Morgunblaðið - 25.08.1987, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 25.08.1987, Qupperneq 18
18 _________ MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 Eyðni — iðrun o g trú eftir Gunnar Þorsteinsson Þórhallur Már skrifar grein í Morgunblaðið ekki alls fyrir löngu og lætur í skrifum sínum fara fyrir bijóst sér ákveðin ummæli undirrit- aðs. Ég undrast ekki að ýmsir þegnar þessa lands taki viðbragð er einhver stendur heilshugar með öllu orði Guðs. En þetta lagast. Ég var eitt sinn í sömu sporum og ég hef þá trú að menn munu opna augu sín í auknum mæi fyrir útúr- snúningalausu orði Guðs. Það er í sjálfu sér ekki ámælis- vert, miklu fremur virðingarvert, ef menn hafa skoðanir sem eru bomar fram á hræsnislausan hátt eins og hann gerir. Ég geri mér ljóst að ekki sjá allir hlutina sömu augum og heilbrigð skoðanaskipti eiga fullan rétt á sér. Ég vil gera grein fyrir þvl að ég er í grundvall- aratriðum ósammála þeirri hug- myndafræði er _ fram kemur í skrifum hans. Ég tel orð Guðs óskeikult og þann lokadóm, sem við getum skotið öllum málum til. Ég skammast mín ekki fyrir að trúa sérhveijum stafkrók ritningarinnar og bendi mönnum hiklaust á að gjöra síkt hið sama. Það sem ég hef verið að reyna að benda á í veikleika, er sá skort- ur á heilindum við sannleikann, sem kemur fram í því að staðreyndum er hnikað og þjónkun við ríkjandi siðferði er algjör. Jafnvel hjá þeim er hamla ættu á móti þeirri óheilla- þróun, sem er að eiga sér stað með þjóð okkar. Þórhallur Már segir að undirrit- aður virðist hafa fundið „patent lausn“ við sjúkdómnum eypni. Það er á misskilningi byggt. Ég kann ekki að lækna þennan sjúkdóm frekar en aðrir dauðlegir menn. En ég veit hvemig hægt er að lifa lífinu þannig að menn geta verið fullkom- lega óttalausir gagnvart smiti. Þar bendi ég á að framganga sam- kvæmt þeim boðum sem fram kemur í hinni helgu bók, Biblíunni. Sú velferð sem við nú búum við byggir á hlýðni við þau boð og tel ég það vera mikið slys, ef menn varpa þeim sannindum fyrir róða. I þessu samhengi vil ég einnig benda á að Jesús dó ekki aðeins fyrir syndir mannanna, heldur einn- ig fyrir sjúkdóma þeirra. „Patent lausn" kann ég því ekki, en ég get með fullri djörfung bent mönnum á kross Jesú Krists. Það væri vissulega gaman að ræða til hlítar þau atriði er fram koma í skrifum Þórhalls, en rúms- ins vegna verður það að bíða betri tíma, en ég vil benda Þórhalli á að um þessi mál og mörg önnur fjöllum við á samkomum okkar og hann er hjartanlega velkominn, t.d. á sunnudaginn kl. hálf fimm. Hempuklæddur maður, vígður þjónn sannleikans, hefur einnig kvatt sér hljóðs og undrast að sum- ir séu sagðir syndugri en aðrir. Ég vil taka undir þessa undrun. Vita menn ekki að sá sem hrasar í einu atriði er orðinn sekur við öll boðorð lögmálsins? Að tala um „stigskipt- ingu syndar" er fráleitt. Það að vera í syndinni, lifa syndinni og velja syndina útilokar menn frá þegnrétti Guðsbama, algjörlega óháð því hver sjmdin er. Að flikka syndir í smáar og stórar er ekki í verkahring okkar. Það er þó ljóst að við eigum að greina hvar skilin eru á milli hins kristna manns og þess er hafnar náð Guðs og velur myrkrið. Það eru ekki allir menn kristnir, heldur ein- ungis þeir sem hafa valið þann veg og beygja sig í auðmýkt fyrir vilja lifandi Guðs. Hér held ég að hnífur- inn standi í kúnni. Náð Guðs er ekki einhver massi sem flýtur inn í fólk óumbeðið eða verður hlutskipti manna við ytri athafnir. Náð Guðs er óverðskulduð og er veitt í Jesú Kristi. Við tökum á móti náð Guðs með trúnni og þar er ekki manngreinarálit. „Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð og þeir réttlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi Jesú.“ „Því fyrirheitið er byggt á trú, til þess að það sé af náð.“ „Þannig vildi hann á komandi öldum sýna hinn yfirgnæfandi ríkdóm náðar sinnar með gæsku sinni við oss í Kristi Jesú. Því að af náð eru þér hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf. Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því.“ Hér legg- ur Páll postuli orð í belg og samkvæmt textanum réttlætist maðurinn fyrir trú á endurlausnar- verk Jesú Krists. Trúin kemur síðan af boðuninni, en boðunin byggist á orði Krists. Hér segir hvemig maður stígur frá myrkri yfír í ljós. Það er með því að taka einfalt trúarskref inn í náð Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, og viðkomandi byggi það skref sitt á orði Guðs. En þetta er aðeins fyrsta skrefið á langri göngu. Við þurfum að varðveita trúna og það líf sem okkur er gefíð fyrir hana. Trúin deyr ef verkin eru ekki sam- fara. Menn verða að helgast til orðs og æðis til að varðveitast í trúnni og falla ekki út úr náð Guðs. Þetta er fagnaðarerindi hins nýja sátt- mála. Ég árétta að menn hljóta náð Guðs fyrir trú. Trúin kemur af boð- uninni, en boðunin byggir á orði Guðs. Ómálga bömin helgast af trú foreldra sina, ef marka má postul- ann Pál. Kristnir verða menn fyrir það að taka trúarskref, eftir að hafa heyrt orð Guðs boðað. Skírnin er ætluð þeim einum sem eignast hafa trú og velja veg Guðs sjálf- viljuglega. Ég hlýt að taka undir kenningu Nýja testamentisins um skím hinna trúuðu. Þar sem hinn gamli maður er grafínn og menn framganga í endumýjun lífsins. Mér þykir nær kukli en kristni að bera ómálga böm til þessarar athafnar. Þar sem trúin er forstenda þess að hún sé heimil. Þeir sem vatni ausa útdeila ekki náð Guðs, hún fæst fyrir trú. Kristnum mönnum er ekki ætlað að ganga um svínbeygðum inn í sjálfa sig. Meistarinn sjálfur sagði: „En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og lyftið upp höfðum yðar, því að lausn yðar er í nánd." Við getum ekki unnið okkur út úr syndugu ástandi okk- ar, það gerist einungis fyrir náð Guðs, en við getum unnið okkur aftur inn í okkar synduga ástand og þar kemur áherslan á verkin, sem eiga að vera samboðin iðmn- inni. Iðmn er hugtak sem oft hefur verið nefnt í þessari umræðu. Mér sýnist að ekki ríki fullur skilningur á merkingu orðsins. Merkingin er sú að menn hugsi á annan veg, taki háttaskiptum og taki upp nýja stefnu í lífi sínu. „Gjörið iðran og snúið yður, að syndir yðar verði afmáðar." „Heldur boðaði ég þeim í Damaskus og í Jerúsalem, síðan um alla Júdeu- byggð og heiðingjunum að iðrast og snúa sér til Guðs og vinna verk samboðin iðmninni." „Eða lítilsvirð- ir þú ríkdóm gæsku Hans og umburðarlyndis og langlyndis? Veist þú ekki að gæska Guðs leiðir þig til iðranar? Með harðúð þinni og iðranarlausu hjarta safnar þú f* fm' 555HBHI wík\ ’ r w yj v ‘ ;W,J\ ' 1 \ SrtóíWjlf' Gunnar Þorsteinsson „Það færi betur að menn g'æfu gaum að orði Guðs og kenndu hvernig maðurinn get- ur haldið vegi sínum hreinum. Oljóst tal um iðrun og þakklæti þeirra, sem aldrei hafa tekið á móti, á ekki rétt á sér. Siíkt er villandi og afvegaleiðandi.“ sjálfum þér reiði á reiðidegi, er rétt- látur dómur Guðs verður opinber." Ég tel að þessi orð þurfí ekki neina útlistun, þau tala sínu eigin máli. I ljósi þessa, sem sagt hefur ver- ið, er hugtakið „kristinn kynvilling- ur“ alveg fráleitt. Sá sem ástundar slíka ónáttúra hefur þar með geng- ið út úr náð Guðs. Þar með er ekki öll sagan sögð, því viðkomandi á aðgang að náð Guðs. Fyrir iðran og afturhvarf getur maðurinn á ný notið náðar Guðs. Kærleikur Guðs er opinn þessu fólki og hreinsandi blóð Jesú Krists er einnig lífsins lind fyrir slíka. Eilíf elska Guðs er slík að hún setur engin skilyrði um ástand þess er þiggur. Guð reiðist ekki synd mannsins, heldur því hugar- fari sem hafnar lækningu Guðs og meinar jafnvel öðram að taka á móti. Biblían kennir okkur mjög ljós- lega 'að kynvilla og ofdrykkja er synd. Margir vilja halda því fram að hér sé um sjúkdóma að ræða, en svo er ekki. Þessar syndir úti- loka menn frá Guðsbamaréttinum, en það gera sjúkdómar ekki. Sú arfleifð sem kennir að kyn- villingar séu kristnir er hvorki í samhljóðan við Heilaga ritningu né á sér stoð í orði Guðs. Það færi betur að menn gæfu gaum að orði Guðs og kenndu hvemig maðurinn getur haldið vegi sínum hreinum. Óljóst tal um iðran og þakklæti þeirra, sem aldrei hafa tekið á móti, á ekki rétt á sér. Slíkt er villandi og afvegaleiðandi. „Gangið ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum. Hvað er sam- eiginlegt með réttlæti og ranglæti? Hvaða samfélag hefur ljós við myrkur? Hver er samhljóðan Krists við Belíar? Hver er hlutdeild trúuð- um með vantrúuðum? Hvemig má sætta musteri Guðs við skurðgoð? Vér eram musteri lifanda Guðs, eins og Guð hefur sagt: Ég mun búa hjá þeim og ganga um meðal þeirra. Og þeir munum vera lýður minn. Þess vegna segir Drottinn: Farið burt frá þeim. Snertið ekki neitt óhreint og ég mun taka yður að mér og ég mun vera yður faðir, og þér munuð vera mér synir og dætur, segir Drottinn alvaldur. Þar eð vér höfum þessi fyrirheit, elskað- ir, þá hreinsum oss af allri saurgun á llkama og sál og fullkomnun helg- un vora í Guðsótta." Heimsins steinum hefur oft verið giýtt að sannleika fagnaðarerindis- ins, en það hefur staðið allt af sér að ég fulltreysti því að hér muni sannleikurinn einnig fara sigrihrós- andi af hólmi. Höfundur er foratöðumaður Krossins ÍKópavogi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.