Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
21
Rógburður og rannsóknir
eftir Alfreð Árnason
Það var ætlun höfundar þessa
greinarkoms að forðast að leggja
orð í belg í þær mjög svo tilfinninga-
skotnu umræður, sem prýtt hafa
síður dagblaða að undanfömu, þeg-
ar rætt hefur verið um dýr þau er
hvalir nefnast.
Um þessi dýr er allt of lítið vitað
og flestir sammála um að auka
þurfi þekkingu okkar á þeim. Á
þetta við um líffræði þeirra al-
mennt, en þekking er því nauðsyn-
legri þar sem þetta era nytjastofnar
ýmissa þjóða.
Það var vegna áhuga á tíðni og
gerð vissra prótínerfðamarka, sem
höfundur hóf rannsóknir árið 1971
á blóði og síðar öðram vefjum hvala,
sem hér vora veiddir. Sú aðferð að
beita erfðamarkatækni til rann-
sókna á á einstaklingum, fjölskyld-
um og hópum manna og annarra
dýra er viðurkennd og útbreidd að-
ferð.
Það var dr. Úlfur Ámason, þekkt-
ur hvalvísindamaður, sem kom á
þessu sambandi milli hvala og höf-
undar, sem enn endist og hefur
áhugi á verkefninu aukist með
auknum upplýsingum.
Það þarf nefnilega þekkingu til
að spyija réttra spuminga og átta
sig á hversu lítið maður veit. Það er
í anda þess, sem höfundur hefur
stundað rannsóknir á umræddum
dýram og haft umsjón með rann-
sóknum annarra líffræðinga á sama
efni, auka samvinnu og sambands
við rannsóknarmenn erlendis, sem
í viðkomandi löndum era kallaðir
vísindamenn, án gæsalappa eða
háðsmerkis og fag þeirra kinnroða-
laust kölluð vísindi, og hafa líffræð-
ingar og fag þeirra verið talin í
þeim flokki.
Þykir það frekar heiður en hitt
að vera í þessum hópi. Nú bregður
svo einkennilega við, að 21 „líffræð-
ingur" sér sig knúinn til að lýsa því
yfir, að rangt sé að kenna núver-
andi rannsóknarveiðar við vísindi
(Morgunblaðið 23. júlí 1987, bls.
2). Þar með era þær rannsóknir, sem
höfundur og félagar hans hafa
stundað og stunda, ekki vísindi.
Væntanlega vegna þess, að þau
sýni sem rannsökuð era koma úr
dauðum hvölum, jafnvel þó um-
ræddir vefir séu enn sprelllifandi.
Ef unnt hefði verið að ná sömu sýn-
um úr lifandi hvölum væra þetta
væntanlega vísindi og hefði jafnvel
komið hrós fyrir (sbr. hvalatalning-
ar).
Þama er um augljósan tvískinn-
ungshátt að ræða.
Sá tími, sem þessir líffræðingar,
21 að tölu, velja til birtingar á áskor-
un sinni, er bersýnilega valin til að
spilla fyrir samninganefnd okkar
sem boðuð var til Bandaríkjanna og
er því eins og hnífstunga í bakið,
ómakleg með öllu og vægast sagt
einkennileg „vísindaaðferð" til að
auka þekkingu á hvölum.
Væntanlega era líffræðingar
sammála um, að við þurfum að vita
meira um hvali, ekki bara fjölda
þeirra, heldur hvert þeir ferðast,
hver er viðkoma þeirra, úr hverju
þeir deyja, hvemig er lífsstarfsemi
þeirra háttað o.s.frv. Um sum þess-
ara atriða má fá upplýsingar án
þess að veiða þá, önnur ekki. Þeir
sem era á móti hvalveiðum, af hvaða
hvötum sem það er, vilja því tak-
markaða þekkingaröflun hvað
varðar þessi dýr. Þetta kann að
vera skýringin á því, hve fáir
íslenskir vísindamenn (án gæsa-
lappa) hafa sinnt hvalrannsóknum,
þrátt fyrir aðstöðu hérlendis, sem
ekki er að finna annars staðar í
heiminum. Hefði þessu verið betur
sinnt vissum við meira í dag. Áhuga-
leysi fslenskra rannsóknarmanna á
líffræði þessara dýra er í raun óskilj-
anleg og er það til vansa fyrir
Háskóla íslands að hafa ekki haft
forystu í þessum rannsóknum á liðn-
um áram.
Rannsóknir kosta oft mikið fé og
er erfitt að afla þess. Þetta er ein
aðalástæðan fyrir því hve hægt
þekkingaröflun gengur. Það tíðkast
víða erlendis, að fyrirtæki styrki
Enn minni fyrirhöfn
að greiða orkureikninginn
/ffepnum V/8A!
Nú býður Rafmagnsveita Reykjavíkur
þér nýja, mjög þægilega leið til að
greiða orkureikninginn. t>ú getur látið
taka reglulega út af VISA-reikningnum
þínum fyrir orkugjaldinu, án alls auka-
kostnaðar. Pannig losnar þú við allar
rukkanir, færð einungis sent uppgjör og
greiðsluáætlun einu sinni á ári.
Með þessari tilhögun, sem er nýjung í
heiminum, sparar þú þér umstang og
hugsanlega talsverða peninga því að
það er dýrt rafrnagnið sem þú dregur
að borga. Jafhframt ertu laus við áhyggj-
ur af ógreiddum reikningum og dráttar-
vöxtum.
Hafðu samband við Katrínu Sigur-
jónsdóttur eða Guðrúnu Björgvinsdótt-
ur í síma 68-62-22. Þú gefur upp núm-
erið á VISA-kortinu þínu og málið er
afgreitt!
Láttu orkureikninginn
hafa forgang — sjálfkrafa!
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVIKUR
SUDURLANDSBRAUT 34 SIMI6862 22
„Verði þessum rannsókn-
um hætt nú, þá kemur
eyða í þann feril, sem við
höfum verið að athuga og
myndi það spilla fyrir
réttum ályktunum."
rannsóknir, eða kosti þær algjör-
lega, þó þær fari fram við háskóla
eða rannsóknarstofnanir hins opin-
bera. Háskóli íslands hefur það á
stefnuskrá sinni að taka upp nánara
samband við atvinnuvegina og ber
að fagna því. Það er í þessum anda
sem Hafrannsóknastofnun og Hval-
ur hf. gerðu rannsóknasamning.
Það er sá samningur sem gerir
núverandi hvalrannsóknir möguleg-
ar. Stóram hluta fjárins er varið til
rannsókna á lifandi hvölum og efar
höfundur, að þær væra mögulegar
án þess.
Rannsóknir þær, sem undirritað-
ur stundar og stýrir, er aðeins hægt
að framkvæma með veiðum. Þrátt
fyrir það hefur Vísindanefnd Hval-
veiðiráðsins mælt með þeim, fyrst
1973 og aftur 1984. Var þetta örv-
un til frekari rannsókna.
Auðvitað væri æskilegt að geta
framkvæmt allar nauðsynlegar at-
huganir án veiða, en það er ekki
framkvæmanlegt með þeirri tækni
sem við höfum í dag.
Verði þessum rannsóknum hætt
nú, þá kemur eyða í þann feril, sem
við höfum verið að athuga og myndi
það spilla fyrir réttum ályktunum.
Það er höfundi til efs að vanþekk-
ing sé mönnum og hvölum til góðs.
Eins og sagði S upphafi þessa
greinarkoms, þá var ætlun höfundar
að forðast að sogast inn í þær til-
finningalegu umræður, er einkennt
hafa mörg skrif um hvali að undanf-
ömu.
Þessum línum er einungis ætlað
að mótmæla þeirri fullyrðingu, að
rannsóknir höfundar og samstarfs-
manna hans séu ekki vísindi. Er
þessari umræðu lokið af hálfu höf-
undar.
Höfundur er doktor í erfðamarka-
fræði og deildarstjórí erfðarann-
sóknadeiidar Blóðbankans.
>#
Dr. Alfreð Arnason
ARGUS/SÍA