð-
ið laugardagskvöld. Eldurinn
kviknaði út frá sjónvarpstæki.
Slökkviliðið var kvatt út kl. 18.51
og þegar það kom a'staðinn lagði
mikinn reykjarmökk úr glugga á
stofuhæð. Reykkafarar fóra inn í
húsið og logaði eldur ! sjónvarpstæki
heimilisins þegar að var komið. Greið-
lega gekk að ráða niðuriögum eldsins
og lauk slökkvistarfi kl. 19.25.
Miklar skemmdir urðu á innbúi
hússins af sóti og hita og einnig
munu hafa orðið nokkrar skemmdir
vegna slökkvistarfa.