Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 17

Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 17
V8er rf: TmnArmTSö'í fTirTA.TíTVjnngnM MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JUU 1987 Sól — snyrting og megrun Greiðið hárið frá Gott er að láta sólina og goluna leika um húðina hjá þeim sem hafa fituga húð. Fitan í húðinni safnar óhreinindum sem oft valda bólum. Það er því gott, sérstaklega á sumrin, að halda hárinu ftá and- litinu, og láta það ekki liðast niður á bert bakið. Hárið verður fitugt og ósnyrtilegt ef það liggur á fit- ugri húðinni — og húðin losnar ekki við fituna sem frá henni kem- ur. Getur það valdið bólum og bólgum. Þessvegna er réttast að greiða hárið frá enni og andliti þegar verið er úti undir berum himni í sumarsólinni. Ummegrun Þeir sem leggja sér til munns of mikið af sætindum, eins og súkkulaði, ís og kökum, gjalda þess oftast með því að bæta við sig kílóum. Það getur verið erfítt að neita sér um góðgætið, en hvað gerum við ekki til að halda línun- um? Til eru sykursneyddar og hita- einingafáar sælgætistegundir, en það er léleg lausn fyrir þá sem eru í megrun að japla á svoleiðis sæt- indum. Það sem þeir þurfa að gera er að losa sig við þörfina fyrir sætindin. Ef við erum stöðugt að háma í okkur eitthvað sem er sætt á bragðið getur verið stutt í það að sykrað sælgæti leysi það sykursneydda af hólmi. Og þá er Slípið húðina Flestir fagna því innilega þegar sumarsólin er orðin það hlý að hún er farin að gefa líkama þeirra þennan eftirsótta brúna lit. Þeir sem hafa haldið við brúnkunni ftá fyrra ári undir sólarlömpum njóta þess að láta geisla sólarinnar taka við á ný. En sumir verða fyrir vonbrigðum þegar húðin tekur á sig grábrúnan lit í stað þess gullin- brúna, sem beðið var eftir. Þegar svo fer er ágætt að slípa húðina — bæði á líkama og andliti — einu sinni eða tvisvar í viku, en til þess eru notuð sérstök slípikrem sem til eru í ýmsum gerðum. Flestir framleiðendur snyrtivamings bjóða svona hreinsikrem bæði fyrir líkamann og andlitið. Þessi slípikr- em hreinsa mjúklega burt örþunnt yzta lag húðarinnar, sem bæði gefur húðinni gráleitan blæ og gerir hana grófa viðkomu. Þau breyta þó engu um brúnkuna, held- ur þvert á móti gefa húðinni fallegri lit, auk þess sem hún verð- ur sléttari og silkimjúk. þess skammt að bíða að keppimir komi á ný. Flestar uppskriftir af megrunar- fæði heimila neyzlu ávaxta — í mismunandi miklu magni. Það er upplagt að skipta þessu magni í smá skammta og nota þá til að fullnægja sykurþörfínni. Styrkið magavöð- vana Hér kemur svo góð æfing til að styrkja magavöðvana. Liggið á bakinu með handleggina niður með síðunum. Kreppið knén upp að maganum. Réttið svo úr fótleggj- unum, teygið úr þeim eins og þið getið án þess að sveigja hrygginn, og látið fætuma síga niður. Krepp- ið svo knén upp að maganum á ný og endurtakið æfinguna 5-10 sinnum í byijun. Seinna, þegar magavöðvamir em famir að styrkjast, má gera þetta oftar. HÚSAFKLI 1987 VERZLUNARMANNAHELGIN 31. júlí - 3. ágúst MARAÞON TÓNLISTARFLUTNINGUR ÖLL KVÖLD OG ALLAR NÆTUR Forsala aðgöngumiða fyrir Húsafellshátíðina '87 Reykjavík.......................BSÍ, c/o Sæmundur. Borgárnes.................Sérleyfisbílar Sæmundar. Snæfellsnes.............Sérleyfi Helga Péturssonar. Akureyri.........................Öndvegi c/o Gylfi. Suðurnes......Víkingaferðir Holtsgötu 49, Njarðvík. Selfoss..............Sérleyfisbílar Selfoss c/o Þórir. 1 WttptiiW Metsölublað á hvetjum degi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.