Morgunblaðið - 31.07.1987, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
Stoltur
nýliði
Hinn sautján ára gamli Grant
Stokes (annar f.v.) í réttstöðu
er nýliðar í úrvalsherdeildinni
Household Division voru út-
skrifaðir við hátíðlega athöfn í
gær. Hann mun verða einn
þeirra lífvarða sem gæta eiga
Elísabetar drottningar og
standa vaktir fyrir utan Buck-
ingham-höll, klæddir rauðum
frökkum og svörtum bjamar-
skinnshúfum, túrhestum (og
ljósmyndaverslunum) til óbland-
innar ánægju. Nokkur ár eru
síðan blökkumanni veittist sá
heiður sem Stokes hlotnast nú.
Reuter
[
Verðbréfamarioður Iðnaðaitankans
kynnir
ný verðtiyggð skuldabréf Glitnis hf.
Nýtt lek-
andaafbrígði
sem mótefni
vann ekki á
Boston. Reuter.
LEKANDAAFBRIGÐI, sem mót-
efnið spectinomycin vinnur ekki
á, hefur fundist á hersjúkrahúsi i
Suður-Kóreu, að þvi er haft var
eftir bandariskum læknum i gær.
Þeir vöruðu við þvi, að alvarlegir
sjúkdómar, sem yrðu ónæmir fyr-
ir mótefnum, bærust veqjulega
fljótt á milli heimshluta.
Læknamir, sem starfa undir stjóm
dr. John Boslego á Walter Reed-
rannsóknastofnuninni í Washington,
komust að raun um, að spectomycin
hreif ekki á 8% lekandatilfellanna,
sem vom til meðferðar. Hins vegar
kváðu þeir sjúkdóminn hafa látið
undan síga fyrir öðmm mótefnum.
Viðnám gegn mótefnum er vax-
andi vandamál í baráttunni við
sjúkdóma eins og lekanda, sem bakt-
ería veldur.
Þegar ónæmi gagnvart einhveiju
móteftii þróast hjá ákveðinni tegund
baktería, grípa læknar til annarra
mótefna, en flótt sækir í sama horf-
ið og bakterían verður ónæm á nýjan
leik. Mörg afbrigði lekanda em t.d.
ónæm fyrir penisillíni.
Þó að vitað hafi verið um lekanda-
afbrigði, sem vom ónæm fyrir
spectomycini, er þetta í fyrsta sinn,
sem sagt er frá útbreiddu ónæmi
fyrir lyfinu.
ávöxtun umfram verðbólgu
Japanir
skila hatti
Napóleons
Tokyo. Reuter.
LEÐURHATTI, sem talið er að
Napóleon Bonaparte hafi borið,
verður skilað heim til Frakklands
frá Japan, Frökkum að kostnaðar-
lausu, að því er embættismenn
Oskaborgar og franska sendiráðs-
ins í Japan sögðu i gær.
Þeir sögðu, að eigandi hattsins,
Heiji Tomioka frá Osaka, mundi af-
henda gripinn Jean-Pierre Samoy-
ault, forstöðumanni Þjóðminjasafns
Frakklands í Fontainebleau, í Osaka
í dag.
Embættismenn Osaka sögðu, að
Tomioka hefði sagt borgarstjóran-
um, að með afhendingu hattsins
væri hann að framkvæma vilja föður
síns heitins, Tokutaro Tomioka.
Tomioka eldri kejrpti hattinn fyrir
30 milljón jen (tæplega 8 millj. ísl.
kr.) í verslun í Osaka 1972.
valið á milli
Glitnir hf. er fjármálafyrirtæki sem
stofnaö var i október 1985 og er nú
stærsta fjármögnunarleigufyrirtækið á
innlendum markaði (fjármögnunar-
leigufyrirtæki sjá um kaup á vélum og
tækjum fyrir önnur fyrirtæki fyrir eigin
reikning og leigja þau síðan endan-
legum notendum til ákveðins ára-
fjölda). Stofnendur og eigendur Glitnis
hf. eru norska fjármálafyrirtækið A/S
Nevi í Bergen, Iðnaðarbanki íslands hf.
og Sleipner Ltd. í London. Gert er ráð
fyrir aö eigið fé og áhættufé Glitnis hf.
verði yfir 200 milljónir króna í árslok
1987 en niðurstaða efnahagsreiknings
um 2.000 milljónir króna.
Nú getur þú
13 mismunandi gjalddaga.
Með nýjum skuldabréfaflokki Glitnis hf.,
1. flokki 1987, geta kaupendur valið á
milli alls 13 mismunandi gjalddaga. Öll
skuldabréfin eru eingreiðslubréf (greið-
ast með einni greiðslu í lok lánstímans)
og bera nú 11,1% ávöxtun umfram
verðbólgu eða jafngildi 36% ársvaxta
síðustu þrjá mánuðina. Þrír skulda-
bréfaflokkar Glitnis hf. hafa nú verið
skráðir á Verðbréfaþingi íslands. Verð-
Gjalddagar skuldabréfa Glitnis hf. eru nú Ávöxtun
15. október 1988 11,1%
15. janúar 1989 11,1%
15. apríl 1989 11,1%
15. október 1989 11,1%
15. janúar 1990 11,1%
15. apríl 1990 11,1%
15. október 1990 11,1%
15. janúar 1991 11,1%
15. apríl 1991 11,1%
15. október 1991 11,1%
15. janúar 1992 11,1%
15. apríl 1992 11,1%
15. október 1992 11,1%
Verðbréfamarkaður
1= Iðnaðarbankans hf.
ÁRMULA7, REYKJAVÍK 68-10-40
bréfamarkaður Iðnaðarbankans hf. sér
um endursölu skuldabréfanna þurfi
eigendur að selja þau fyrir gjalddaga.
Síminn að Ármúla 7 er 68-10-40.
Heiðdís, Ingibjörg, Sigurður B. eða
Vilborg veita allar nánari upplýsingar.
Kaupmannahöfn:
Tekinn ölv-
aður með
pylsuvagn
PYLSUSALI var tekinn fastur
af lögreglunni, af þvi að hann
þótti grunsamlega reikull í spori,
þar sem hann var á ferð með
vélknúinn pylsuvagn sinn í Holm-
bladsgade í Kaupmannahöfn um
eftirmiðdaginn á þriðjudag.
Lögregluþjónamir voru á því, að
ilmurinn af manninum væri fremur
ættaður úr vertshúsi en pylsu-
vagni. Var vagninum lagt við
gangstéttarbrúnina, á meðan pylsu-
salinn blés í blöðruna. Þar sem
útkoman var mjög svo Jákvæð",
var farið með manninn á stöðina í
blóðpróf.
Reynist vínandaprósentan of há
samkvæmt prófinu, á pylsusalinn
von á að verða dæmdur til sektar-
greiðslu.