Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÖLÍ 1987 55 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS iur U^\ iltné'U 1F Þessir hringdu . . . Hla búið að öldr- uðum Ekkja á áttræðisaldri hringdi: „Við eram héma þrír ellilífeyr- isþegar sem eram ekki sáttar við þennan aukna skatt sem á að taka af okkur fyrir að nota símann. Við eram allar á áttræðis- aldri og þurfum því oft að nota símann á daginn til að ráðfæra okkur við lækna og sérfræðinga. Þetta eitt kostar okkur auðvitað skildinginn og því þykir okkur hart ef við eigum nú ekki lengur að geta notað símann á kvöldin án þess að símreikningurinn fari upp úr öllu valdi. Það er ekki of vel búið að öldr- uðum fyrir. Við eram allar eklqur eftir starfsmenn ríkis eða bæjar og höfum þvf úr litlu að spila. Við búum í blokk og þurfum því að taka þátt í því með nágrönnum okkar að halda sameigninni við en höfum ekki efni á nauðsynlegu viðhaldi innanhúss. Við borgum alla okkar skatta og há fasteigna- gjöld þótt tekjumar séu rýrar en fáum engar ívílnanir. Þvi þykir okkur hart ef nú á að gera okkur ókleift að nota símann eins og við þurfum." Ur týndist á tón- leikum Linda hringdi. Hún týndi úri á tónleikum sænsku hljómsveitar- innar Europe fyrir nokkra. Þetta er svart og gulllitað kvenúr og fínlegt. Ef einhver hefur rekist á úrið er hann beðinn að hringja í síma 83967. Týndur tref ill Hermann Ragnar Stefánsson hringdi. Hann týndi uppáhaldst- reflinum sínum fyrir um það bil mánuði. Trefíllinn er græn— og bláköflóttur af gerðinni Boss. Ef einhver veit um trefílinn er hann beðinn að hringja í síma 36141. Flögg í land- græðslupokana Lesandi hringdi: „Ég er einn þeirra sem hef keypt poka landgræðslunnar með grasfræjum og áburði og ég hef verið að velta því fyrir mér hvort ekki væri tilvalið að setja eins og tvö flögg, þau þurfa ekki að vera merkileg, ofan í pokana. Síðan gæti sá sem dreifír innihaldi po- kanna merkt svæðið á eftir með þessu. Það getur nefnilega hæg- lega komið fyrir að tveir eða fleiri dreifí áburði og fræjum á sama staðnum ef það sést hvergi að þegar hefur verið dreift. Það þarf ekki að koma nema ein dugleg regnskúr eftir að sáð hefur verið og þá sjást þess engin ummerki." Betri bréfalúgnr! Vinkona mín er að bera út blöð í Seljahverfi og um daginn hjálpaði ég henni. Það kom mér mjög á óvart hve bréfalúgumar vora stirð- ar og þungar í flestum húsunum. Við áttum fullt í fangi með að koma dagblöðunum í gegn. Og ekki nóg með það. Á sumum lúgunum var hlemmur fyrir innan þannig að maður þurfti að troða hendinni inn í lúguna og opna. Það er ekki beint auðvelt því að flestar bréfalúgur era svo þröngar að það liggur við að maður festi hendina í lúgunni. Því skoram við á alla húseigend- ur að smyija að minnsta kosti bréfalúgumar með smurolíu til þess að auðveldara verði að opna lúgum- ar fyrir blað— og póstburðarmenn. Tvær reiðar Minn Jesú þess ég beiði Eitt síðasta embættisverk Sverris Hermannssonar sem menntamála- ráðherra, ef ekki hið síðasta, var að birtast á skjánum og flytja al- þjóð lofsöng séra Hallgríms Péturs- sonar til íslenskrar tungu. Var það við hæfí enda sýnt að honum er gengi hennar hjartans mál. En ráð- herra varð á í messunni. Það sem séra Hallgrímur orðar: Minn Jesú þess ég ég beiði varð í munni Sverris: Minn Jesús þess ég beiði. Sverrir er skýrmæltur og kveður fast að. Virtust þijú ess þar sem séra Hallgrímur hefur ekkert. Engin afsökun er það fyrrverandi menntamálará’herra þótt ritstjórar síðustu sálmabókar hafí umtumað þessum sálmi og fleiram á þennan veg. Þess er að vænta að í nýrri útgáfu verði þessir agnúar sniðnir af, enda þá þjálli til söngs. Bjöm gamli í Grafarholti orti Jónas Hallgrimsson upp. Jónas kvað: Látum því vinir, vinið and- Það sem á vantaði í Velvakanda þriðjudaginn 21. júlí var innrömmuð smágrein sem bar yfirskriftina: „Kann einhverþað sem á vantar?" Þetta var frá Guðr- únu H. Kristjánsdóttur. Mér skilst að hana vanti aðeins lokalínu í eina vísu. Hjá mér era hæg heimatökin að upplýsa þetta og línan er einfald- lega þannig: Heyrðu mig nú, Gróa! Guðrún segir að þessar vísur í Morgunblaðinu hafí verið níu, en ég hef þær undir höndum og þar era þær ellefu. Ef Guðrún vill fara nánar út í þetta, þá hef ég síma 52656. ' Hafnfirðingur ann hressa. Bjöm breytti í: Vatnið andann hressa, svo að sönghæft yrði á fundum templara. Bjöm hafði jpví skiljanlegan tilgang með breyt- ingu sinni en sálmabókarritstjórar engan því að fánýt er sú tylliástæða að ekki sé unnt að kenna öllum verðandi prestum að beygja nafn frelsarans sem þeir ætla þó að þjóna. Þá er hér skot til Stöðvar 2 úr annarri átt. Lamb er ekki brúnt heldur mó- rautt. Sami litur húsdýra ber mismunandi heiti eftir tegund dýra, ekki síst ef um tvílit er að ræða. Kýr er skjöldótt, hryssa skjótt en ær flekkótt þótt um sama litaraf- brigði sé að ræða. Sama máli gegnir um ýmsa líkamshluta, þeir bera mismunandi heiti eftir tegundum. Ungir borgarbúar kunna lítil skil á þessum fjölskrúðugu nafngiftum og það að vonum, margir hafa aldr- ei komist í kallfæri við þessi húsdýr nema þá helst í erlendum dýragörð- um. Hins vegar verður að gera aðrar og meiri kröfur til frétta- manna Stöðvar 2. Að öðram kosti megum við vænta úr munni þeirra hala á þorski og sporð á kúm. Jón Á. Gissurarson HEILRÆÐI Til ferðafólks á öræfaslóð: Skjótt skipast veður í lofti 1. Gerið ferðaáætlun og látið aðstandendur eða vini vita um fyrirhugaða ferðaleið og viðkomustaði. 2. Grannskoðið allan búnað ykkar og vandið hann af stakri umhyggju. 3. Fylgist með veðurhorfum og leggið ekki upp í öræfa- ferð ef spáð er slæmu veðri. 4. Á öræfaslóðum er allra veðra von. Klæðist vel og vandið fótabúnaðinn. 5. Aflið ykkur ávalt sem bestra upplýsinga um það landsvæði sem þig hyggist fara um. Skatt á fisk í gámum Mér fínnst að það ætti að ræða um togarasjómenn í allri þessari umræðu um skatta á hátekjufólk. Þeir fá sjómannafrádrátt og nú er fískverð fijálst sem ætti að auka tekjur þeirra. Enda þarf klíkuskap til að komast á sjó núna í góðær- inu. Það era alltaf vinir og vanda- menn látnir ganga fyrir. Þetta er alla vega skoðun mín eftir að hafa verið töluvert á sjó. Það er mun léttara að vinna á skuttogara en víða annars staðar. Þá fínnst mér rétt að setja hátekju- skatt á þá sem selja físk í gámum og söluskatt á allt hráefni sem selt er óunnið. Það er skömm að því hvemig farið er með fiskverkunar- fólk sem er búið að sérhæfa sig svo áram skiptir. Það á líka rétt á góð- ærinu. J.G. „Byrgjum Að gefnu tilefni er vert að minna á hina miklu slysahættu sem skap- ast þar sem heitir pottar í görðum era hafðir án loka eða hlífa milli notkunar. brunninn“ Lítil böm geta hæglega farið sér að voða, falli þau ofan í þá. Því er nauðsynlegt að setja tryggilegt lok eða segl yfír til að koma í veg fyr- ir slys. Töflur 790 Tegund: 3083 lux Litur: hvítt Stærð: 35-42 Efni: Skinn -i- innlegg. Tegund: 3079 Litur: Hvítt Stærð: 38-42 Efni: Skinn + innlegg. 5% staðgreiðsluafsláttur. TOY$ji Póstsendum ^áttR'Oni rubibenaum. veltusundi 1 Póstsendum. Tökum Visa og Euro credit. 21212 P fyrir verslunarmannahelgina Opið til kl. 19 föstudag og til kl. 13 laugardag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.