Morgunblaðið - 31.07.1987, Síða 35
v;1
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
35
Stærðfræðiskor HÍ:
Boðið verði upp á stutt
starfsmiðað tölvunám í VI
- enekkiuppá
háskólagráður
STÆRÐFRÆÐISKOR Háskóla
ísiands mælir gegn því að aðrir
hérlendir skólar en HÍ bjóði BS-
gráðu í tölvufræði nema tryggt
sé að svipaðar kröfur séu gerðar
til námsins og við HÍ. Hins vegar
mælir stærðfræðiskorin með þvi
að komið verði á fót hér á landi
stuttu starfsmiðuðu námi í tölvu-
fræði líkt og í Köbmandsskolens
EDB-skole i Danmörku.
í ályktun sem stærðfræðiskorin
sendi frá sér vegna fyrirhugaðs
tölvuháskóla Verslunarskóla ís-
lands segir „Edb-skólamir í
Danmörku tengjast verslunarskól-
um þar f landi, og heitir Kaup-
mannahafnardeildin t.d.
„Köbmandsskolens Edb-skole“.
Stafímir „edb“ standa fyrir „elektr-
onisk databehandling", sem hefur
verið þýtt með „gagnavinnslu í tölv-
um“ á íslensku. Samkvæmt
námsskrám edb-skóla fyrir námsá-
rið 1986/87 em þar veitt þrenns
konar fullnaðarpróf. Þau heita „ed-
b-assistent“, „datanom" og „data-
matiker". Þeir sem hafa lokið
dönsku stúdentsprófí þurfa eins árs
nám til viðbótar til að verða „edb-
assistent“, en aðrir þurfa tvö ár.
Fyrirhuguð kennsla Verslunarskóla
íslands virðist sniðin eftir námsskrá
til „edb-assistent“-prófs. Sá sem er
„edb-assistent“ eða hefur sambæri-
lega undirstöðu getur orðið „dat-
anorn" með því að ljúka sex
námskeiðum til viðbótar. Til að
verða „datamatiker" þarf fímm
missera nám að loknu stúdents-
prófi. Er það ætlað þeim sem vinna
við stærri og flóknari tölvukerfi.
Þess má enn geta að í Kanada og
Bandaríkjunum er boðið hliðstætt
nám, einatt tvö ár að lengd, f svo-
nefíidum „Community Colleges".
Slfkir skólar eru oft reknir undir
handaijaðri nærliggjandi háskóla.
Próf frá þeim er nefnt „Associate
Degree", og námið er ekki ætlað
sem undanfaranám fyrir BS-nám.
Hingað til hefur „háskóli" merkt
stofnun þar sem veitt er fræðsla á
breiðu sviði tæknigreina, raun-
vfsinda, hugvfsinda eða lista.
Ætlast er til að við háskóla sé unn-
ið að fræðastörfum, og mikilvægur
hluti verksviðs háskólakennara er
að færa út hinar fræðilegu kvíar.
í auglýsingu VÍ eftir kennurum er
ekki minnst á kröfur um menntun
og háskólastörf. Vart getur því ver-
ið um „háskóla" í venjulegri
merkingu orðsins að ræða.
Á liðnum árum hafa spunnist
allnokkrar umræður um þörf fyrir
nám hér á landi á borð við „edb-
assistent“-námið. Hafa reyndar
nokkrir íslendingar sótt það nám
til Danmerkur, og þykja þeir nýtir
starfsmenn. Ef vel tekst til hjá VÍ
um kennslu til prófs sem samsvarar
„edb-assistent“ má telja víst að fólk
sem lýkur því námi komi að góðu
gagni í atvinnulífinu.
Við HÍ er tölvufræði (tölvunar-
fræði) kennd til BS-prófs f stærð-
fræðiskor raunvfsindadeildar. Er
þar um þriggja ára nám að ræða.
Við Kaupmannahafnarháskóla er
kennd „datalogi" til embættisprófs.
Tekur námið um fímm ár. í Banda-
ríkjunum er „computer science"
oftast sjálfstætt vfsindanám, sem
tekur fjögur ár til BS-prófs fyrir
þarlenda. BS-nám f tölvufræði við
HÍ hefur verið skipulagt með hlið-
sjón af erlendu háskólanámi og
innlendum aðstæðum. Um 100
manns hafa útskrifast úr tölvu-
fræði, og starfa flestir við innlend
fyrirtæki. Þeir sem haldið hafa til
ffamhaldsnáms erlendis hafa nær
allir staðið sig með prýði.
Samtök fagmanna í tölvufræð-
um, ACM, hafa beitt sér fyrir því
að skilgreina sem best nám í tölvu-
fræðum. Fyrir tilstilli þeirra hafa
verið samdar námsskrár sem hafðar
eru til hliðsjónar af þeim háskólum
í Bandaríkjunum sem útskrifa fólk
með BS-próf í tölvufræði. Úr þess-
um námsskrám má sjá hvaða
menntun er talin nauðsynleg fyrir
slíkt próf. Námsskrá HI er samin
með hliðsjón af þessum námsskrám.
Námsskrár ACM eru af ýmsum
gerðum, sniðnar að ólíkum áhersl-
um háskóla. í öllum er gert ráð
fyrir að námið taki fjögur ár. Vegna
þess að hér á landi hefja menn
háskólanám ári eldri en f Banda-
ríkjunum má ætla að þijú ár geti
nægt hér, ef vel er staðið að. Óhugs-
andi er að tvö ár nægi. Nám til
BS-prófs verður að uppfylla það
lágmarksskilyrði að útskrifaðir
nemendur séu hæfír til frekara
náms til MS-prófs, doktorsprófs og
sambærilegra prófa. Reynsla nem-
enda úr HÍ sýnir að sú menntun
sem þar er veitt nægir til frekara
náms. Fullvíst er að mikill niður-
skurður á fræðilegri undirstöðu
þessarar menntunar mundi gera
útskrifaða nemendur óhæfa til frek-
ara háskólanáms.
Ef framhaldsnámið í tölvufræð-
um við VÍ á að vera undanfari
frekara náms til BS-prófs verður
það að vera fræðilegt að sama
skapi. En ástæða er til að ætla að
með því að gera námið við VÍ að
undanfaranámi til BS-prófs skaðist
það sem starfsþjálfunamám. Hlut-
verk háskóla er að horfa langt fram
í tímann. Háskólanám verður að
veita þann undirbúning sem nauð-
synlegur er til að stunda fræðilegt
framhaldsnám og rannsóknir í við-
komandi grein. Það getur verið
stundarhagur að vanrækja fræði-
lega menntun og rannsóknir, en
þegar fram i sækir mun það koma
atvinnugreininni og þjóðfélaginu í
koll.
Hin öra þróun í tölvufrælðum
veldur því að nám sem stanaast
skal tfmans tönn verður að miðast
við að veita nemendum sem traust-
asta undirstöðu sem nýtist til
frekara náms. Engin getur séð fyr-
ir þá sérþekkingu sem tölvufrseð-
ingar framtíðarinnar verða að
kunna skil á, en unnt er að gera
sér grein fyrir á hvaða undirstöðu
sú sérþekking verður að byggjast.
Hún er fræðileg. Þess vegna má
háskóli ekki skera niður fræðilegt
nám í þágu tækniþjálfunar líðandi
stundar. Nám það sem VÍ ætlar að
bjóða upp á í tölvufræðum fyllir
tómarúm sem verið hefur hér á
landi, ef leggja skal megináherslu
á tækniþjálfun sem nýtist sam-
stundis í atvinnulífínu. Þetta er
mikilvægt hlutverk, en meginhlut-
verk háskóla er annað."
Sumarhátí
20• - 31 júlí
Skínandi
tilboð
Bláber
450g
Verd kr.
135,00
Blávlnber pr.kg 219,00
Tómatar pr.kg 119,00
Gúrkur pr.kg 119,00
Kartöflur pr.kg 39,00
Rækjur 200g 110,00
Rækjur 5OOg 265,00
Nautahakk pr.kg 310,00
Ýsusteik 1 raspi pr. kg 268,00
Ýsameðostafyllingu pr.kg 327,00
Þykkvabæjar franskar l.5kg 158,00
Þykkvabæjarfranskar 700g 78,00
Þykkvabæjar strá 700g 78,00
Marineruð slld 850g 129,00
Hangiálegg pr.kg 1.098,00
Malakoff pr.kg 452,00
Veiðipylsa pr.kg 625,00
Rjómalifrarkæfa pr.kg 268,00
Bjórpylsa pr.kg 498,00
Kindabjúgu pr.kg 299,00
Vlnarpylsur pr.kg 310,00
Dalapylsur pr.kg 317,00
Kjötbúðingur pr.kg 280,00
W. 4 *L « g« i RBS
Prik þvottaduft 70 dl 213,00
Soiaolla 1ltr. ý’í 90,00
Sólblómaolla 1 Itr. 104,00
Svali 18femupakkning 252,00
Lucernekókómalt 907g 94,00
Lucemekókómalt 453g 57,00
Lucernekakóslróp 680g 75,00
Kjamagrautur, jarðarber 1 Itr 68,00
Libby'stómatsósa 340g 30,00
Libby'stómatsósa 567g ■ 47,00
Gerberbarnamatur 5lþk 85,00
Harpix ilmsteinn 3pk. 112,00
Paxobrauðrasp 5oz 30,00
Seikoananas ’/tds 64,00
DerryDownbleyjur 339,00
Maarud skrúfur 70 g 43,00
Maarudflögur 100g 54,00
Cheerios 7oz 55,00
Cheerios 15oz 114,00
Cocoapufís 12oz 118,00
Cocoapuffs _____ 17oz 159,00
Honey Cheerios '. 20oz 149,00
Trix 8oz 85,00
Wheaters 8oz 69,00
Bugles 175g 78,00
Kjamasultur ' ' 400g 57,00
Lotusbleyjur ' 3-6 kg 40stk. 385,00
Lotusbleyjur 10-18kg 36stk. 509,00
Ritzkex - 200g 45,70
Durrke franskar kartöflur I dós 14oz 199,00
Heinzbakaðarbaunir ’/zds 49,00
Mc. V.Homewheatmilk 300g 58,00
Busy Baker kex, Chocochip 400g 109,00
Eldhúsrúllur 4rl 99,00
Oragrænarbaunir Vids 53,00
Oragrænarbaunir kids 32,00
Malsbaunir ________ ’/tds 89,00
Malsbaunir ’/ids 58,00
Rauðkál
750g
71,00
wS-É
Þvol 0.505 Itr. 42,00
Dún 2ltr. 104,00
fva 2,3kg 223,00
Dofri tltr. 62,00
Miltfyrirbarnið 65Og 65,00
Milt fyrirbamið, mýkir 2ltr. 104,00
Prana þvottadult 70 dl 268,00
Botaniq þvottaduft 80 dl 286,00
Orahumarsúpa 30,00
Jaffaorarigedjús 11tr. 44,00
Jaffaepladjús Iltr. 44,00
Maggi kartöflumús 125g 55,00
Riverhrlsgrjón 1lbs 22,00
SS pylsusinnep 20g 31,00
Maggi - aspargus-, blómkáls-, sveppasúpa 23,00
Bragakalfi 250g 69,00
BragaAmerlkukaffi 1kg 253,00
Krydduð lambagríllsteik
354r
Maríneruð lambagríllsteik
Tec Orbylgjuoln 18 Itr. brúnn 388.-
Slaðgreiðsluverð
17.900.-
Skátatívolí
Reistar hafa verið þrautabrautir og spennandi
leiktæki fyriryngri gestina. Opið alla virka daga.
Kmkkar, komið að teikna!
Á sumarhátíðinni verður
teiknimyndasamkeppni
fyrir börn.
Jff7eiknað veröur á staðnum.
Sfp Heilt herbergi fullt
,/* af pappír og litum.
Myndefni: 1)Sumarfrfið
2) Sveitin
3) Sumarhátlð í Miklagarði
verða verðlaun fyrir 15 bestu myndirnar.
Verðlaun frá Playmobil, Lego og Barbie.
Karnevalförðun
Klukkan 4 alla daga hátfðarinnar verður
förðunarmeistari á staðnum.
Ævintýralegar andlitsskreytingar fyrir alla
aldurshópa.
Veitt
AIIKUG4RDUR
MIKID FYRIR LÍTIÐ