Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
Atlantshaf sbandalagið:
Ný eftirlitsstöð á Miðnesheiði
Keflavfk.
EFTIRLITSSTÖÐ á vegum Atl-
antshafsbandalagsins mun verða
reist á Miðnesheiði innan fárra ára
og er henni ætlað að koma í stað
„Rockville-stöðvarinnar" sem þá
verður lögð niður.
Þorsteinn Ingólfsson hjá Vamar-
málanefnd sagði að nýja stöðin yrði
nær Keflavíkurflugvelli eða nokkru
sunnar við Sandgerðisveg.
Að sögn Þorsteins hafa engar dag-
setningar verið nefndar. Nú stæðu
yfir byggingar á eftirlitsstöðvum fyr-
ir norðan sem ættu að verða tilbúnar
árið 1989. Síðan væri ný stöð við
Stokksnes á dagskrá áður en röðin
kæmi að stöðinni á Miðnesheiði.
BB
Grillpakkinn
■ 5 kg. grillkol, grillkveikilögur,
diskar, glös og hnífapör mn
fyrir 5 ........... kr.599
Tilbúinn
matur
Pakkað í tilbúna bakka eða í kílóavís eftir
óskum. ■ Heil lambalæri, kótelettur,
lærissneiðar, kjúklingar, kalt hangikjöt,
soðin svið o.fl. o.fl.
Beint á
grillið:
■ Ekta nautahamborgari ~ ~
meðbrauði .......... kr.OOj"
kr.297j"
.. kr.29j"
I Goða pylsur, pr. kg. ...
i Myllu pylsubrauð, 5 stk.
Svínakjöt, nautakjöt, tilbúnir
grillpinnar, kryddlegnar lambalæris-
sneiðar, kótelettur, rif og framhryggs-
sneiðar.
Öl og gos
■ Seven-up, Grape, DietPepsi, Pepsi
ogAppelsín, 1V2 lítri... kr. 78,-
■ Prippsbjór, 1/2lítri... kr. 35,80
■ Dauer bjór, 1/2 lítri... kr. 35,50
Grænmeti og ávextir
—allt nýtt og ferskt.
Vínber, kiwi, melónur, plómur, jarðarber,
bláber, epli, appelsínur, ferskjur, bananar,
hvítkál, blómkál, tómatar, agúrkurog nýjar
íslenskar kartöflur.
Ómissandi
í ferðina:
Yfir 20 tegundir af tilbúnum salötum,
dósamaturog niðursoðið kjöt í úrvali,
kextegundir í hundraðatali, einnota
hnífapör, glös og diskar, reyklaus grillkol,
grillbakkar, kveikilögur, allar tegundir af
Maarud snakki, Maggi súpur og
skyndidrykkir, úrval af harðfiski og bitafiski
o.fl., o.fi.
Opið á fimmtudag til kl. 18:30 og á föstudag til kl. 21:00
Hjá okkur færðu fyrír ferðina!
KAUPSTADUR
Sími: 73900 í MJÓDD
úr böndunum
Þau Jeff Daniels (The Purple Rose of Cairo) og Melanie Griffith,
(Into the Night) eru óborganleg í einni líflegustu mynd um langt
skeið, Something Wild.
Brandari fer
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Háskólabíó: Something Wild
★ ★ ★ 1/2
Leikstjóri Jonathan Demme.
Handrit E. Max Frye. Kvik-
myndatökustjóri Tak Fujimoto.
Klipping Craig McKaye. Aðal-
leikendur Melanie Griffith, Jeff
Daniels, Ray Liotta. Bandarísk.
Orion 1986. U.þ.b. 110 min.
Þau Jeff og Melanie hittast af til-
viljun á matstofu í New York, ólík
eins og hvítt og svart, a.m.k. í fljót-
heitum. Hann dæmigerður kaup-
sýslumaður „á uppleið“ ( stífpressuð-
um jakkafotum með bindi og hugann
rígbundinn við verðbréfamarkaðinn,
blásaklaus í framan. Hún bæði fríkuð,
sexí og frekjuleg, hálfóður, vand-
taminn villiköttur í leit að leikfélaga
sínum, músinni. Og þar sem hún
ígrundar Jeff á matsölustaðnum sér
hún í honum eðlisþætti sem eru henni
að skapi, hann stingur nefnilega af
á lunkinn, þaulæfðan hátt frá reikn-
ingnum. Ekki allur þar sem hann er
séður. Og Melanie býður honum í
bíltúr. Gabbar hann með sér hvetja
míluna á eftir annarri. Eftir nokkra
klukkutíma er hann farinn að hafa
gaman af hlutum sem hans bljúga
fyrirtækissál hefði aldrei vogað sér
að dreyma um.
Tilgangur Melanie með því að ræna
þessum sakleysingja var að taka hann
með sér til gamans á 10 ára útskrift-
arafmæli í skólanum hennar gamla,
niður í Virginíu. En þar kemur babb
í bátinn, því þar er fyrir raunveruleg-
ur eiginmaður Melanie, illvígur
tugthúslimur, nýsloppinn út og nú
breytist gamanið í jökulkalda alvöru.
Demme (Melvin and Howard, Stop
Making Sense) er einn forvitnilegasti
og persónulegasti hinna yngri banda-
rísku leikstjóra í dag ásamt mönnum
eins og Jarmusch, Alex Cox og Spike
Lee. Það er hreint með ólíkindum
hvað maðurinn er kraftmikill. Hér
hellir hann yfir okkur viðstöðulaust
öllu í senn, gamanmynd, drama, farsa
og þriller og gerir allt jafn íjári vel!
Þá er maðurinn einkar laginn við að
notfæra sér að lífga myndina með
stórskemmtilegum smáatriðum,
glæða rammana meira lífí en við eig-
um yfir höfuð að venjast. Söguþráð-
urinn er skemmtilega fáránlegur
hrærigrautur um gaman sem breytist
í martröð. Um leið ádeila á tryggt líf
þess sem engu hættir, engu þorir
heldur þraukar steindauðu lífí. Hér
fær rolan umbun fyrir manndómss-
nefilinn.
Þá er leikhópurinn snilldarlega
valinn. Jeff Daniels er fæddur í hlut-
verk skrifstofuþrælsins sem fer óvart,
en um síðir ánægður, út í smá tjútt
í tilverunni. Ray Liotta gefur honum
lítið eftir í hlutverki skúrksins og
reyndar minnisstæð uppgötvun. Ann-
ars er varla hægt að fínna að einu
einasta leikaravali, litlu sem stóru.
En fyrst og fremst er Somethig Wild
vettvangur geislandi hæfileika Mel-
anie Griffith, hvort sem hún er í
útfríkuðum kynham eða komin niður
á jörðina. Hun sýnir hér að minnis-
stæður leikur hennar í Into the Night
var engin tilviljun. En eitt er víst,
að ekki erfír hún hæfileikana frá
móður sini, Tippi Hedren, þeirri gjör-
samlega hæfíleikasnauðu Hitchcock-
leikkonu. Kvikmyndatakan er fjörleg
og oft hressilega undirstrikuð af
líflegri rokkmúsik af slóðum sem
Demme gjörþekkir.
Vafalaust er Something Wild ekki
að allra skapi, sjálfsagt mislíkar ein-
hveijum stílbrotin í myndinni. En þau
eru þama einfaldlega sökum þess að
þar eiga þau heima, þetta er villt
mynd. Hún er líka örugglega kær-
komin öllum þeim sem vilja fá
ferskar, líflegar myndir sem ekki eru
steyptar í gömlu mótin. Something
Wild er borðleggjandi skemmtileg-
asta uppákoma sem maður hefur
upplifað lengi í kvikmyndahúsi, mað-
ur mun fylgjast með þeim Demme
og Griffith enn nánar í framtíðinni.
Canalis
Afar einfalt og fIjótlegt í uppsetningu
Sérlega hentugar fyrir verslanir.
RAFSKINNUr
RENNURFRA
I Telemecanique
til dreifingar
á rafmagni
^OTLJMN!1
HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK
SIMI: 685656 og 84530
AGFA+3
Alltaf Gæðamwdir
Fróöleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!