Morgunblaðið - 25.08.1987, Síða 21
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987
21
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Norska húsið í Stykkishólmi þar sem unnið hefur verið að lagfæriug-
um undanfarin ár og hefur nú verið opnað þar byggðasafn fyrir
sýsluna.
Byggðasafn í
Stykkishólmi opnað
héraðsþingin væru sameinað afl og
málþing sveitarfélaganna. Sam-
kvæmt hugmyndinni yrði vald
héraðsins í höndum héraðsstjóma
svo fremi því væri ekki beitt í and-
stöðu við eindreginn vilja sveitarfé-
laganna. Sveitarstjómimar kæmu
auk þess skoðunum sínum á fram-
færi og þau hefðu fulla yfirsýn yfir
starf héraðsstjómanna.
Verksvið
Ég ætla ekki að fjölyrða hér um
verkefni héraðsstjóma. Þar kemur
svo ótal margt til greina. Ég teldi
til dæmis eðlilegt að því fjárfesting-
arfjármagni til sveitarfélaganna
sem nú er deilt út af Alþingi og
ráðuneytum yrði skipt á héraðs-
þingum. Ég teldi t.d. eðlilegt að
sett yrði á stofn Tryggingastofnun
héraðsins, Húsnæðisstofnun hér-
aðsins, Orkustofnun héraðsins,
Vegagerð héraðsins og Iðntækni-
stofnun héraðsins. Ég teldi eðlilegt
að opinberum sjóðum yrði skipt sem
mest milli héraðanna þannig að
þeir nýttust til uppbyggingar þar
sem þeir verða til. Ég tel eðlilegt
að yfirstjóm bankamála verði að
mestu í héraði og að ríkisbönkunum
verði breytt í héraðsbanka.
Ég tel eðlilegt að stjóm mennta-
mála fari nær alfarið fram í héraði
enda er það frumforsenda þess að
skólamir verði aðlagaðir að þörfum
landsbyggðarinnar. Þannig mætti
lengi telja og bæta við. Það verður
þó ekki gert hér enda vantar mikið
á að sá þáttur umræðunnar sé kom-
in á ákvörðunarstig. Ég vil þó leggja
áherslu á að þeir sem valdið hafa
láta það ekki frá sér af frjálsum
og fúsum vilja. Baráttan fyrir vald-
inu heim verður ströng. Með full-
tingi Alþingis mun róðurinn verða
léttari, en ég held að mikilvægt sé
að gera sér grein fyrir því að vald-
ið kemur í áföngum og að það
skiptir miklu hvemig og í hvaða röð
verkefnin verða færð heim. Öllum
mistökum verður beint gegn okkur,
því þeir eru margir valdherramir
sem munu gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að koma í veg fyr-
ir framgang heimastjómarinnar.
Þá mun reyna á stuðning stjóm-
málaflokkanna og því má það ekki
vera neinum vafa undirorpið að all-
ir forystumenn okkar fyrir sunnan
skilji að þegar við nú tölum um
valdið heim, þá meinum við það og
að þeim ber skylda til að styðja þá
viðleitni okkar í hvívetna.
Höfundur er bæjarstjórí á Fá
skrúðsfirði.
Stykkishólmi.
UNDANFARIN ár hefur farið
fram gagnger viðgerð og upp-
lyfting á Norska húsinu í
Stykkishólmi, sem á sínum tíma
var af sýslunefnd keypt af þáver-
andi eiganda Kaupfélags Stykk-
ishólms, til stofnunar byggða-
safns fyrir sýsluna og þótti það
vel við hæfi að taka til þess elsta
hús Stykkishólmsbæjar. Nú hef-
ur húsið verið formlega tekið í
notkun sem byggðasafn.
Aðalhvatamaður að þessu var
Gunnar Guðbjartsson frá Hjarðar-
felli, og var að hans tillögu skipuð
af sýslunefnd byggðasafnsnefnd og
varð hann fyrsti formaður hennar
þar til hann hætti sem sýslunefnd-
armaður og tók að sér ábyrgðar-
mikil störf í þágu landbúnaðarins
með búsetu í Reykjavík.
Gunnar hafði einnig forystu um
söfnun muna og fékk meðal ann-
arra Ragnar Ásgeirsson ráðunaut,
sem var mikill áhugamaður um
byggðasöfn í hinum ýmsu sýslum,
til liðs við sig. Varð þeim þó nokk-
uð ágengt og þegar hafa margir
munir verið skráðir sem verða inn-
andyra þessa ágæta húss.
Viðgerðir og innréttingar, lag-
færingar og málun hafa þeir annast
bræðumir Láms Pétursson og Jón
Svanur Pétursson, sem aðallega
hefir málað húsið bæði innan og
utan, og nú að lokinni vinnu og
opnun má segja að mikill draumur
sé að rætast. Vissulega á eftir að
koma miklu fyrir þama og einnig
auka söfnun muna en það vantar
ijármagn og verður hægari sókn
af hálfu eigenda.
Verk þeirra Lámsar og Jóns
Svans er til fyrirmyndar. Fólk met-
ur þetta og það sást greinilega við
opnun hússins.
í tilefni_ þessa áfanga var þeim
hjónum Ásthildi Teitsdóttur og
Gunnari Guðbjartssyni sérstaklega
boðið að vera viðstödd opnunina
ásamt Herði Ágústssyni, sem haft
hefir umsjón með lagfæringu húss-
ins.
Sveitar- og bæjarsjóður Stykkis-
hólms hefir styrkt bygginguna
vemlega á móti sýslusjóði og má
segja að hann sé aðili að húsinu.
Nú em kvikmyndamenn, sem
taka Nonnamyndina, á fullu spani
að taka myndir í húsinu, eru þar
með allskonar vélar og tæki og er
mjög líflegt í kringum þá. Fyrsta
nóttin eftir opnun hússins var vel
nýtt af þeim.
Stjóm byggðasafnsins skipa þeir
Ágúst Bjartmars sýslunefndarmað-
ur, Gísli H. Kolbeins sóknarprestur
og Erlendur Halldórsson oddviti
Dal- og Miklaholtshreppi. Snæfell-
ingar fagna þessum áfanga og vita
að þetta er upphaf meiri fram-
kvæmda.
Arni
Beisli á Volvo 200
frá árg. '81 kr. 5.887,-
Beisli á Volvo 700
frá árg. '82 kr. 6.872,-
DRÁTTARBEISLI
Skjót ísetning ef óskað er.
VI h
Varahlutadeild.Suðurlandsbraut 16. Sími: 91-691600.
Eigum fyrirliggjandi sérhönnuð dráftar-
beisli og króka fyrir Volvo 200 og 700,
Það nálgast stórmál. . . þegar tvö ný
SMA MÁL
koma upp samtímis.
Súkkulaðifrauð
og Dalafrauð.
nms"