Morgunblaðið - 22.08.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987
Dalton sem „hinn sanni Bond“
Erfið ákvörð-
un að leika Bond
-segir Timothy Dalton
Timothy Dalton var lengi á báðum
áttum um hvort hann ætti að
taka að sér hlutverk James Bond,
enda ekki auðhlaupið að því að feta
í fótspor þeirra Sean Connery og
Roger Moore. „Ef mér mistekst, þá
verða það heimsfræg mistök", segir
Dalton í nýlegu viðtali.
Dalton hefur áður verið orðaður
við hlutverk Bonds, fyrst árið 1971,
eftir að Connery hætti, og aftur árið
1979. Honum var svo aftur boðið
hlutverkið í fyrra, og ákvað að taka
því eftir að framleiðendur myndarinn-
ar „Logandi hræddir" fullvissuðu
hann um að ætlunin væri að „hverfa
aftur til anda Ian Flemings". Dalton
líkar best við fyrstu Bond-myndimar
- eins og „Dr. No“ sem hann sá 15
ára gamall. „Þær voru spennandi,
æsilegar og alvarlegar myndir“, segir
Dalton, „síðan færðust Bond-mynd-
imar í átt að vera ofhlaðnar og
alvörulausar. Nú höfum við aftur
farið að túlka hinn sanna Bond“.
Dalton undirbjó sig fyrir að leika
„hinn sanna Bond“ með því að lesa
upp á nýtt allar 12 skáldsögur Ians
Flemings um njósnarann 007, auk
tveggja smásagnasafna hans. Hann
komst að þeirri niðurstöðu að „Bond
hefur hæfileika til að til að hegða sér
eins og vél sem svífst einskis til að
ná settu marki, en samtímis er hann
viðkvæmur og tilfmningaríkur.“
Timothy Dalton er enginn nýgræð-
ingur í leiklistinni. Hann hefur leikið . .
í kvikmyndum eins og „The Lion in
Winter“ með Katharine Hepbum,
„Wuthering Heights", og „Agatha",
með Dustin Hoffman og Vanessu
Redgrave. Hann hefur einnig leikið
mikið á sviði í London, og nú síðast
lék hann á móti Redgrave í Shakespe-
are-leikritunum „Antony og Cleop-
atra“ og „Skass skal tamið". Næsta
hlutverk Daltons er á móti Brooke
Shields í kvikmyndinni „Brenda
Starr"; og svo heldur hann auðvitað
áfram að leika James Bond.
Blíða á
Blönduósi
| síðustu viku var haldinn
útimarkaður á Blönduósi, og
mætti þangað fjöldi manns í
blíðskaparveðri, eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum.
Á markaðinum var boðið upp
á margs konar vörur og þjón-
ustu; þar var hægt að kaupa
kál og keramikpotta, og jafn-
vel að fá klippingu. En
meðfylgjandi myndir segja
meira en mörg orð um stemn-
inguna á útimarkaðinum.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Sumir notuðu tækifærið og fengu sér klippingu undir beru lofti
í blíðunni.
UOMA
1ALLÝ
BALL ,
fi®ll®\ Hu!
fciMpk 181
MMSfi
Söngvarinn ▼
og dansarinr)
Minnum
Ljómarallý ballið
laugardaginn
29. ágúst nk.
ÉtÉtlá
d
Skemmtiatriði
og verðlauna
afhending.
Ný og upprennandi stjarna frá Bandaríkjunum
'skemmtir í Broadway í kvöld
Missið ekki af einstöku tækifæri til að sjá
stórkostlega sýningu.
• JÉj
-V ■. • • • í
Hin frábæra
hljómsveit
litÍIÉll
llii
mmmm
fteasáMgslj
hefur sett saman
meiriháttar
stuðdagskrá fyrir
gesti BROADWAY
A NÆSTUNNI
Skelltu þér í Broadway
Húsiðopnaðkl. 22.00.
18 ára aldurstakmark.
Munið
smáréttahornið!
Ýmsir léttirréttir
ásíðkvöldi.
I KVOLD
f ERDASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Mö®£-/y