Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 16
AUK M. 110.20.SlA
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
Við fljúgum til úflanda
yfir 100 sinnum í hveni viku
-sumariðút!*
3 x BALTIMORE/WASHINGTON
APEX kr. 25.270 (15/8-14/10)
2xBOSTON
APEX kr. 23.840 (15/8-14/10)
5xCHICAGO
APEX kr. 26.950 (15/8-14/10)
7xNEWYORK
APEX kr. 23.840 (15/8-14/10)
3xORLANDO
APEX kr. 30.990 (15/8-14/10)
3xBERGEN
PEXkr. 15.850
3xFÆREYJAR
PEXkr. 11.530
3xGAUTABORG
PEXkr. 17.200
17 x KAUPMANNAHOFN
PEXkr. 17.010
4xNARSSARSUAK
Kr. 14.910
8xOSLO
PEXkr. 15.850
7 xSTOKKHOLMUR
PEX kr. 19.820
2xFRANKFURT
PEX kr. 15.190 (1/9-31/10)
20xLUXEMBORG
PEXkr. 14.190
/
2xPARIS
PEX kr. 20.630
2xSALZBURG
APEXkr. 18.670
3xGLASGOW
PEXkr. 13.370
* Miðað er við háannatíma, júní, júlí, ágúst.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
8xLONDON
FLUOLEIÐIR
PEXkr. 15.450
FUJGLEIDIR
---fyrír þíg--
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25100
Ejjaíár
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Lucy Irvine: Castaway
Útg. Penguin 1986
ENN ein útgáfa hefur verið send
á markaðinn af bók Lucy Irvine um
veru hennar og eiginmanns hennar,
G. á eyðieynni Tuin sem er norður
af Torressundi og milli Norður Ástr-
alíu og Nýju Guineu.
Þetta er fyrsta bók höfundar, en
í þessum dálkum var fyrir nokkru
getið nýjustu bókar hennar
„Runaway." Lucy Irvine lætur sem
sagt það rætast í þessari bók, sem
virðist blunda í flestum eða gera
vart við sig einhvem tíma á ævinni;
að hverfa aftur til náttúrunnar. Að
ekki sé nú minnzt á að búa að
hætti Róbinssons Krúsó á eyðiey.
Upphaf þessa var að hún sá aug-
lýsingu í blaði, þar sem rithöfundur
falaðist eftir eiginkonu í ár til að
vera með sér á eyðiey.Og hún stóðst
ekki freistinguna og eftir talsverðan
undirbúning og athuganir halda þau
„hjónin“ til Tuin. Þau hafa með sér
takmarkaðar birgðir af vistum, því
að það er meðal annars ætlunin að
reyna að rækta grænmeti, lifa á
landinu, veiða í soðið og kannski
skjóta sér í matinn.
Þegar þau eru orðin ein á eynni,
verður Lucy að horfast í augu við
ótal margt, sem hún hafði enga
grein gert sér fyrirfram, þrátt fyr-
ir, að það sé fjarri því, að hún hafi
anað út í þetta í algeru hugsunar-
leysi. Hver er eiginlega þessi maður,
sem hún ætlar nú að vera sam-
vistum við í þessu kynlega umhverfi
tuttugu og fjóra tíma á sólarhring
í heilt ár. Samskipti þeirra verða
enda ákaflega flókin og umhverfið
er ekki bara ævintýri, hvarvetna
leynast ógnir, sem missa ansi mikið
af ævintýraljómanum, þegar blák-
öld alvaran er tekin við.
Lucy Irvine byggir töluvert. á
dagbókum sínum og birtir úr þeim
nokkra kafla. Af þeim má líka sjá,
að jafnskjótt og eyjadvölinni er lok-
ið, fer hún að sjá þennan tíma í
öðru ljósi. Ekki þar með sagt að
hún gerist rómantískari, kannski
Úarri því. En hún áttar sig á mörgu
því, sem varð henni og sambýlis-
manni hennar tilefni gleði, hræðslu,
haturs og vanmáttar þann tíma sem
þau voru á eyjunni. Og skildu ekki
þá. Eða ef þau skildu það voru þau
ekki alltaf fær um að átta sig á
mikilvægi þess.
Þáu eru samt ekki ein í heimin-
um, það er fjöldi annarra smáeyja
þama í grenndinni og þau kynnast
eyjaskeggjum. Kynnast þeim þó á
gerólíkan hátt en ef hefðu þau rétt
rekið inn nefið sem túristar. Þau
eru partur af ákveðnu samfélagi
og samt eru þau í senn tvö og ein.
Þrátt fyrir mikla erfiðleika í sam-
búðinni og hvers kyns angur og
stríð tekst með þeim náið, klúðrað
og furðulegt ástarsamband. Sam-
band sem á sér að vísu enga
framtíð, eftir að árið er liðið, en
skiptir þau áreiðanlega máli alla
daga upp frá því. Stórgóð bók sem
slík. Og varpar svo einnig ljósi á
skrif Lucy Irvine í hinni bókinni
hennar „Runaway."