Morgunblaðið - 25.08.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987
Grunnskólar
á Vestfjörðum:
Aðstöðu
til skóla-
halds víða
ábótavant
Á VESTFJÖRÐUM skortir rúm-
lega 40% þess skólahúsnæöis sem
þörf er á samkvæmt viðmiðun
menntamálaráðuneytisins.
Kennsiuhúsnæði er um 66,3% af
þvi sem talið er þurfa og mikið
vantar upp á að fullnægjandi
aðstaða sé til íþrótta-, félags- og
samkomuhalds.
Þetta eru helstu niðurstöður nýrr-
ar könnunar á húsnæði og búnaði
grunnskóla á Vestfjörðum 1987 og
er könnunin áfangi í starfí nefndar
Fræðsluráðs Vestijarða um átak í
skólamálum. Gerður var saman-
burður á húsrými og reynt á einfald-
an hátt að fá samanburð á búnaði
skólanna og aðstöðu þeirra til
kennslu einstakra greina.
Mikill mismunur er á kennsluiými
eftir skólum og gildir það sama um
félags- og samkomuaðstöðu og
íþróttarými. Kennslurými sem að
meðaltali er tæplega 60% af viður-
kenndri þörf fer á nokkrum stöðum
allt niður í um 20%. Félags- og sam-
komuaðstöðu skortir svo til alveg á
flestum smærri stöðum en telst vera
rúm 32% í fræðsluumdæminu öllu.
Morgunblaðið/Þorkell
Hafnargerð í Viðey
Stanslaust er unnið að hafnargerð í Viðey. Um helgina flutti risaprammi stóran krana, þungavélar og steypubíla með
steypu I út í eyna þar sem steyptur var viðlegukantur. Myndin var tekin þegar pramminn var á leið út í Viðey.
Þá er víða bágborin aðstaða hvað
íþróttarými varðar og vantar á heild-
ina litið tæp 60% á að þar sé full-
nægjandi aðstaða.
I könnuninni er stuðst við mat
heimamanna á búnaði og tækjum
skólanna og segir í formála að ljóst
sé að um ófullkomið mat sé að ræða,
en nefndin hafí talið að of tímafrekt
og dýrt væri að gera úttekt á hveij-
um stað fyrir sig og því þessi leið
farin. Það fer hins vegar ekki á
milli mála að skólamir eru misvel
settir hvað búnað og tæki snertir
og víða enginn búnaður til kennslu
í sérgreinum eða óviðunandi að
mati heimamanna. Einnig vantar
skólasöfn víða.
Nefíidina, sem að könnuninni
stóð, skipuðu Pétur Bjamason
fræðslustjóri, Geirþrúður Charles-
dóttir varaformaður Fræðsluráðs og
Jón Baldvin Hannesson skólastjóri.
Innheimta Hitaveitu og Rafmagnsveitu:
Veitustjórana greinir á um
hagkvæmni aðskilnaðar
BORGARRÁÐ hefur ákveðið að
skilja að innheimtu Hitaveitu og
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Stefnt er að þvi að aðskilnaðurinn
komi til framkvæmda í haust.
Bæði fyrirtækin hafa gert áætlan-
ir um kostnað við að reka sjálf-
stætt innheimtukerfi. Rafmagns-
veita Reykjavíkur telur sig þurfa
39,5 stöðugildi og 47,3 miRjónir
en Hitaveita Reykjavíkur 11
stöðugildi og 12,5 milljónir á ári.
Áætlað er að kostnaður vegna
aðskilinnar innheimtu verði 5-6
milljónir króna. Jóhannes Zoega,
hitaveitustjóri segir þessa breyt-
ingu verða til hagræðis, en
Aðalsteinn Guðjohnsen, raf-
Ráðstefna um rækjuvinnslu:
Gámafiskurinn fluttur
fullunninn til Islands
ísafirði.
TALIÐ er að heildarneysla í Japan, Frakklandi og Bretlandi á rækju
nemi um 275.000 lestum á ári og er neyslan í Japan langmest, eða
um 230.000 lestir. Þetta kom m.a. fram í erindi Magnúsar Magnússon-
ar frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna á ráðstefnu um þróun rækju-
vinnslu sem haidin er á ísafirði.
Á síðastliðnu ári, sem var metár í
rækjuveiðum, fluttu íslendingar út
8000 lestir af rækju og fóru 13%
hennar til Japan og 44% til Bret-
lands. Þá fóru um 19% útflutningsins
til Danmerkur, en talið er að mikill
hluti þeirrar rækju sé fullunninn þar
til sölu á erlendum mörkuðum.
Heimir L Fjeldsted framkvæmda-
stjóri Marska hf. á Skagaströnd flutti
erindi um fullvinnslu sjávarafurða.
Hann gat þess að meginhluti
íslenskra fiskafurða væri fluttur
óunninn úr landi og benti á þá miklu
þversögn að þessi höfuðgrein
íslenskrar matvælaframleiðslu, físk-
vinnslan, væri ekki talin til matvæla-
iðnaðar af því opinbera.
Á meðan íslensk matvælafyrirtæki
sem vinna úr sjávarafurðum berjast
í bökkum og njóta lítils skilnings
flytja útlendingar til íslands tilbúna
sjávarrétti m.a. til sölu í sjúkrahúsum
rfkisins og taldi Heimir að þama
væri gámafískurinn kominn heim aft-
ur úr góðri Evrópureisu.
Sala á tilbúnum réttum fer mjög
ört vaxandi í heiminum og tók Heim-
ir sem dæmi að í Bandaríkjunum
hefði framleiðsla á frystum tilbúnum
réttum þrefaldast frá árinu 1979 og
er veltan nú um 3 milljarðar dollara
á ári.
í Svíþjóð einni er talið að flórar
milljónir rétta séu snæddar daglega
utan heimilanna, en íbúar Svíþjóðar
eru rúmar átta milljónir. Þróun fram-
leiðslu á tilbúnum réttum úr sjávaraf-
urðum hjá Marska hf. hefur verið
dýr, kostað mörg mistök og tekið
langan tíma, en er nú að byija að
skila árangri. Er þar mikilvægastur
samningur um sölu á 100 tonnum
af ýsu- og rækjuréttum til Svíþjóðar
og Finnlands. Búist er við að samið
verði um sölu á miklu magni til við-
bótar í næstu framtíð. Þróun full-
vinnslu matvæla sagði Heimir mjög
flókna og ólíklegt að hún tæki miklum
breytingum á meðan íslendingar búa
við það sölukerfí sem nú er við lýði.
Áð lokinni ráðstefnunni á laugar-
dag buðu rækjuverksmiðjumar við
Djúp þátttakendum til samkvæmis í
veitingastaðnum Krúsinni. Að sögn
þeirra sem ráðstefnuna sátu og Morg-
unblaðið hafði samband við var
framkvæmd ráðstefnunnar mjög góð,
fyrirlestrar vandaðir og ýmsar upp-
lýsingar sem fram komu þátttakend-
um mikilvægar.
Úlfar
magnsstjóri, telur þjónustuna
eiga eftir að versna til muna.
„Ég er ekki það kunnur kerfí Raf-
magnsveitunnar að ég geti sagt af
hveiju þessi munur á áætlunum fyrir-
tækjanna stafar," sagði Jóhannes
Zoega, hitaveitustjóri, í samtali við
Morgunblaðið. „Kerfi Rafínagnsveit-
unnar er mun flóknara en okkar
kerfi. Sér í lagi er gjaldskrá Raf-
magnsveitunnar mun flóknari en
Hitaveitunnar. Það er líklega aðal-
ástæðan fyrir þessum mun. Okkar
tölur eru líka einungis áætlun sem
við byggjum á innheimtu er við höfum
áður séð um. Auk þess höfum við
tekið til samanburðar önnur fyrirtæki
með svipuð kerfi og okkar. Við teljum
þessa breytingu vera til hagræðis.
Sér í lagi fyrir fólk sem vill fá leiðrétt-
ingar eða er með kvartanir. Það getur
nú snúið sér beint til okkar án milli-
liða. Innheimtukostnaður Hitaveit-
unnar mun líka lækka stórlega ef
áætlanir okkar standast."
Aðalsteinn Guðjohnsen, rafmagns-
syóri, sagði i samtali við Morgun-
blaðið, að hann teldi þessa breytingu
vera stórt skref afturábak. „Þetta
mun hafa í för með sér mikinn
tvíverknað, til dæmis í sambandi við
álestur, fyrirspumir, lokanir og þá
10.000 flutninga sem eru árlega og
krefjast sérstaks aflestrar. Sá
tvíverknaður hlýtur að hafa í för með
sér óþægindi fyrir viðskiptavini. Ég
sé ekki annað en að þjónustan í heild
muni versna til muna þó að í þeim
fáu tilvikum, innan við 150 á ári, þar
sem Raftnagnsveitan þarf að vísa
fólki til Hitaveitunnar til að fá úr-
lausn mála sinna, kunni þetta að
verða til batnaðar."
Aðalsteinn sagði þann mikla mun
sem er á kostnaðaráætlunum Raf-
magnsveitunnar og Hitaveitunnar
stafa fyrst og fremst af því að Raf-
magnsveitan hefði um tvöfalt fleiri
mæla og þar með reikninga. Auk
þess væri rafmagnssala mun flóknari
þar sem rafmagn væri selt eftir mis-
munandi töxtum til mismunandi
notenda. „Við höfum einnig byggt
upp okkar innheimtukerfí, bæði hvað
vaíðar tölvur og mannafla, með það
í huga að geta sinnt báðum fyrirtækj-
unum. Tölur Hitaveitunnar um
innheimtukostnað tel ég með öllu
óraunhæfar, þær eru byggðar á áætl-
unum en okkar á reynslu. Ég tel að
við séum að fara úr nútímanum aftur
í miðaldir við þessa breytingu."
Landsvirkjun tekur
1560 milljón króna lán
UNDIRRITAÐUR var í gær f London lánssamningiir milli Landsvirkjun-
ar annars vegar og Hambros Bank Limited, London, og sjö annarra
erlendra banka hins vegar um lán til Landsvirkjunar að fjárhæð 40
miiy. Bandaríkjadollara að jafnvirði um 1560 miRj. kr. á núverandi gengi.
anum. í lok hvers vaxtatímabils má
Lánið er til 10 ára og er það tekið
með einfaldri ábyrgð eigenda Lands-
virlqunar. Það er afborgunarlaust
fyrstu 5 árin, en endurgreiðist siðan
með 11 jöfnum hálfsárslegum
greiðslum. Landsvirkjun er þó heim-
ilt að greiða lánið upp að meira eða
minna leyti hvenær sem er á lánstím-
breyta skuld samkvæmt láninu úr
Bandaríkjadollurum í aðra þá gjald-
miðla, sem yfírfæra má hömlulaust
á hveijum tíma í Bandaríkjadollara
og einnig má á sama hátt breyta
skuld úr slikum gjaldmiðlum i Banda-
ríkjadollara.
Vextir af láninu eru millibanka-
vextir I London eins og þeir eru á
hveijum tíma að viðbættu vaxtaálagi
sem er 3/16% p.a. Þannig reiknaðir
eru vextir þessir nú um 7,5% p.a. að
meðtöldu vaxtaálaginu.
Lánið er tekið samkvæmt heimild
í lánsfjárlögum og kemur í stað eldra
og óhagstæðara láns hjá Hambros
Bank Limited, segir í frétt frá Lands-
virkjun.