Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 1

Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 1
72 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 170. tbl. 75. árg. FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987________________________________Prentsmiðja Morgnnblaðsins Friðarsamningur á Sri Lanka: Indverskir hermenn embættismenn sögðu að enginn þyrfti að óttast illvirki af hálfu FVakka, skipin væru þama til þess að tiyggja að frönskum skipum væri sýnd tilhlýðileg virðing. Forsætisráðherra íran, Mir- Hossein Muravi, var ekki á sama máli. „Bandaríkin og bandamenn þeirra, Bretar og Frakkar, ættu ekki að skapa meiri spennu á svæð- inu. Þeir eiga í höggi við byltingar- sinnaða þjóð og þó að þeir eigi skip og flota höfum við ýmislegt annað í pokahominu." Franska flugmóðurskipið Clemenceau lætur úr höfn í Toulon, en ættingjar skipveija veifa þeim frá landi. Persaflói: Bandaríkjamenn leita aðstoðar við slæðingu tranir segjast hafa ýmislegt í pokahorninu Bahrain, Reuter. BANDARÍKJAMENN leituðu í gær aðstoðar Evrópuríkja vegna skakkafalla, sem þeir hafa orðið fyrir á Persaflóa í viðleitni sinni við að halda skipaleiðum þar opnum. íranir, sem hafa ráðist á skip á vegum Kuwait-manna á flóanum, vöruðu Bandaríkja- menn, Breta og Frakka hins vegar við frekari aðgerðum. Þá sendu Kuwait-búar Javier Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, bréf þar sem þeir sögðust óttast innrás írana og óskuðu íhlutunar SÞ. Meðan á þessu stóð reyndi Yuli Vorontsov, aðstoðarutanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, að fá íraka til þess að hlíta samþykkt Öryggisráðs SÞ um vopnahlé í Persaflóastríðinu. Að ioknum viðræðum við ráðamenn í Bag- dað mun hann halda tii Teheran, en forsætisráðherra írans varaði við þvi í dag að i striði gæti fleira haft sitt að segja en her- styrkur. Breska utanríkisráðuneytið skýrði frá því að sendiherra Banda- ríkjanna, Charles Price, hefði óskað eftir fundi með Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Bretadrottning- ar. Talið er að á fundinum muni sendiherrann fara fram á aðstoð Breta við tundurduflaslæðingu á flóanum. Áður höfðu embættis- menn í Washington sagt að aðstoð- ar Frakka yrði líklega æskt, en vamarmálaráðherra Frakklands, André Giraud, er í heimsókn í Bandaríkjunum um þessar mundir. Þrátt fyrir að Bandaríkjafloti sé annar öflugasti floti í heimi er hann ekki vel búinn til tundurduflaslæð- ingar. Bretar og Frakkar eru hins vegar mjög þjálfaðir í slíku. Frakkar, sem slitu stjómmála- sambandi við írani hinn 17. þessa mánaðar, sendu í dag flugmóður- skipið Clemenceau og tvo tundur- spilla til Persaflóa. Franskir aðstoða sljórnvöld Colombo, Reuter. MIKIL óánægja virðist ríkja meðal sinhalesa á Sri Lanka með samkomulag Jayewardenes, forseta landsins, og Gandhis, forsæt- isráðherra Indlands, um frið milli uppreisnarmanna tamíla annars vegar og stjórnvalda hins vegar. Tamilar una aftur á móti flest- ir sæmilega sínum hlut. Jóhannesarborg: 68 særast í sprengju- árás Jóhannesarborg, Reuter. SPRENGJA sprakk í miðborg Jóhannesarborgar í gær og særð- ust 68 manns, þar á meðal. nokkrir hermenn og lögreglu- menn, en sprengjunni var komið fyrir undir bU skammt frá her- búðum. Sprengjuárásin var hin öflugasta, sem beint hefur verið gegn hernum frá 1983. Þá létust 19 manns. Lögreglan vildi ekki vera með neinar getgátur um það hver hefði komið sprengjunni fyrir, en hún olli töluverðum skemmdum. Enn hefur enginn lýst yfir ábyrgð sinni á tilræðinu, en Afríska þjóðarráðið (ANC) hefur að undanfömu hert mjög sprengjuherferð sína í borgum og bæjum. Tugir manna hafa fallið í óeirð- um á Sri Lanka síðustu sólar- hringa vegna friðarsamningsins. Reiðir sinhalesar ásaka Jayeward- ene um að kljúfa ríkið í tvennt en samkvæmt skilmálunum fá tamílar, sem einkum búa á Jaffna-skaga á norð-austurhluta eyjarinnar nokkra sjálfstjóm. Auk þess verða tungumál þjóðahlut- anna nú jafn rétthá. Jayewardene skýrði frá því í gær að hann hefði beðið stjómir Indlands, Bandaríkjanna, Pakist- ans, Bretlands og Kína um hemaðaraðstoð til að bæla niður uppreisn gegn lýðræðislega kjör- inni stjóm sinni. Um 3.000 indverskir hermenn komu til Jaffna-skaga í gær og jafnframt tilkynntu stjómvöld að skæruliðahreyfingar tamfla hefðu samþykkt að afhenda Indveijum vopn sín. Það vakti athygli í gær þegar Gandhi hélt heim á leið til Ind- lands var hann sleginn af heiðurs- verði úr flota Sri Lanka, en Jayewardene bað hann margfald- legrar afsökunar á þessu. Sjá síðu 26, „Sjóliði réðst . . .“ Verdens Gang Valeri I. Rechetnikov, einn KGB-mannanna fjögurra, sem rekinn var úr Noregi fyrir njósn- ir. upp og í yfírlýsingu frá honum kem- ur fram að hann hafí heilshugar stutt aðgerðir stjómarinnar. „Brott- rekstur mun ekki stöðva njósnir Sovétmannanna á norskri grund, en hann takmarkar þær og gerir samskiptin erfíðari," sagði Willoch meðal annars. Með þessum síðustu atburðum hefur alls 35 Sovétmönnum verið vísað úr landi í Noregi fyrir njósnir frá árinu 1976. Sovétmenn hafa yfírleitt alltaf svarað fyrir sig, og þannig komið flestum sérfræðing- um Norðmanna í málefnum Sov- étríkjanna úr landi. Noregur: 4 KGB-menn reknir úr landi fyrir njósnir Ósló, frá Torc Johansen, fréttaritara Morgunblaðsins. FJÓRUM starfsmönnum sovéska sendiráðsins var í gær vísað úr landi í Noregi eftir að sannað þótti að þeir félagar væru allir KGB-menn. Fjórmenningamir höfðu ítrekað reynt að festa kaup á margs konar vöru, sem Norðmenn mega ekki selja tii kommúnistaríkja samkvæmt samkomulagi vestrænna rikja þar af lútandi. Það var utanríkis- ráðherra Noregs, Thorvald Stoltenberg, sem upplýsti þetta á blaðamannafundi í Ósló. Hann sagði ástæðuna fyrir brottrekstr- inum vera þá að mennimir fjórir hefðu stundað athæfi á sviði iðn- aðar og tækni, sem ekki væri sæmandi mönnum í þeirra stöðu. Sovésk stjómvöld svöruðu þessu með því að lýsa tvo norska stjórn- arerindreka óvelkomna í Moskvu. „Viðbrögð Sovétmanna eru ekk- ert annað en hefnd og ekki á nokkrum grunni byggð. Þessir tveir stjómarerindrekar okkar hafa ekki stundað neitt sem kallast gæti njósnir í Sovétríkjunum," sagði Stoltenberg. Um leið og ráðherrann tilkynnti um brottvísunina skýrði hann frá því að forsætisráðherra Sovétmanna, Nikolai Ryzhkov, muni koma í opinbera heimsókn í janúar á næsta ári. Þetta atvik mun heldur ekki hafa nein áhrif á ætlaða heimsókn Nikolais Kotliar, sjávar- útvegsráðherra Sovétríkjanna, 11.-15. ágúst næstkomandi. Meðal hinna fjögurra KGB- manna, sem reknir voru úr landi var Valentin Viktorovich Korpusov, 2. sendiráðsritari. Hinir fjórir, þeir Valery Ilich Rechetnikov, Alexand- er Ivanovich Sergienko og Vladimir Mikhailovich Vetrov, vom í við- skiptasendinefnd Sovétríkjanna í Ósló. Fram kom að KGB-mennimir hefðu reynt að ráða Norðmenn til starfa fyrir sig og ítrekað reynt að koma á fundum með starfsmönnum iðnaðarfyrirtækja, sem framleiða hátæknibúnað ýmiskonar. Þó var tekið fram að málið tengdist Kongs- berg-málinu á engan hátt. Til þess að svara þessu vísuðu Sovétmenn þeim Rune Aasheim og Áge Gmtle úr landi og var Gmtle tilkynnt að hann væri óvelkominn til Sovétríkjanna um alla framtíð. Báðir sendiráðsmennimir vom í sumarleyfí heima í Noregi, svo þeir urðu ekki fyrir jafnmiklum óþæg- indum og ella. Ákvörðunin um brottrekstur Rússanna var tekin fyrr í júlí, en hinn 15. þessa mánaðar kallaði Stoltenberg sovéska sendiherrann, Alexandar Teterin, á sinn fund og skýrði honum frá því að mennimir fjórir yrðu að hverfa af landi brott. Ákvörðun Sovétmanna um brottvís- un Norðmannanna kom 12 dögum síðar, hinn 27. júlí. Norska stjómin reyndi í lengstu lög að halda málinu leyndu til þess að það yrði ekki til þess að spilla fyrir sambúð ríkjanna, en þegar Kremlarbændur ákváðu að svara fyrir sig á mánudaginn varð ut- anríkisráðuneytið að skýra frá málavöxtum. Formanni utanríkismálanefndar Stórþingsins og fyrrverandi forsæt- isráðherra, Káre Willoch, var skýrt frá málavöxtum um leið og það kom

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.