Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
23
Siglufjörður:
Gatnagerðar-
framkvæmdir
Siglufírði.
ÓVENJU mikið hefur verið um
gatnagarðarframkvæmdir á
SigluSrði í sumar og er unnið
við að skipta um jarðveg í fimm
götum þar í bæ. Næsta sumar
er áætlað að Ieggja bundið slit-
lag á göturnar.
Götumar sem um ræðir eru
Þormóðsgata, Hlíðarvegur, Hafn-
artún, Hafnargata og Vetrar-
braut. Helstu vandkvæðin em að
vantað hefur fólk í vinnu, en auk
bæjarstarfsmanna, hafa unnið við
gatnagerðarframkvæmdimar
unglingar allt niður í 12 ára.
Matthías
Unnið við Þormóðsgötu
Morgunblaðið/Matthfafl
Suður—Þingeyj-
arsýsla:
GEFÐU ÞÉR
Mesta ásókn-
in í sumar-
bústaðalóðir
AUGLÝSINGAR Reykjahrepps í
Suður—Þingeyjarsýslu þar sem
boðið er jarðnæði og lóðir fyrir
iðnað, íbúðar- og sumarhús hafa
borið nokkurn árangur, að sögn
Stefáns Óskarssonar oddvita.
Flestir fyrirspyrjenda sýna lóð-
um fyrir sumarbústaði áhuga.
„Við höfúm undanfarinn áratug
miðað allar okkar áætlanir við
það að graskögglaverksmiðja i
meirihlutaeigu ríkisins risi hér í
hreppnum. Nú eru þær áætlanir
endanlega dauðadæmdar þannig
að við þurfúm að fara að huga
að öðrum hlutum,“ sagði Stefán
í samtali við blaðið.
í auglýsingum sem birtust í dag-
blöðunum í síðustu viku segir að
Reykjahreppur bjóði upp á ýmsa
möguleika. Hann sé vel staðsettur,
með ódýra hitaveitu. Stutt sé í versl-
un, þjónustu og bömum sé ekið
daglega til og frá grunnskóla.
„Þessar áætlanir um grasköggla-
verksmiðjuna hafa í raun valdið
stórtjóni. Hreppurinn var búinn að
kaupa undir sig stór lönd, eða á
þriðju jörð. Margir bændur höfðu
dregið saman sína framleiðslu af
þessum sökum. Þeir fengu úthlut-
uðum fullvirðisrétti miðað við þessa
skertu framleiðslu þegar kvótakerf-
ið komst á og nú verður ekki aftur
snúið,“ sagði Stefán. Hann sagði
að unnið væri að því að skipta jörð-
unum upp í lögbýli og á hluta þeirra
yrði skipulagt sumarbústðahverfí.
Stefán sagði að veituæðar Hita-
veitu Húsavíkur lægju í gegnum
land Reykjahrepps. Nytu íbúamir
því vatnsins á sama verði og
Húsvíkingar. Síðastliðin þrjú ár
hafa jafn mörg loðdýrabú risið í
hreppnum. Verið er að kanna gmn-
dvöll fyrir stofnun hlutafélags um
matfískeldi sem Iðnþróunarfélag
Húsavíkur á frumkvæði að. Þá hef-
ur verið unnið að stækkun félags-
heimilis hreppsins og í haust er
ætlunin að hefja framkvæmdir við
sundlaug.
„Fyrir utan loðdýraræktina
starfa þijú iðnfýrirtæki í hreppnum.
Hér er yfírdrifin atvinna á sumrin
og oftast gott ástand á vetmm. í
hreppnum búa ekki nema 110
manns, en hann er betur stæður
en mörg stærri sveitarfélög. Við
viljum að sjálfsögðu vaxandi og
betra mannlíf, þessvegna þótti okk-
ur rétt að kanna áhuga fólks með
þessum auglýsingum," sagði Stefán
Óskarsson oddviti.
Aktu
ÖKUM EINS OG MENN!
eins og þú vilt
að aorir aki!
UMFEROAR
GOÐANTTMA.
ÁÐUR EN ÞU FERÐ URIANDI.
Gjafir og glaðningur til vina,
ættingja og viöskiptavina
erlendis.
Afþreyingarefni fyrir ferðina.
Tslensk matvara
hefur um áraraðir glatt íslendinga erlendis.
Reyndar eru íslensk matvæli löngu orðin annað
ogmeira en „þjóðlegsérviska“. Lostæti á borð við
hangikjöt, reyktan lax, kavíar og íslenska osta
hefur ósjaldan skákað dýrindis réttum
á borðum útlandanna.
Mnjagripiroghandveik
eiga alltaf vel við.
Það er sama hvert tilefni ferðarinnar er eða
við hvern þú átt stefnumót á erlendri grund.
íslenskt handverk er gjöf sem gleður.
Bækur um fsland.
Glæsilegar gjafir við flest hugsanleg tækifæri.
Einstök landkynning sem gaman er að fletta
með áhugasömum lesendum.
Blftft og tfmarit fyrir feróina.
Öll nýjustu dagblöðin með glóðvolgum,
íslenskum fréttum. Tímarit og bækur til aðlesa
á leiðinni og í ferðinni.
íslenskt sælgæti
nýtur mikilla vinsælda handan hafsins.
Þér er óhætt að hafa talsvert magn með þér -
það verður íljótt að hverfa (stingdu strax undan
eftirlætistegundinni þinni.)
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Keflavíkurflugvelli.