Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 36

Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 Laugarvatn: Norrænir háskóla- ráðgjafar þinga NORRÆNIR háskólaráðgj afar sitja þessa dagana ráðstefnu á Laugarvatni og eru þar saman- komnir 65 ráðstefnugestir frá 25 borgum og 36 mismunandi stofnunum. Yfirskrift ráðstefn- unnar er Háskólamenntun á íslandi og reynsla íslenskra námsmanna af námi erlendis. Háskólaráðgjafar á Norðurlönd- um hafa haft með sér samstarf frá árinu 1981 sem hefur að markmiði eflingu innbyrðis tengsla á milli háskóla með áherslu á bætta fyrir- greiðslu til handa stúdentum. Samstarfíð hefur m.a. falist í árleg- um ráðstefnum þar sem mæta um 10 fulltrúar frá hveiju landanna. Nú heidur Háskóli íslands ráðstefn- una á Laugarvatni dagana 23.-27. ágúst og eru þar samankomnir 65 ráðstefnugestir frá 25 borgum og 36 mismunandi stofnunum. Meðal þess sem Qallað er um á ráðstefnunni er áhuga- og hæfi- leikapróf sem hjálpartæki við námsval og heldur Sölvína Konráðs sálfræðingur fyrirlestur um það efni. Hörður Lárusson deildarstjóri menntamálaráðuneytisins heldur fyrirlestur um íslenska framhalds- og háskólamenntun. Magnús Guð- mundsson frá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN), Högni Eyjólfs- son frá Sambandi jslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) og Lára M. Ragnarsdóttir frá Stjóm- unarfélagi íslands fjalla um íslenska námsmenn erlendis og reynslu þeirra og nýtingu náms erlendis frá. Gerður Óskarsdóttir umsjónarmaður kennsluæfínga við HÍ heldur fyrirlestur um námsráð- gjöf í hinum ýmsu löndum. Þorsteinn Magnússon og Hulda Jónsdóttir í farfuglaheimilinu við Laufásveg. Morgunblaðið/Börkur Góð aðsókn að farfuglaheimilum „REKSTURINN hefur gengið ágfætlega það sem af er árinu. Það hefur orðið talsverð fjölgun gesta en erfitt að meta hve mik- il fyrr en ágúst er liðinn,“ sagði Þorsteinn Magnússon fram- kvæmdastjórí farfugladeildar Reykjavíkur í samtali við Morg- unblaðið. Bandalag íslenskra farfugla rekur^ í sumar 19 far- fuglaheimili á íslandi þar af tvö í Reykjavík. risin. Þar höfum við sal sem við skiptum í svefnherbergi til bráða- birgða og geta nú 80 manns gist þar en þegar farfuglaheimilið verð- ur fullbúið á það að taka 200 manns.“ Iðntæknistofnun um framleiðniskýrsluna: Niðurstöður í samræmi við fyrri innlendar kannanir í FRAMHALDI af fréttatilkynn- ingu Félags íslenskra iðnrek- enda, um skýrslu Iðntæknistofn- unar og Iðnaðarráðuneytis um samanburð á framleiðni á íslandi og í öðrum löndum vill Iðntækni- stofnun koma eftirfarandi á framfæri: Leitað var ábendinga og umsagn- ar ijölmargra hagsmunaaðila atvinnurekenda og launafólks, þ.á. m. Félags íslenskra iðnrekenda, við gerð og frágang skýrslunnar. Félag íslenskra iðnrekenda segir ályktanir skýrslunnar ótvíræðar. Það er alls ekki rétt eins og menn sjá þegar þeir lesa skýrsluna. Varðandi gagnrýni Félags íslenskra iðnrekenda á val upphafs- árs, meðferð verðbólguþróunar á tímabilinu og útreikning á raun- gengi fyrir Island, má benda á að öll þessi atriði voru athuguð sér- staklega að beiðni Félags íslenskra iðnrekenda. Þóttu niðurstöður þess- ara athugana ekki gefa tilefni til endurskoðunar á niðurstöðum mæl- inganna. Er þessa getið í kafla 2 í skýrslunni. Þá má einnig benda á að þessi atriði og skýringar í kafla 2 voru sérstaklega rædd við fulltrúa Félags íslenskra iðnrekenda og samþykkt af þeim. Niðurstöður könnunarinnar koma heim og saman við ýmsar aðrar innlendar kannanir sem gerð- ar hafa verið á þróun framleiðni, m.a. í fískvinnslu (fyrir um tveimur árum) og af starfsmönnum Félags íslenskra iðnrekenda, fyrir um sex árum. Eins og fram kemur í skýrslunni hefur framleiðni í ýmsum greinum aukist verulega á tímabilinu. Sú fullyrðing að niðurstöður skýrsl- unnar séu neikvæðar fyrir atvinnu- lífíð á því ekki við rök að styðjast. Hægt er að efast um niðurstöður allra tölfræðilegra kannana. Ná- kvæmni þeirra og nálgun við raunveruleikann er að sjálfsögðu háð þeim forsendum sem stuðst er við. I skýrslunni er stuðst við sömu forsendur og aðrar þjóðir nota við sínar framleiðnimælingar. Hætt er við að ef menn dæma þessar fram- leiðnimælingar marklausar verði ýmsar aðrar tölfræðilegar kannan- ir, m.a. gerðar af Félagi íslenskra iðnrekenda, að fá svipaðan dóm. í skýrslunni kemur fram ýmislegt annað en þau línurit sem Félag íslenskra iðnrekenda sér ástæðu til að dæma alla skýrsluna marklausa fyrir. Að mati Iðntæknistofnunar Islands eru innri og ytri áhrifaþætt- ir á framleiðni, sem fjallað er um í kafla 3, ekki síður mikilvægir en niðurstöður mælinganna. Þar kem- ur t.d. fram að ein af forsendum aukinnar framleiðni er aukin sjálf- virkni. Sjálfvirkni byggir á tölvu- tækni. Með söluskatti á tölvubúnað hafa stjómvöld sett hindrun á braut aukinnar framleiðni í atvinnulífinu. Með því að leggja áherslu á þessa þætti, sem ýtarlega er fjallað um í skýrslunni, hyggst Iðntæknistofnun íslands beita sér .fyrir að svigrúm Akureyringar —ferðafólk Við bjóðum daglega ný afskorin blóm. Einnig mikið úrval af pottaplöntum. Skreytingar við öll tækifæri. Bílastæði við búðardyrnar. KAUPANGI V/ MYRARVEG 602 AKUREYRI SÍMAR 24800 81 24830 PÓSTHÓLF 498 atvinnulífsins til að auka framleiðn- ina og bæta lífskjörin verði aukið. Slíkt gerist ekki með málflutningi á borð við þann sem Félag íslenskra iðnrekenda hefur viðhaft í þessu máli. Það hefur jafnvel þurft að vísa fólki frá einstaka nætur að sögn Huldu Jónsdóttur formanns far- fugladeildar Reykjavíkur. „Það er alltaf einhver slæðingur af erlend- um ferðamönnum sem kemur hingað á vetuma auk hópa af ís- lendingum í skólaferðalögum eða að fara að keppa í íþróttum. Við höfum farfuglaheimilið að Laufás- vegi opið fyrir þá en getum ekki bætt við nægilega mörgum rúmum á sumrin til að mæta aukinni að- sókn,“ sagði Hulda. „Okkur vantar enn talsvert fé til að geta lokið við framkvæmdimar á Sundlaugaveg- inum. Þar eiga að rísa fjórar byggingar en aðeins sú stærsta er Er hugsanlegt að skýringin á því að fjöldi ferðamanna kýs að dvelja í flugstöð Leifs Eiríkssonar nóttina fyrir brottför sé fólgin í því að þeir fá ekki gistingu á farfuglaheimil- um? „Ég held að það sé ekki mikið um það,“ sagði Þorsteinn. „Þetta er held ég frekar fólk sem hefur gist í tjöldum en vill ekki þurfa að vakna um miðja nótt og taka tjald- ið niður til þess að geta náð út á flugvöll á réttum tíma. Við höfum tekið eftir því á farfuglaheimilunum að fólk þorir varla að fara að sofa kvöldið fyrir brottför af ótta við að sofa yfír sig og missa af flugvélun- um sem fara eldsnemma á morgn- ana.“ Grein í danska blaðinu Information: Deildar meiningar um rekstur Yon Veritas FYRIR skömmu birtist í danska dagblaðinu Information grein um meðferðarstöðina Von Ve- ritas á Lálandi. Stöðin var, sem kunnugt er, stofnsett af íslend- ingum er höfðu reynslu af meðferð áfengissýki en í rekstri fyrirtækisins hefur gengið á ýmsu. Morgunblaðið birtir hér útdrátt úr greininni. Danir líta yfírleitt á opinber hæli fyrir áfengissjúklinga sem næstaþrep fyrir ofan göturæsið og fína fólkið forðast því slíka staði jafnvel þótt það eigi við mikil áfengisvandamál að stríða. Mikil þörf virðist vera fyrir dvalar- staði sem lítið ber á en eru búnir leðurklæddum húsgögnum, franskmenntuðum matreiðslu- mönnum og knattborðstofu. Slíkar nýtísku stöðvar notast allar við amerísku Minnesota-aðferð- ina. Samkvæmt henni ber ekki að líta svo á að áfengissýki sé háð þjóðfélagsástæðum heldur sé hún ólæknandi sjúkdómur á borð við sykursýki. Upphaf Von Veritas má rekja tólf ár aftur í tímann til íslands. Björgólfur Guðmundsson, Fritz Henrik Bemdsen og Edwald Ell- ert Bemdsen höfðu þá nýlega dvalist á meðferðarstöðinni Haz- elden í Minnesota-fylki í Banda- ríkjunum. Ásamt öðra fólki stofnuðu þeir meðferðarstöð þar sem kynna_ skyldi Minnesota- aðferðina á íslandi og hafa nú að mestu tekið við meðferð áfengis- sjúklinga í landinu með aðstoð yfírvalda. 1985 stofnuðu fram- kvöðlamir þrír meðferðarstöðina Von er sinnt hefur áfengissjúkl- ingum frá öllum Norðurlöndunum en fyrst og fremst frá Færeyjum. Færeyingar hyggjast nú koma á laggimar eigin stöð og þess vegna þarf Von að huga að nýjum veiði- lendum á næsta ári. Skipafélag, sem Björgólfur stjómaði, fór á hausinn 1986 og munaði minnstu að það drægi einn af stærstu bönkum landsins með sér í fallinu. Björgólfur sat inni í mánuð og ári eftir gjaldþrotið var hann ákærður fyrir stórfellt fjár- málamisferli. Blómaverslun Henriks Bemdsen hrandi einnig og segja íslenskir heimildarmenn að félagamir hafí snúið sér að Dönum þar sem þeim hafí ekki verið treyst lengur á íslandi. Þeir harðneita þessum ásökunum. Snemma sumars stofnuðu fé- lagamir þrír meðferðarstöðina Von Veritas í gamalli skólabygg- ingu á Lalandi. í hópinn hafði nú bæst Þorsteinn Freyr Viggósson, sem áður rak veitingahúsið Pussyeat í Kaupmannahöfn. Ekk- ert var til sparað í húsbúnaði og jafnframt var opnuð glæsileg skrifstofa í miðborg Kaupmanna- hafnar. Hálaunaðir starfsmenn, sem aðallega komu frá íslandi, hófu störf og prentaðir vora dýrir auglýsingabæklingar. Fyrstu sjúklingamir komu í september en þeir urðu aldrei margir. Rými er fyrir 60 en sjaldan vora fleiri en 30 sjúklingar á stöðinni. Tekj- úmar dugðu ekki fyrir útgjöldum og í maí síðastliðnum fékk fyrir- tækið greiðslustöðvun. Skuldimar reyndust nema 8,6 milljónum dkr. (um 47 milljónum ísl. króna), þar af vora tvær millj- ónir hjá Lálandsbanka og fjórar milljónir hjá fyrirtækinu ab Fin- ans. Hefur þessi myndarlega lánafyrirgreiðsla vakið furðu á Islandi. Bankamenn í Danmörku telja að yfirmenn lánastofnanna hafi alls ekki rannsakað feril að- standenda Von Veritas nógu vel. Ráðamenn Lálandsbanka afsaka sig með því að þeir hafí eygt möguleika á atvinnutækifæram fyrir svæðið þar sem atvinnuleysi er mikið. Auk þess hafí verið mjög erfítt að fá upplýsingar hjá íslenskum bönkum um mennina. Lánasérfræðingur hjá Handels- banken telur það vera siðferðis- legt brot af hálfu íslensku bankanna. Athygli vekur að Von Veritas hefur ekki sótt um viðurkenningu hjá Stórastraums-amti en án hennar geta sjúklingar utan amts- ins ekki fengið opinberan stuðning til dvalar. Loks má geta þess að sumir fyrrverandi sjúklingar sitja nú uppi stórskuldugir þar sem opinber aðstoð hefur bragðist og falla þá auðveldlega aftur fyrir Bakkusi. Danskir sérfræðingar era margir vantrúaðir á aðferðir Von Veritas og segja þær allt of staðl- aðar. Litið sé í raun vitað um orsakir áfengissýki en samt víst að þær geti verið fjölmargar. Einnig telja þeir að allt of mikill „frelsunarkeimur" sé af fyrirtæk- inu og álíta gróðasjónarmið of ríkan þátt í starfseminni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.