Morgunblaðið - 25.08.1987, Síða 50

Morgunblaðið - 25.08.1987, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri stjömuspekingur. Mig langar gjamari til að fá að vita hvað stjömumar segja um minn persónuleika. Ég er Naut, fædd þann 30. aprfl 1968 kl. 15.45 i Reykjavík. Með fyrirfram þökk.“ Svar: Þú hefur Sól, Merkúr og Mars í Nauti í áttunda og níunda húsi, Tungl á Miðhimni í Tvíbura, Venus í Hrút og Meyju Rfsandi. JarÖbundin Margar plánetur f Nauti og Meyju táknar að þú ert jarð- bundin og skjmsöm f grunn- eðli þínu. Það sem þú tekur þér fyrir hendur þarf að skila áþreifanlegum árangri. Þú þarft ákveðið öryggi í lífi þínu, sérstaklega flárhagslegt, og þarft að geta veitt þér af gæðum lífsins. Tilfmningalegt líf Tungl í Tvíbura og Venus í Hrút táknar að þú þarft til- finningalegt líf og laðast að hressu og lifandi fólki sem getur kennt þér og víkkað sjóndeildarhring þinn. Til- breytingarleysi og vanabind- ing á tilfínningasviðinu á ekki vel við þig. Hreyfingog öryggi Það að hafa Sól í Nauti og Tungl í Tvíbura er mótsagna- kennt. Það táknar að þú átt í fari þínu tvær ólíkar hliðar. Þú átt til að vera þijósk, föst fyrir og þolinmóð, en ert einn- ig oft eirðarlaus og breytileg. Best er fyrir þig að hafa fasta stefnu en svaigja til í daglegu lífi. Ef þú býrð við örugga afkomu en getur samt sem áður hreyft þig í daglegu lífi ætti þér að líða ágætlega. Starf sem er lifandi og fjöl- breytilegt, sem tengist því að vinna með fólki t.d. að ferða- málum gæti átt vel við. Fjármál Margar plánetur í áttunda húsi benda til hæfileika í með- ferð fjármála og getur vísað á störf sem hafa með verslun og viðskipti að gera. Það gæti þá t.d. verið viðskipti sem tengjast ferðalögum. Ferðalög og menntun Margar plánetur í níunda húsi benda til áhuga á ferðalögum og hugsanlega dvöl og búsetu erlendis. Einnig er háskóla- nám gefíð til kynna með 9. húsi og þar sem um Naut er að ræða nám á hagnýtari svið- um, s.s. viðskiptanám. Tungumál Tvíburinn og Merkúr í 9. húsi benda einnig til hæfíleika í tungumálum. Högvœr Það sem helst getur háð þér er fólgið í Plútó Rísandi í Meyju. Það táknar að þú átt til að vera sjálfsgagnrýnin og rífa sjálfa þig niður. Ástæðan er sú að þú kemur vel auga á galla þína og hættir því til að fínnast þú ófullkomin. Allir hafa hins vegar galla og í raun er ágætt að sjá þá, því það gefur þér tækifæri til að þroskast sem persóna. Þú þarft einungis að líta jákvæð- um augum á sjálfa þig og forðast að segja: „Nei, ég get þetta ekki, ég hef ekki þessa hæfíleika, vegna þess ...“ Þú veist ekki fyrr en þú reynir. Einnig þarf að þroska hæfi- leika t gegnum nám og starf. Auk þess má geta þess að Júpíter í spennu við Mars bendir til góðrar orku sem æskilegt er að fá útrás fyrir, t.d. með iðkun fþrótta. GRETTIR TOMMI OG JENNI FERDINAND SMÁFÓLK Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Það er kunnara en frá þurfí að segja að íslenska sveitin í opna flokknum kom mjög á óvart á EM í Brighton. Hið sama má segja um Grikki. Þeir hafa löngum verið þaulsetnir á botn- inum, en að þessu sinni höfðu þeir góðu liði á að skipa sem gat bitið hraustlega_ frá sér. Spilið í dag er úr leik íslendinga og Grikkja, sem lyktaði með jafntefli, 15-15. Vestur Norður ♦ K854 VÁ109 ♦ D75 ♦ 1053 Austur ♦ G103 ♦ D972 VD65 II V 72 ♦ ÁG102 ♦ K83 ♦ 987 ♦ G62 Suður ♦ Á6 V KG843 ♦ 964 ♦ ÁKD Jón Baldursson hélt á spilum suðurs í opna salnum og vakti á einu 15-17 grandi. Vestur passaði og Sigurður Sverrisson stökk beint í þijú grönd. Jón fékk út spaðagosa, sem hann drap heima á ás og staldr- aði við. Ef hjartadrottningin kemur í leitimar eru tíu slagir í húsi, en ef andstæðingar kom- ast inn er sú hætta fyrir hendi að þeir skipti yfír í ttgul og taki þar 4-5 slagi. í rúbertubrids er besta spila- mennskan sennilega sú að spila strax hjarta á tíu blinds. Jafnvel þótt austur fái á tígul, því drottningin í blindum er mjög ógnandi. En í sveitakeppni þarf að taka fleira með í reikninginn. Jón gerði ráð fyrir því að Grikk- imir á hinu borðinu fæm t fjögur hjörtu, sem byggjast á því einu að finna hjartadrottningu. Þá er hægt að ráða við drottning- una blanka og fjórðu í austur. Og til að eiga það ekki á hættu að tapa geimsveiflu fór Jón eins í hjartað. Með því móti myndi hann alltént jafna árangur Grikkjanna á hinu borðinu. Og svo var sá möguleiki fyrir hendi að vestur kæmi ekki auga á að skipta yfír í tígul. En vestur var vandanum vax- inn, spilaði tígulgosa og vömin tók flóra slagi á tígul. Og spilið féll, því vissulega vom Grikkim- ir í §ómm hjörtum á hinu borðinu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Þessi staða kom upp í fjöl- tefli heimsmeistarans við sex unga sovézka skákmenn í sum- ar. Loskutov hafði hvítt, en Gary Kasparov hafði svart og átti leik. Hvítur hefur fómað manni fyrir þijú peð og sókn, en nú sneri Kasparov vöm í sókn og fómaði sjálfur manni: 22. - Dxa21, 23. Dxe5 - Bg7, 24. Dh5 - Dxb2+, 25. Kd2 - O—O—0+, 26. Ke2 — Dxc2+, 27. Kf3 - Hf6 og hvítur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.