Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
17
Tölvuháskóli VI
eftir Þorvarð
Elíasson
Þann 22. júlí sl. birtist grein í
Mbl. eftir Jón Gunnarsson, þar sem
fram eru settar ýmsar spumingar
varðandi nýstofnaðan Tölvuháskóla
Verzlunarskóla íslands. Greinin er
of löng til þess að hægt sé að svara
öllu sem þar kemur fram og ástæða
væri til að svara, en hér á eftir eru
dregin fram meginatriði í vangavelt-
um Jóns og reynt að svara hveiju
þeirra fyrir sig.
1. Er Tölvuháskóli
Verzlunarskóla Is-
lands háskóli?
Þessan spumingu verður að svara
játandi. f lögum nr. 55/21. maí 1974
um skólakerfi segir að skólakerfi
landsins skiptist í 3 stig: skyldun-
ámsstig, framhaldsskólastig og
háskólastig. Tölvuháskólinn mun
taka inn stúdenta og því er um að
ræða nám á háskólastigi. Skólar sem
veita nám á háskólastigi hljóta að
mega kallast háskólar, enda er starf-
andi hér á landi Kennaraháskóli og
víða um lönd starfa tækniháskólar,
verslunarháskólar o.s.frv.
2. Undirbúningur
hraður og lítil
opinber umræða
Ef ég skil Jón Gunnarsson rétt
þykir honum ámælisvert hversu und-
irbúningur að stofnun Tölvuháskól-
ans hefur gengið hratt fyrir sig en
opinber umræða verið lítil. Undirrit-
aður telur hröð vinnubrögð kost en
ekki galla og líklegri til að skila
vönduðum málatilbúnaði, en ef vinn-
an veltist milli margra nefnda, ráða
og stofnana.
Opinber umræða er ágæt, enda
var um mál þetta fjallað opinber-
lega, m.a. á opinni ráðstefnu sem
haldin var í vor. Frekari umræðu
var ekki þörf þar sem þeir sem um
málið fjölluðu voru samþykkir stofn-
un skólans.
3. Má Tölvuháskólinn
veita BS-gráðu?
Undirritaður fær ekki séð að Há-
skóli íslands eigi einkarétt á gráðu-
veitingu, enda hefur nú þegar verið
stofnaður annar háskóli, þ.e. Kenn-
araháskóli íslands, sem veitir gráðu.
Það sem máli skiptir er ekki hvort
Tölvuháskóli VÍ eða Háskóli fslands
veiti útskrifuðum nemendum gráðu,
heldur hvort gerðar séu fullnægjandi
kröfur til menntunar þeirra nemenda
sem gráðuna fá.
Skólanefnd VÍ hefur lýst vilja
sínum til þess að auka námið upp í
BS-gráðu en alls ekkert hefur verið
um efni þess viðbótamáms rætt né
tímalengd, að því undanskildu að
ljóst þykir að tveggja ára námstími
að loknu stúdentsprófí sé lágmarks-
tími og 3ja ára nám hámarkstími.
Það liggur ljóst fyrir að ef veita á
slíka prófgráðu, þá verður fyrst að
fá hana viðurkennda af mennta-
málaráðuneytinu og helst einnig af
Háskóla fslands, en vandséð er
hvaða tilgangi greinar í dagblöðum,
um gæði BS-náms sem ekki er orðið
til og enginn veit hvernig verður,
geti þjónað.
4. Er námsefini Tölvu-
háskólans ekki
kennt við Háskóla
Islands? Er tvíverkn-
aður réttlætanlegnr?
Að sjálfsögðu verður margt það
sem nú er kennt við Háskóla Islands
Þorvarður Elíasson
kennt í Tölvuháskólanum og ef það
er tvíverknaður að kenna sömu eða
svipaða námsgrein í tveimur skólum
þá er um tvíverknað að ræða. Að
hve miklu leyti námið verður eins í
þessum tveimur háskólum og að hve
miklu leyti ólíkt er þó ekki hægt að
ræða frekar fyrr en kennslustjóri
hefur verið ráðinn og námið fullmót-
að. Rétt er að benda á að Tölvuhá-
skólinn nefnir námsbraut sína
tölvufræði, en Háskóli íslands hefur
fram að þessu kallað nám sitt tölvun-
arfræði þannig að ekki þarf að villast
á þessum tveimur ólíku námsbraut-
um. Hvað tvíverknaðinn varðar þá
er það nú svo að um allan hinn vest-
ræna heim eru fyrirtæki, stofnanir
og skólar að keppa hvert við annað.
Að einokun sé eðlileg, æskileg eða
hagkvæm, því trúir varla nokkur
maður lengur, ekki einu sinni í aust-
antjaldslöndunum. Það liggur enda
ljóst fyrir að Verzlunarskóli íslands
mun ekki fá meira fé til reksturs
síns, en sambærilegt nám myndi
kosta ríkissjóð ef nemendumir
stunduðu það í öðrum háskóla.
5. Erþörffyrir
Tölvuháskóla?
Það hefur komið mjög skýrt fram
hjá atvinnurekendum, nemendum
framhaldsskóla og tölvufræðingum
sem leitað hefur verið til að mikil
þörf sé fyrir það nám sem nú er
verið að stofna til. Þær íjölmörgu
fyrirspumir um kennslu og námsvist
sem stöðugt berast benda til að rétt
mat hafi hér verið á lagt og að mik-
il þörf sé fyriri Tölvuháskóla VÍ.
6. Er Verzlunarskóla
*
Islands treystandi til
að ráða háskóla-
kennara og hafa það
sjálfstæði sem hann
nú hefur?
Jón Gunnarsson virðist _ mjög
undrandi á að Verzlunarskóli íslands
skuli vera sjálfstæð stofnun, sem
ráði málum sínum sjálf, og með öðr-
um hætti en Háskóli íslands, og
spyr hvort menntamájaráðuneytið
treysti Verzlunarskóla íslands stór-
um betur til að ráða kennara en
Háskóla íslands. Sá misskilningur
kemur fram hjá Jóni að hann telur
að verið sé að auglýsa eftir 12 kenn-
umm. Hið rétta er að að verið er
að auglýsa eftir kennumm til að
kenna 12 námsgreinar. Að sjálf-
sögðu gæti það gerst að til þess
yrðu ráðnir 12 kennarar, en ekki er
það líklegt.
Þá kemur einnig fram sá misskiln-
inguur að engar kröfur verði gerðar
til kennara um háskólamenntun. Að
þess er ekki getið í auglýsingunni
stafar einfaldlega af því að ekki var
talin þörf á að telja upp faglegar
kröfur sem gera á til væntanlegra
kennara. Verzlunarskóli íslands ger-
ir almennt þá kröfu til kennara sinna
að þeir hafi BA- Eða BS-gráðu eða
meiri menntun, svo sem allir sem
þekkja til skólamála vita. Hvað varð-
ar sjálfsstjóm Verzlunarskóla fs-
lands er rétt að fram komi að
skólanefnd og skólastjóri hafa frá
upphafi ráðið alla kennara skólans
og greitt þeim laun. Fjárframlög til
skólans em til ráðstöfunar fyrir
skólanefnd til greiðslu reksturs-
kostnaðar og em laun aðeins einn
hluti þess kostnaðar, þó sá hluti sé
að vísu stór. Þyki einhveijum staða
Verzlunarskólans að þessu leyti betri
en staða Háskóla íslands, væri eðli-
legast að hann beitti sér fyrir að
HI fengi aukna sjálfstjóm.
7. „Deskiliing"
Jón Gunnarsson notar enska orðið
deskilling í grein sinni en vill hvorki
þýða það á íslensku né segja af
hveiju honum kemur það orð í hug.
Undirrituðum kemur í hug að fyrir
45 ámm þegar Verzlunarskóli ís-
lands fékk leyfi til að útskrifa
stúdenta vom haldnir hávaðasamir
fundir þar sem mótmæli vom sam-
þykkt og notuð vom orð eins og
afmenntun. Ýmsir mætir menn létu
þá frá sér fara í ræðustól yfirlýsing-
ar sem þeir nú iðrast. Hinn endanlegi
dómur um allt skólastarf er dómur
reynslunnar og kenningar og hug-
myndir háskólamanna jafnt sem
annarra verða að lúta þeim dómi.
Lokaorð
Margir háskólamenn hafa stutt
stofnun Tölvuháskóla VÍ og eiga
þakkir skildar fyrir framlag sitt. Það
er ekki hvað síst vegna þeirrar skoð-
unar stjómenda Háskóla íslands að
þörf sé fyrir stutt nám á háskóla-
stigi utan Háskóla íslands að
Tölvuskóli VÍ hefur fengið svo góðan
hljómgmnn sem raun ber vitni, enda
væntir skólastjóm Verzlunarskóla
íslands góðrar samvinnu og leið-
sagnar þaðan, í málum þar sem
samráðs er þörf.
Höfundur er skólastjóri Verzlun-
arskóla íslands.
TIL EYJA UHIIVERSLUNARMANNAHELGINA
Samfelld skemmtidagskrá frá föstudegi til mánudags
Miðaverð kr. 2.500.-
★
★
★
★
★
★
★
★
★
Grelfarnlr
Halll og Laddl
Hljómsvelt Magnúsar Kjartanssonar
Pálmi Gunnarsson
Björgvln Halldórason
Eymenn
Magnús Ólafsson
Flosl Ólafsson
Jóhannes Krlstjónsson fró Ingjaldssandl
★
★
★
★
★
★
★
★
Hjörtur Mór Benedlktsson eftlrherma
Wolfman Jack og Stjarnan, Guðmundur Rúnar
Brúöubílllnn
Knattspyrna: íslenska ungllngalandsllölö, ÍBV
BJargslg
Flugeldasýnlng
Brenna
Og flelra og flelra og flelra og flelra og flelra
Midasölustadir á fasta landinu:
Grindavik................................................Fraktarinn, c/o Björn Brigisson
Reykjavik..............................................................B.S.I, c/oGunnar
Hvolsvöllur............................................................Björk, c/o Finnur
Hella...............................................Umboðsskrifstofan, c/o Aðalheiður
Selfoss..................................................Se'rleyfisbilar Selfoss, c/o Þörir
Njarðvik.........................................Steindór Sigurðsson se'rl.- og hópferðir.
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi