Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 37

Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 37 Nei ráðherra eftirRósuB. Blöndals Nokkur orð, spumingar og svör til sjávarútvegsráðherra og þeirra ráðherra, sem eru honum sammála í hvalfriðunardeilunni. Er íslenski hvalastofninn of stór? Nei, ráðherra. Er íslenski hvalastofninn nógu stór? Nei, ráðherra. Þurfa íslendingar hvalkjöt til við- bótar öðru kjöti í landinu? Nei ráðherra. Einn Íslands-sléttbakur sást hér nýlega reka tignarlegan sporð úr hafí. íslands-sléttbakur hefur ekki sést hér í 20 ár. Hann rétti upp sporðinn fagra eins og hann kæmi frá útdauðri kynkvísl, til þess að greiða atkvæði með friðun þeirra hvalastofna, sem enn eru til, eins og hann væri að minna á afdrif íslands-sléttbaksins núna í hvalfrið- unardeiluni. Er líklegt að Kristján Loftsson hafí skilið hvað þetta tákn þýðir? Nei, ráðherra. Er skynsamlegt að taka ekki þessa einstæðu áminningu til greina? Nei, ráðherra. Þurrkuðu selir upp lúðubakka Dýrafjarðar á einni nóttu? Nei, ráðherra. Sóttu þá hvalir lúðuna niður á sjávarbotn og eyddu bankann? Nei, ráðherra. Hver eyddi þá lúðubakkann? Er það selum að kenna, að rækjan er horfin úr Húnaflóa? Nei, ráðherra Átu þá hvalir alla rækjuna úr Húnaflóa? Nei, ráðherra. Eru það selir, sem valda því að grásleppustofninn hefur ekki stækk- að eins og aðrir fiskistofnar í góðærinu? Nei, ráðherra. Hafa hvalir gleypt svona mikla grásleppu? Nei, ráðherra. Það er gjöreyðingarveiði fyrir hrognin ein, sem veldur því. Eru það selir, sem hafa eyðilagt þorskstofnana suður með sjó? Nei, ráðherra Eru það hvalir, sem hafa gleypt allan fiskinn, þar sem er að verða fisklaust á þorskmiðum? Nei, ráðherra. Sigurður Breiðfjörð lýsir veiði- auðlegð Grænlands í lítilli, afar fróðlegri og vel skrifaðri bók, sem kom út átján hundruð og þtjátíu, eftir dvöl Sigurðar í Grænlandi, löngu áður en Norður-Atlantshafs- veiðarnar bytjuðu, svo að þá hefur verið margfeldi af selum við það, sem nú er, engir kópar drepnir tii skinna- sölu. Auk þess hefur verið mikið af rostungum, sem éta miklu meira en selir, og nú eru fáir eftir, miðað við það, sem var. Hvalir hafa þá verið þar í þúsunda- tali, þar sem nú eru hundruð og sumar tegundir horfnar, eins og ís- lands-sléttbakurinn hér við land. I bók sinni lýsir Sigurður Breið- íjörð veiðistöðinni Grænlandi, líkt eins og Ari fróði lýsir Islandi áður en Norðmenn og Islendingar voru komnir til þess að fækka selum og hvölum. Sigurður segir: Loðnan var svo þétt inni í hvetjum firði og hverri vík á.Grænlandi „að það mátti ausa henni upp með fötu“. I árhyljum Grænlands voru lax- amir svo margir að það mátti stinga þá eða grípa með höndunum. Þannig leit veiðistöðin út, áður en Norðmenn hófu sín miklu hvala- og seladráp og loðnu- °og fiskveiðar í Norðurhöfum. Stenst það þá, að fiskimið séu í hættu, af því sem þeir selir veiða, sem eftir eru? Nei, ráðherra. Stafar fiskistofnum hætta af þeim fáu hvölum, sem eftir eru í Norður- höfum? Nei, ráðherra. Væri hægt að endurreisa hval- stöðvarnar á Hestetri og Mjóafirði? Nei, ráðherra. Veldur sú staðreynd ekki öllum haffræðingum töluverðum áhyggjum út af fækkun hvala hér við land t.d. dr. Jakobi Jakobssyni? Nei, ráðherra. Hefur nýlega sést hvalatorfa fýrir utan Akureyri, eins og hvalatorfan mikla, sem með hægum hreyfingum bjó til glufu fýrir litla bátinn þeirra Nonna og Manna í rétta átt inn á Akureyrarhöfn? Nei, ráðherra. Veldur það ekki áhyggjum hval- fangara um fækkun hvalastofnana? Nei, ráðherra. Þurfa Norðmenn og íslendingar að halda stærð hvalastofnanna niðri vegna fiskistofna? Nei, ráðherra. Það er vegna peningagræðgi. — Og væri nær að tala um togvörpu og snurvoð í sambandi við eyðingu fiskistofna. Er nauðsyn að veiða hvali þessi Qögur ár, sem Alþjóða hvalveiðiráðið bannaði hvalveiðar? Nei, ráðherra. Það er ófyrirgefanleg þtjóska. Hefur hvalveiðiráðið sagt að Is- lendingar ættu að hætta hvalveiðum fyrir fullt og allt? Nei, ráðherra. Aðeins í fjögur ár. Voru það Grænlendingar sjálfír, sem eyddu hvölum, rostungum og selum úr Grænlandshafi. Nei, ráðherra Það voru Norðmenn og aðrar hvítar Norðurlandaþjóðir. Rósa B. Blöndals „Ef ágreiningur kæmi upj) milli Norðmanna og Islendinga út af veiðum, myndu Norð- menn þá dekra Islend- inga og slaka til fyrir þeim, eins og Banda- ríkin hafa gert í þessari hvalf riðunardeilu?“ Er það raunveruleiki, að Norð- menn og íslendingar væru á móti hvala- og selafriðun af vorkunnsemi við fátæka eskimóa á Grænlandi eins og þeir létu í fyrra? Nei, ráðherra. Norðmenn og Islendingar hafa afskipt Grænlendinga af loðnunni í ár og hirða sjálfir allt. Er hægt að kalla það göfug- mennsku eftir að þeir hafa notað Grænlendinga til þess að styrkja sig í mótþróa við friðun hvalanna? Nei, ráðherra. Það er skömm fyrir báðar þessar þjóðir að afskipta Grænlendinga. Ef ágreiningur kæmi upp milli Norðmanna og íslendinga út af veið- um, mundu Norðmenn þá dekra íslendinga og slaka til fyrir þeim, eins og Bandaríkin hafa gert í þess- ari hvalfriðunardeilu? Nei, ráðherra. Norðmenn hafa heitið því, að láta ekki undan íslendingum, ef í odda skerst. Þeir standa áreiðanlega við það. Þá færu íslendingar að þekkja sig heima hjá sér og minnast ef til vill þess, hvernig samskipti Evrópuþjóða voru við ísland á fyrri öldum og fram yfír síðustu aldamót. Er skynsamlegt að láta hvaladeil- una snúa sér frá Ameríkumarkaði til Evrópuþjóða? Nei, ráðherra Minnist síldarviðskipta við Rússa í fyrra og framkomu stórþjóðarinnar við Álafoss. Spurt hefur verið: Má ekki deyða hvali eins og önnur dýr? Það er ósamboðið ráðherra að spytja þannig. Engin þjóð, nema Bandaríkin, hefði hjálpað Islendingum til að fá tvöhundruð mílna lögsöguna. — Þá hefðu Islendingar strax átt að friða sína hvali. Birgir Isleifur Gunnarsson kallaði framkomu íslendinga í hvalfriðunar- deildunni Reisn. Var það reisn? Nei, ráðherra. Það eru óleyfíleg merkingaskipti á þessu íslenska orði, að kalla óheil- indi og lágkúruskap Reisn. Morgunblaðið birti nýlega ind- verskt spakmæli: „Manninum lærist ekki, að hann getur ekki etið pen- inga, fyrr en síðasti fískurinn hefur verið veiddur, síðasta tréð höggvið og síðasta áin er orðin eitruð." íslands-sléttbakurinn horfni sann- ar þetta á íslenska veiðimenn. Er skynsamlegt að styrkja veiði- mennina til þess að útrýma steypi- reyði, sandreyði, hrefnu og langreyði, eins og sléttbaknum? Nei, ráðherra. Takið til greina atkvæði slétt- baksins á móti hvalveiðum. Höfundur er rithöfundur. 09:30 - 16:00 AFGREIDSLUTÍMI VIRKA DAGA BUNADARBANK.INN TRAUSTUR B/VNKI ÖLL INNLEND OG ERLEND BANKAVIÐSKIPTI. LAUNAREIKNINGUR MEÐ BANKAKORTI. HRAÐBANKI. FERÐATRYGGING. VISA GREIÐSLUKORT. SKULDAVÁTRYGGING. SÍMI: 689600.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.