Morgunblaðið - 28.07.1987, Blaðsíða 32
32
' MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
Selunum sleppt á laugardag í Grímsey:
„Fáum 20 krónur á kg
fyrir sel í refafóður“
- sögðu Grímseyingar og hentu gaman
að selaverndunarmönnunum hollensku
SELIRNIR, sem fluttir voru út í
Grímsey frá Hollandi, voru ekki
seinir á sér að stökkva út úr
búrum sínum og steypa sér í sjó-
inn þegar þeim var hleypt út á
laugardag. Lenie ’t Hart, sem var
í forsvari fyrir hollenska hópinn
sem kom með selina, var ákaf-
lega ánægð með förina hingað
til lands og ánægð með að koma
selunum á leiðarenda, en þeir
höfðu flækst suður á bóginn og
strandað í Belgíu, Hollandi og
Þýskalandi.
„Þessir selir, hringanórinn og
Utvarpshlust-
endakönnun;
Fréttatíminn
og rás 2 með
mesta hlustun
vöðuselurinn, tilheyra ekki sjónum
við strendur Hollands og geta ekki
lifað þar. Þess vegna erum við að
reyna að bjarga þeim og koma þeim
aftur í það umhverfí sem þeim til-
heyrir," sagði Lenie ’t Hart við
blaðamann Morgunblaðsins um
ástæðu þess að verið væri að flytja
þá hingað til að sleppa þeim.
En það voru ekki allir jafn
ánægðir með að selunum skyldi
sleppt við Grímsey og Lenie.
„Þetta er ógeðslegt," sagði ung
kona með lítið bam á handleggnum
í Grímsey, þegar verið var að flytja
fyrsta selinn frá borði. Þeim sem
heyrðu til hennar gat ekki blandast
hugur um að þessi orð voru töluð
beint frá hjartanu. „Þegar maður
hefur unnið við að skera hringorm
úr fiski þá finnst manni þessi kvik-
yndi ógeðsleg," bætti hún við.
Aðrir tóku þessu með jafnaðar-
geði, ypptu öxlum og sögðu að ekki
væri öll vitleysan eins, og aðrir létu
að því liggja að selimir yrðu fljót-
lega komnir til Dalvíkur í refafóður
þar sem fengist um 20 krónur fyrir
kílóið. „Sumir safna frímerkjum,
aðrir sjá ekkert nema fótbolta.
Hvers vegna skyldi fólk ekki einnig
reka selaspítala og flytja þá heims-
homa á milli," sagði einn og lét sér
ekki bregða yfir þessu uppátæki
Hollendinganna.
Hollendingamir lentu með selina
á Akureyrarflugvelli laust eftir há-
degið á laugardag og voru þeir
síðan fluttir yfir í Twin Otter-flug-
vél Flugfélags Norðurlands, sem fór
með þá til Grímseyjar. Með í för-
inni voru blaða- og fréttamenn frá
hollenska sjónvarpinu, útvarpinu og
dagblaðinu De Telegraaf.
Þegar til Grímseyjar kom voru
þeir fluttir ofan í fjöru þaðan sem
þeim var sleppt. Að því loknu var
kössunum, sem þeir voru fluttir í,
brennt, til þess að forðast hugsan-
lega smithættu.
Áður en Hollendingamir fengu
leyfi yfirvalda til að sleppa selunum
hér við land hafði þeim verið neitað
um það hjá nágrannaþjóðum okkar,
og Grænlendingar höfðu látið að
því liggja við þá að kæmu þeir með
selina til þeirra yrðu þeir skotnir
samstundis.
Danskur djassdúett á
ferð um Norðurland
DANSKI djassdúettinn Frit
Lejde frá Kaupmannahö&i er
staddur hér á landi um þessar
mundir og fyrirhugar hann ferð
um Norðurland næstu 10 daga.
Dúettinn mun koma fram í kvöld
og annað kvöld í veitingahúsinu
Fiðlaranum og í Sjallanum föstudag
og laugardag. Einnig mun hann
koma fram á Siglufírði, Ólafsfirði,
Hótel Húsavík og Hótel Reynihlíð.
í fréttatilkynningu um ferðir
dúettsins segir að hann hafi starfað
frá því á haustdögum 1984, og að
þeir Ole Rasmussen, sem leikur á
kontrabassa, og Nils RAAE, sem
leikur á píanó, eigi töluvert nám
að baki í hljóðfæraleik hjá alkunn-
um dönskum djassmönnum, og eru
til sögunnar kallaðir þeir Niels-
Henning Örsted Pedersen og Ole
Kock Hansen.
Þetta er í annað sinn sem þeir
félagar koma hingað til lands í því
augnamiði að leika djass fyrir land-
ann, en á síðasta sumri léku þeir í
Reykjavík og á Akureyri. Þeir ætla
hins vegar að gera víðreist að þessu
sinni og einnig að koma fram á
Austurlandi.
Akureyringar
—feröafólk
Við bjóðum daglega ný afskorin blóm.
Einnig mikið úrval af pottaplöntum.
Skreytingar við öll tækifæri.
Bílastæði við búðardyrnar.
AKUR
KAUPANGI V/ MYRARVEG 602 AKUBEYRI
SIMAR 24800 81 24B30 POSTHOI.F 4S9
Félagsvísindastofhun gerði
sérstaka könnun á útvarpshlust-
un á Norðurlandi 14. júlí síðast-
liðinn og í siðustu viku voru
niðurstöður hennar kunngjörð-
ar.
Þetta er í fyrsta sinn sem sérstök
könnun á útvarpshlustun á Norður-
landi er gerð, en hún var unnin
fyrir bæði Ríkisútvarpið og Hljóð-
bylgjuna.
Helstu niðurstöður hennar eru
þær að greinilegt er að hlustun á
rás 2 er mest og jöfnust yfír dag-
inn, en frá kiukkan 9 á morgnana
og til klukkan 17.00 á daginn hlusta
á bilinu 19%-26% á rásina. Klukkan
17 dettur rás 2 síðan út og inn
kemur svæðisútvarpið, sem um 24%
hlustenda hlýða á.
Mestur fyöldi fólks fylgist hins
vegar með hádegis- og kvöldfrétt-
um Ríkisútvarpsins, en í könnuninni
reyndust 36% hlustenda fylgjast
með fréttum klukkan 12 og 32%
hlýddu á kvöldfréttimar. Þess á
milli er hlustun á Ríkisútvarpið, rás
1, rétt um 5% yfir daginn, en á
morgnana milli klukkan 7 og 9 er
hún um 15% en dettur síðan nokkuð
niður.
Greinilegt er samkvæmt þessari
könnun að ekki er í jafnmiklum
mæli hlustað á Bylgjuna eða Hljóð-
bylgjuna. Einungis 3-5% fylgdust
með fréttum á Bylgjunni þennan
dag, og þegar flest var fylgdust 7%
með dagskrá hennar.
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Helgihald í Héðinsfirði
HÉÐINSFJÖRÐUR hefúr fram að þessu lítið verið í fréttum, og lítt
verið getið í fjölmiðlum, enda ekki nema von því þar hefúr ekki
verið búið síðan á 6. áratugnum. Prestur hafði ekki embættað þar
í fjörtíu ár, eða síðan sr. Óskar Þorláksson var fenginn þangað 11.
október árið 1947 til að gefa þar saman brúðhjón og skíra drenginn
þeirra, Þorvald Héðinn.
Ólafsfirðingar bættu úr þessu á
sunnudaginn var, en þá fóru rúm-
lega 20 manns saman á bát yfir í
Héðinsfjörð ásamt sóknarpresti
sínum, Svavari Alfreð Jónssyni, til
að njóta náttúrunnar og halda guðs-
þjónustu. Með í förinni var Svava
Jónsdóttir frá Ólafsfírði, en það var
einmitt hún sem gefin hafði verið
fyrri manni sínum, Einari Ásgrími
Þorvaldssyni, í Héðinsfírði 1947,
þaðan sem hann var ættaður.
„Þetta var alveg dásamleg ferð.
Veðrið var yndislegt þannig .að
segja má að Héðinsfjörður hafí tek-
ið mjög vel á móti okkur,“ sagði
Svava um ferðina á sunnudaginn
og kvaðst ekki hafa komið þangað
síðan vorið 1948, er hún flutti það-
an.
Lagt var af stað frá Ólafsfírði
um klukkan 8.30 um morguninn
með bátnum Ármanni, og til fylgd-
ar var bátur Slysavamafélagsins,
en fólkið var selflutt úr Ármanni
og í land í Héðinsfirði á gúmmíbát
slysavamafélagsmanna. Var komið
-i.rétí .fyjir^Jíluþkap 10 tíl Héðjns-
flarðar og var þá komið glaðasól-
skin, en um morguninn hafði þoka
hvílt yfir öllu.
Eftir hádegið var stutt guðs-
þjónusta og í henni tóku þátt um
30 manns, en í Héðinsfirði voru
þijár fjölskyldur samankomnar fyr-
ir, en þar er sumarbústaður og
veiðhús, sem haldið er til í yfir sum-
artímann.
Svavar Alfreð Jónsson, sóknar-
prestur Ólafsfirðinga, sagði að
hugmyndin um guðsþjónustu í Héð-
insfirði hefði verið komin frá sr.
Vigfúsi Þór Ámasyni á Siglufirði
og í ráði að fólk kæmi þaðan á
bátum til að taka þátt í guðsþjón-
ustunni, en vegna veðurs hefðu
þeir ekki treyst sér til að koma.
Svavar sagði að þeir ætiuðu sér þó
^ið fgja þangað í næsta mánuði til
helgihalds.