Morgunblaðið - 31.07.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
21
Dr Snunith Shoham ffa ísrael.
Dr Sigrún Klara Hannesdóttir.
Þegar kennarinn
gleymir sér í tölvuleik
Frá Bandaríkjunum var mætt á
ráðstefnuna June Johnson. Hún er
bókavörður í grunnskóla fyrir fímm
til nfu ára böm í New Jersey fylki.
Aðspurð hvað það væri helst, sem
hún fengi út úr því að sækja slíka
ráðstefnu, nefndi hún fyrst sam-
kenndartilfínningu. Hún upplifði sig
ekki sérstaklega sem Bandaríkja-
mann á ráðstefnu sem þessari. Hún
sæi að á allt öðrum stað í heiminum
væri fólk að fást við það sama og
hún og það gæfí þessa tilfínningu;
að maður tilheyrði hópi fólks um
allan heim.
Þrátt fyrir að skólinn sem June
vinnur við sé eingöngu fyrir yngstu
bömin er ein tölva inni á sjálfu
bókasafninu fyrir þau og átta á
hjólum sem notaðar eru við kennslu
f kennslustofunum. Sagðist June
rúlla þeim af stað í stofumar á
mánudagsmorgni og væri þeim yfír-
leitt ekki skilað til baka fyrr en á
föstudegi þar sem þær væru notað-
ar svo mikið.
Mikilvægast af öllu f tölvunotkun
við kennslu svo ungra nemenda
sagði June vera val á hugbúnaði.
Hann yrði alltaf að velja af kost-
gæfni. Vel heppnað forrit kenndi
bömunum mikið þótt þeim fyndist
þau bara vera að leika sér. Bestu
forritin í sínum skóla væm til
kennslu í ensku, stærðfræði og fé-
lagsfræðum.
June sagði að enn væm til kenn-
arar sem segðust hafa kennt í 30
ár, þá hefði ekki vantað tölvu fram
að þessu og þeir þyrftu hennar
ekki með nú. Hún sagðist halda að
yfírleitt stafaði þessi afstaða af ótta
við að tölvumar væm of flókin
tæki fyrir kennarann og hann
myndi ekki geta lært almennilega
á þær. Þennan beyg sagðist hún
hafa yfímnnið hjá mörgum kennar-
anum með því að bjóða honum að
koma á bókasafnið þegar honum
hentaði. Hún hefði þá allt tilbúið
fyrir hann, kveikt væri á tölvunum
og búið væri að hlaða forritunum
inn í þær. Viðkomandi kennari
þyrfti ekki að gera annað en að
setjast og leika sér í kennsluforrit-
unum eins og bömin. Þegar svo
kennarinn liti f fyrsta skipti á úrið
og sæi að hann hefði gleymt sér í
leikjunum, talaði hann strax um
hvenær hann gæti komið næst. Og
í næsta skipti spyrði hann af ein-
lægum áhuga hvemig ætti að
kveikja á tölvunum, hlaða inn forrit-
unum og svo framvegis. Og þar
með væri bjöminn unninn.
Viðtöl: Jóhann Viðar ívarsson
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þessi Saab hafði verið skilinn eftir og auðsjáanlega staðið í nokk-
urn tíma.
Suðurnes:
Heilbrig'ðiseftirlitið
með átak í hreinsun
Keflavík.
Heilbrigðiseftiriitið á Suður-
nesjum hefur að undanförnu
staðið að hreinsun á ýmiskonar
drasli sem menn eru oft svo
gjarnir á að safna að sér. Átak
þetta er í samráði við sveitarfé-
lögin og lögregluna og sagði
Jóhann Sveinsson hjá heilbrigðis-
eftirlitinu að þessi aðgerð hefði
mælst vel fyrir og viða haft góð
áhrif á útlit.
Jóhann sagði að atvinnurekendur
hefðu verið heimsóttir og þeim bent
á það sem betur mætti fara í útliti
fyrirtækja þeirra. Árangur hefði
oftast orðið góður, en alltaf væm
einhveijir sem létu sér ekki segj-
ast. Ætti þetta sérstaklega við um
fískverkendur sem margir hveijir
hefðu ekki verið til viðræðna um
snyrtilegt útlit húsa sinna og um-
hverfís.
Þetta er gamall fólksvagn sem
breytt hefur verið í einskonar
torfærubíl og skilinn eftir úti
á víðavangi.
Töluvert virðist vera um bflhræ
á svæðinu og hafa tugir bfla sem
skildir hafa verið eftir á opnum
svæðum verið fjarlægðir að undan-
fömu. Jóhann sagði að áfram yrði
haldið á þessari braut á næstunni
og veitti áreiðanlega ekki af.
- BB
Verslunarmannahelgin
Ætlarðu að ferðast á láði eða legi eða ætlarðu bara að dytta að?
Pú færð úrvals sjó-ferða-vinnufatnað hjá okkur.