Morgunblaðið - 25.08.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987
27
Sjálf stæðisf élögin:
Áannaðþús-
und mannsí
Viðejjarferð
Á ANNAÐ þúsund manns tóku þátt í Viðeyjarferð sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík síðasliðinn laugardag. Veður var með besta móti
og tókst ferðin „aiveg frábærlega", að sögn Gunnlaugs Sævars
Gunnlaugssonar framkvæmdastjóra fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík. Stendur vilji til að þetta verði árlegur viðburður
í starfi sjálfstæðisfélaganna.
„Við erum mjög ánægð með
þessa ferð, hún tókst alveg frábær-
lega,“ sagði Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson í samtali við Morg-
unblaðið. „Það var vel á annað
þúsund manns sem lagði leið sína
út í eyjuna og dvaldi þar í góðu
veðri."
í Viðey var grillað bæði kjöt og
pylsur og krakkamir fóm í leiki og
fótboltakeppni. Reiptogskeppni var
haldin milli Varðar og Hvatar og
lyktaði með sigri Hvatarkvenna.
Örlygur Hálfdánarson, bókaút-
gefandi, fór þrjár ferðir um eyna
þar sem hann fræddi gesti um sögu
hennar og staðhætti. Síðan fluttu
ávörp Davíð Oddsson borgarstjóri
og Friðrik Sophusson iðnaðarráð-
herra og varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins. „Einnig var sungið og fór
látúnsbarki Sjálfstæðisflokksins,
Geir Haarde alþingismaður, á kost-
um þegar hann stjómaði ijöldasöng
við undirleik blásarasveitar," sagði
Gunnlaugur Sævar.
„Þessi eyja, sem nýorðin er eign
Reykvíkinga, er stórkostlegur úti-
vistarstaður og vom allir sammála
um að sjálfstæðisfélögin ættu að
gera þetta að árlegum viðburði.
Aðstæður í Viðey munu lfka batna
til muna þegar nýja bryggjan kem-
ur. Það er mjög gott framtak hjá
borgaryfirvöldum að lagfæra gömlu
húsin á eyjunni, Viðeyjarstofu og
kirkjuna. Viðey á eflaust eftir að
verða einn af vinsælustu útivistar-
stöðum Reykvíkinga í framtíðinni."
Hluti Viðeyjarfara.
Morgunblaðið/Jónas Bjamason
í kvöld kl. 20.30
á Hótel Borg
Félagsamtökin Gamli miðbærinn boða til almenns fundar
með öllum hagsmunaaðilum og öðru áhugafólki í kvöld kl.
20.30 á Hótel Borg.
Fundarstjóri: Páll Líndal.
Fundarefni: Málefni miðbæjarins.
VIÐ HVETJUM ALLA TIL AÐ MÆTA.
Alþjóðleg umboðs- og módelskrifstofa. Bolholt 6, símar 6874-80 - 687580.
Fjölbreytt námskeið hefst í næstu viku fyrir börn,
ungar stúlkur og drengi, dömur og herra.
Unnur Arngrims-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri.
Ungarkonur 1 2 3 4
ó öllum aldri Ungar stúlkur og piltar Stúlkur og drengir Einkatímar
Hvaða Snyrting 13-16 ára 10-12 ára Starfshópar
Hárgreiðsla Snyrting Framkoma Saumaklúbbar
Framkoma Framkoma Hreinlæti Snyrting
hópur Borðsiðir Fataval Meðferð á snyrtivörum Framkoma
Fataval Hreinlæti Fataval Borðsiðir
Hreinlæti Borðsiðir Mannleg samskipti Gestaboð
hentar Gestaboð Mannleg samskipti Ganga Mannleg samskipti
Ganga Ganga
þér??? 5 Nýtt Nýtt 6 Stutt snyrtinámskeið Handsnyrting 7 Herrar á öllum aldri Framkoma 8 Módelnámskeið fyrir verðandi
Nýtt Húðhreinsun Fataval sýningarfólk
Litgreining Andlitssnyrting Hreinlæti I. Ganga
Litakort Snyrting Snúningar o.fl.
Fataval Hárgreiðsla
Einkatímar Borðsiðir II. Upprifjun
Afgreiðsluhópar Mannleg samskipti
Ganga Framhald
Ungt sýningarfólk
Sjáum um
tískusýningar,
kynningar og fi.
fmmmmzí
‘ FIMA r
INNRITUN ALLA DAGA í SÍMA 36141 FRÁ KL. 16-19.
AG
Alþjóðleg umboðsskrifstofa.