Morgunblaðið - 31.07.1987, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987
57
KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD
Fyrsti sigur KR
gegn Fram í 3 ár
LEIKIR Fram að undanförnu
hafa verið mjög fjörugir og ekki
hef ur vantað mörkin — 18 mörk
í síðustu þremur leikjum í
deildinni og 10 mörk ítveimur
leikjum bikarkeppninnar. En þó
Framarar hafi mjög sterku liði
á að skipa og leiki skemmtileg-
an sóknarbolta lengst af, er
varnarleikurinn þeirra höfuð-
verkur — eins og reyndar
KR-inga.
Framarar yfirspiluðu KR-inga í
fyrri hálfleik, léku eins og
meisturum sæmir, allt spil var
þeirra og forystan tvö mörk í hléi.
í seinni hálfleik
snerist dæmið við,
heimamenn komu
tvíefldir til leiks,
gestimir áttu í vök
að veijast og svo fór að fyrsti sigur
KR gegn Fram í þijú ár var stað-
reynd.
Öll mörkin voru glæsileg og komu
eftir gott spil. Framarar léku vei
saman og sóknir þeirra voru mark-
vissar í fyrri hálfleik.
Pétur Ormslev var potturinn og
pannan í fyrra marki þeirra, hljóp
upp vinstri kantinn, lék á Þormóð
og Ágúst Má við endamörkin, gaf
á Ormar, er hann nálgaðist mark-
teiginn; Ormarr náði ekki boltanum,
en það gerði Einar Ásbjöm, sem
einnig var á auðum sjó, og hann
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
skoraði örugglega upp í þaknetið,
hans fyrsta mark í deildinni í sumar.
Seinna markið var mjög glæsilegt
hjá Guðmundi. Ormarr sendi á hann
KR-Fram
3:2
KR-völlur 1. deild, fímmtudaginn 30.
júlí 1987.
Áhorfendur: 1645.
Mörk KR: Rúnar Kristinsson (48.),
Ágúst Már Jónsson (54.), Willum Þór
Þórsson (81.).
Mörk Fram: Einar Ásbjöm ólafsson
(17.), Guðmundur Steinsson (24.).
Gult spjald: Þorsteinn Halldórsson KR
(33.), Kristinn Jónsson Fram (77.).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Eysteinn Jónsson 5.
Lið KR: Páll ólafsson 2, Þormóður
Egilsson 2, Ágúst Már Jónsson 2, Jó-
steinn Einarsson 2, Þorsteinn Halldórs-
son 2 (Júlíus Þorfínnsson vm. á 78.,
lék of stutt), Gunnar Skúlason 2, Rúnar
Kristinsson 3, Andri Marteinsson 2,
Willum Þór Þórsson 2, Bjöm Rafnsson
1 (Stefán Steinsen vm. á 78., lék of
stutt), Pétur Pétursson 2.
Samtals: 22.
Lið Fram: Friðrik Friðriksson 2, Þor-
steinn Þorsteinsson 1, Janus Guðlaugs-
son 2, Ormarr Öriygsson 3, Viðar
Þorkelsson 2, Kristján Jónsson 1 (Óm-
ar Valdimarsson vm. á 70. 1), Einar
Ásbjöm Ólafsson 2, Pétur Amþórsson
1 (Kristinn Jónsson vm. á 67. 1), Pétur
Ormslev 3, Guðmundur Steinsson 3,
Ragnar Margeirsson 2.
Samtals: 22.
frá hægri, Guðmundur sneri sér
framhjá Ágústi Má í rúman hálf-
hring með boltann sem stæði hann
á tíeyringi og hamraði í netið.
Rúnar kom KR á bragðið með
frábæru marki. Andri hljóp Pétur
Ormslev af sér á vinstri kantinum,
gaf á Rúnar, sem var utan við teig,
og hann skaut upp í vinkilinn nær
— fyrsta mark Rúnars í sumar.
Ágúst Már skoraði einnig sitt fyrsta
mark. Andri tók aukaspymu, Jó-
steinn skallaði á Ágúst Má, sem
henti sér fram og skallaði í netið
af stuttu færi.
Willum gerði síðan út um leikinn
með með góðu skoti frá hægri rétt
við vítateigshomið, boltinn í Andra
og inn.
KR-ingar voru vægast sagt slakir
í fyrri hálfleik, en allt annað var
að sjá til liðsins í þeim seinni. „Ef
við skorum fljótlega eftir hlé vinn-
um við ieikinn," sagðist Gordon Lee
hafa sagt við sína menn og það
vom orð að sönnu. En þrátt fyrir
góðan seinni hálfleik var vöm liðs-
ins ekki traustvekjandi.
Framarar em með sterkt og reynt
lið, sem á að geta haldið út í 90
mínútur, en þeir gáfu eftir í seinni
hálfleik og töpuðu fyrir bragðið.
Ef liðið leikur eins og í fyrri hálf-
leik stenst ekkert lið þeim snúning,
en að bakka er sama og tap.
Eysteinn dómari hefur oft dæmt
Morgunblaöiö/Einar Falur Ingólfsson.
Barátta
Ragnar Margairsson til vlnstrl sækir hér aö Jóstalni Einarssynl
f leiknum é KR-velli I gærkvöldi. Framarar byrjuöu betur og éttu
fyrri hálfleik, en dæmiA snerlst vlA í þelm seinnl.
betur. Hann var óákveðinn, sleppti
augljósum brotum, en stöðvaði
sfðan leikinn á stundum, þannig að
sá brotlegi hagnaðist.
Fyrsti sigur Víðis í deildinni
VÍÐISMENN unnu sinn fyrsta
deildarleik á keppnistímabilinu
í Garðinu í gærkvöldi í söguleg-
um leik. Andstæðingarnir voru
FH-ingar og urðu þeir að leika
einum færri mestan hluta leiks-
ins. Markverði þeirra, Halldóri
Halldórssyni, var vikið af lei-
kvelli í fyrri hálfleik fyrir gróft
brot. Halldór missti stjórn á
skapi sínu er hann gekk í hús
og braut rúðu í útidyrum á
íþróttavallarhúsinu. Eftir leik-
inn veittust svo nokkrir stuðn-
ingsmenn Fh að dómaranum
og var framkoma þeirra ekki
til fyrirmyndar.
Við lögðum allt í sigur í þessum
leik og það tókst," sagði Hauk-
ur Hafsteinsson, þjálfari Viðis, í
gærkvöldi. Talsverð úrkoma var og
gg^g^^H glerháll völlurinn
Frá Bimi setti mark sitt á
Blöndali leikinn. Víðismenn
Garðinu sóttu meira og ko-
must yfír með
skallamarki Svans Þorsteinssonar
eftir fyrirgjöf. En fögnuður þeirra
var skammvinnur því á næstu
mínútu jafnaði Guðjón Guðmunds-
son fyrir FH með skalla eftir
fyrirgjöf. Þá var komið að vendi-
punkti leiksins er Halldór Halldórs-
son fékk að líta rauða spjaldið.
Grétar Einarsson komst inn fyrir
vöm FH, Halldór fór í úthlaup og
hljóp Grétar gróflega niður. Dómar-
inn, Gisli Guðmundsson, var ekki í
neinum og vísaði Halldóri af lei-
kvelli. Varamarkvörður FH kom inn
á og sóknarleikmaðurinn Kristján
Hilmarsson fór út af. Skömmu síðar
fengu Víðismenn vítaspymu, Vil-
berg komst í gegn eftir laglega
1. DEILD KVENNA
Tæpt
hjáVal
TVEIR leikir fóru fram í 1. deild
kvenna í gærkvöldi. Valur vann
Þór á Akureyri 3:2 og Stjarnan
vann ÍBK4:1.
Þórsstúlkumar stóðu í íslands-
meistumm Vals, sem þó vom
ætíð fyrri til að skora og komust í
2:0, en staðan var 2:1 í hálfleik.
Margrét Óskars-
dóttir skoraði fyrst,
síðan Ingibjörg
Jónsdóttir, en Ingi-
gerður Júlíusdóttir
minnkaði muninn fyrir hlé.
Ragnheiður Víkingsdóttir skoraði
þriðja mark Vals, en Kolbrún Jóns-
dóttir annað mark Þórs skömmu
fyrir leikslok.
Stjaman var 3:0 yfír í hálfleik gegn
ÍBK, en jafnræði var með liðunum
í þeim seinni. Erla Rafnsdóttir og
Guðný Guðnadóttir skiptu mörkum
Stjömunnar jafnt á milli sín, en
Stefanía Magnúsdóttir skoraði fyrir
ÍBK.
Frá
Emu
Lúðviksdóttur
1. deild
KR - FRAM
VÍÐIR - FH
3:2
5 : 2
sendingu frá Daníel Einarssyni,
honum yar bmgðið og vítaspyma
dæmd. Úr henni skoraði Daníel ör-
ugglega.
FH-ingar tóku áhættu í síðari hálf-
leik og lögðu allt í að jafna metin.
Víðismenn sóttu meira fyrir bragðið
en FH-ingar áttu nokkrar hættuleg-
ar sóknir og úr einni slíkri fengu
þeir vitaspymu. Markvörður Víðis
braut á sóknarmanni FH sem kom-
inn var i gegn og úr vítinu skoraði
Guðmundur Hilmarsson ömgglega.
Viðismenn áttu svo síðustu orðin í
þessum leik og Grétar Einarsson
sendi boltann tvívegis í mark FH-
inga eftir herfíleg vamarmistök
þeirra.
Dómari var Gísli Guðmundsson.
Stóð hann sig ágætlega og hafði
kjart til að taka erfíðar ákvarðanir.
Víðis - FH
5 : 2
Garðsvöllur 1. deild, fimmtudaginn 30.
júlí 1987.
Mörk Víðis: Svanur Þorsteinsson
(29.), Daníel Einarsson (víti 40.), Grét-
ar Einarsson (43., 77., 81).
Mörk FH: Gu^jón Guðmundsson (30.),
Guðmundur Hilmarsson (víti 74.).
Gult spjald: Hörður Magnússon, FH
(62.), Guðjón Guðmundsson, Víði (68.),
Jón Eriing Ragnarsson (78.), Sævar
Leifsson Víði (80.).
Rautt spjald: Halldór Halldórsson, FH
(35.).
Áhorfendur: 780.
Dómari: Gísli Guðmundsson, 7.
Lið Víðis: Jón Örvar Arason 2, Bjöm
Vilhelmsson 3, Vilhjálmur Einarsson
2, Svanur Þorsteinsson 2, Danfel Ein-
arsson 2, Guðjón Guðmundsson 2,
Vilberg Þorvaldsson 3, Ólafur Róberts-
son 2, Grétar Einarsson 3, Gísli
Eyjólfsson 2, Sævar Leifsson 3.
Samtals: 26.
Lið FH: Halldór Halldórsson 1 (Friðrik
H. Jónsson, vm. á 35. mín., 1), Grétar
Ævarsson 2, Henning Henningsson 2
(Ólafur Kristjánsson, vm. á 45. mín.,
2), Pálmi Jónsson 3, Ian Flemming 3,
Guðmundur Hilmarsson 2, Hörður
Magnússon 2, Gudjón Guðmundsson
2, Jón Eriing Ragnarsson 2, Magnús
Pálsson 2, Kristján Hilmarsson 2.
Samtals: 23.
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Leiklr U j T Mörfc u J T Mörk Mörfc Stig
VALUR 12 4 2 0 15: 5 3 2 1 7 : 4 22: 9 25
KR 12 5 1 0 16 : 3 1 3 2 6 : 7 22: 10 22
PÓR 12 4 1 1 17 : 7 3 0 3 6 : 11 23: 18 22
ÍA 12 4 0 2 11 : 9 2 2 2 9: 9 20: 18 20
FRAM 11 1 2 2 7: 9 3 1 2 10: 9 17: 18 15
KA 12 2 1 3 10: 6 2 1 3 4: 6 14: 12 14
VÖLSUNGUR 11 1 2 3 7 : 8 2 1 2 4 5 11 : 13 12
ÍBK 12 1 2 3 5 : 7 2 1 3 13 : 18 18: 25 12
VlÐIR 12 1 3 2 8: 8 0 4 2 2: 13 10: 21 10
FH 12 2 1 3 5 : 7 1 0 5 8 19 13: 26 10
1. deild kv.
ÞÓRAK. - VALUR
STJARNAN - IBK
2:3
4 : 1
HEIMALEIKIR
UTILEIKIR
SAMTALS
Lalkir u J T Mörk u J T Mörk Mörfc Stlg
VALUR 11 4 1 0 13: 1 5 1 0 18: 4 31 : 5 29
ÍA 10 5 0 1 14: 3 3 1 0 7 : 3 21 : 6 25
STJARNAN 10 3 0 1 8 : 7 3 1 2 7: 6 15: 13 19
KR 10 1 2 1 7: 2 3 0 3 7 : 4 14: 6 14
KA 10 2 2 2 5: 8 0 1 3 3: 7 8: 15 9
ÍBK 10 1 1 4 5 13 1 1 2 3: 10 8: 23 8
ÞÓRAK. 10 1 0 4 6: 7 1 0 4 6: 19 12: 26 6
UBK 9 1 0 3 5: 10 0 i 4 0: 10 5: 20 4
Breskur þjálfari
til Keflavíkur
um helgina
BRESKUR þjálfari er væntan-
legur til Keflavíkur um helgina
til viðræðna við knattspyrnur-
áðsmenn. Sem kunnugt er, var
samkomulag um að Peter Keel-
ing hætti, en hann hafði þjálfað
1. deildarlið ÍBK frá því í vor.
Keflvikingar hafa í tveimur
síðustu leikjum verið með
íhlaupamenn til að stjórna lið-
inu.
Krislján Ingi Helgason, formað-
ur knattspymuráðs sagði að
Bretinn héti Frank Upton og hefði
verið hjá Aston Villa. Hann hefði
misst starf sitt, þeg-
FráBimi ar nýr fram-
Blöndal kvæmdastjóri tók
ÍKefíavik við af Taylor.
„Upton hafði sam-
band við vin sinn Halldór Einarsson
„Henson", sem síðan kom okkur í
samband við hann.“
Kristján sagði að Ian Ross, þjálfari
Vals, þekkti til Uptons og mælti
með honum. „Við erum að vona að
samkomulag takist og Upton verði
með liðið það sem er eftir af keppn-
istímabilinu, en það kemur væntan-
lega í ljós um helgina, hvort honum
líst á okkur og okkur á hann,“ sagði
Kristján enn fremur.