Morgunblaðið - 31.07.1987, Side 16

Morgunblaðið - 31.07.1987, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987 Ný sending. Sundbolir, bikini og bolir. TESS X Opið 9-18. NEÐSTVIÐ DUNHAGA. Sími622230. Þetta er stutt frá fyrirhuguðum öskuhaugum A að gera fólkvang að öskuhaugnm eftir Svein Björnsson sér detta Þetta' hug- ÞekkJa Hafn- J fírðingar ekki Krýsuvík. Vita Það er óskiljanlegt að bæjar- Hafnfirðingar ekki að þetta land stjóm Hafnarfjarðar skuli hafa látið er eitt stórkostlegasta útivistar- SKANDINAVIA : S. 38 sinnum í hverri viku Danmörk, Noregur og Svíþjóð taka þér ávallt opnum örmum, allt árið um kring. Þegar um er að ræða menningarlíf, náttúrufegurð og vinalegt andrúmsloft eru fá lönd sem taka Norðurlöndunum fram - svo mikið er víst. Taktu þér ferð á hendur, til góðra granna, og þú munt njóta þess. Flugleiðir halda uppi reglubundnu áætlunarflugi til fimm borga í Skandinavíu, 38 sinnum í viku. 3xBERGEN PEX kr. 15.850 3xGAUTAB0RG PEX kr. 17.200 17xKAUPMANNAHÖFN PEX kr. 17.010^ 8x0SL0 PEX kr. 15.850 7xST0KKH0LMUR * PEX kr. 19.820 * Miðað er við háannatíma, júní, júlí, ágúst. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, M Mf*M CM^^M^^ hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. M M i \jLEMKJM^m FLUGUEIDIR . fyrír þíg. Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25100 svæði hér á landi og í heiminum. Bæjarstjóm Grindavíkur hefur látið frá sér fara mótmæli, en ekkert hefur heyrst frá Hafnfirðingum. Hvað er eiginlega að ske. Erum við Hafnfirðingar ekki búnir að fá nóg af óþverranum í nánd við öskuhaug- ana í hrauninu okkar. Sorpið hefur fokið um allt hraun og haft í för með sér rottugang og alið veiðibjöll- una. Þessi vargfugl kemur svo á Lækinn okkar og tekur andarung- ana og étur þá lifandi. Enginn hefur sagt neitt við þessum óverra í hrauninu og allt um kring. Nú á að færa ruslið til og fara með það inn á Fólkvanginn okkar, Krýsuvík. Að láta sér detta í hug að fara með öskuhauga inn í það land þar sem Hafnfirðingar fengu ekki einu sinni að byggja sér sumarbústaði fyrir um það bil 40 árum. Þá voru fram- sýnir menn í stjóm í Hafnarfirði. Landið var þá í raun friðað. Það er mikið af fólki sem kemur til Krýsuvíkur á sumrin. Það er um- hugsunaratriði hvort ekki þyrfti að koma upp lágmarksaðstöðu fyrir ferðamenn í Krýsuvík til að tryggja góða umgengni um svæðið. Þama er ekki einu sinni salemisaðstaða fyrir fólk sem er að veiða eða veiði- hús sem var þó hér áður fyrr við hið yndislega fallega vatn, Kleifar- vatn. Stangaveiðifélag Hafnarfjarð- ar hefur staðið sig slælega í því efni. Enga þjónustu veitt. Af hverju haldið þið, Hafnfirðing- ar, að Einar skáld Benediktsson hafi keypt Krýsuvíkina? Hann sá fegurðina og hitann. Já, fyrir margt löngu. Margir hafa séð fegurðina í Krýsuvík. Kjarval málaði þar mikið og Ásgrímur og fleiri og fleiri. Kannski hafa aðrir en Hafnfirðing- ar séð fegurðina betur en þeir. Að minnsta kosti var landið gert að Fólkvangi 1975. Bæjarstjóm Hafnarfjarðar virð- ist ekki hafa séð fegurðina í Krýsuvík fyrst henni hefur dottið þessi vitleysa (hug að flytja þangað öskuhauga fyrir Hafnarfjörð, Kópa- vog og Reykjavík. Krýsuvík á nefnilega að vera algjörlega friðað land og reyndar alveg frá Vatns- skarði og að Krýsuvíkurbergi. Þetta á að vera griðland handa fólki sem vill njóta náttúmnnar. Hafnfirðingar, stöndum nú sam- an og vemdum það sem við eigum og keyptum, sem betur fer, af skáldinu Einari Benediktssyni, sem vissi hvers virði Krýsuvík er. Höfundur er listm&lnri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.