Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 54

Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 fólk í fréttum Knutson í vegarkantinum ásamt klesstu tuskudýri. Nýstárleg náttúruskoðun Það er erfitt fyrir streituþjáða borgarbúa á síðara helmingi 20. aldarinnar að finna tíma til að skoða náttúruna og dýr merkurinn- ar. En nú hefur bandaríski líffræði- prófessorinn Roger Knutson sýnt fram á að hægt er að stunda dýra- skoðun án þess að fara nokkum tíma út af malbikinu. Bók Knutsons, „Útflatt dýralíf: Leiðarvísir til að greina algeng dýr á vegum og hraðbrautum" hefur að geyma fjölmargar skýringar- myndir af hræjum dýra sem ekið hefur verið yfir, auk lýsinga á þeim. Dæmi: hægt er að þekkja eyðimerk- urhéra á því að „að minnsta kosti annað hinna stóru eyma hans stendur út í nær öllum vegarstell- ingum“, og skjaldbökur líta út eins og „leirkrukkustafli sem hefur dot- tið úr nokkurri hæð“. Knutson fullyrðir að leiðarvísir hans opni mönnum leið til að afla sér aukinn- ar þekkingar í dýrafræði á skömmum tíma: „Fyrir hvert lifandi dýr sem Bandaríkjamenn koma auga á, sjá þeir önnur 5-25 útflött á malbikin'u". Og hann bætir óhræddur við: „Nú getur venjulegur flölskyldubíltúr orðið næstum því eins heillandi og heimsókn í Seren- geti þjóðgarðinn". Ekki eru allir þó eins hrifnir af þessu uppátæki Knutsons. Hann fékk neitun frá 23 útgefendum áður en lítið bókaforlag í Kaliforníu tók bókina upp á sína arma. Hún hefur nú selst í 30.000 eintökum á fjómm mánuðum. Knutson, sem kennir líffræði við Luther College í Iowa- fylki, viðurkennir að þessi nýstár- lega dýraskoðun sé ekki með öllu hættulaus, og hann segist láta sér nægja að taka ljósmyndir út um bílgluggann. „Það er nóg af sýnis- homum á vegunum", segir Knut- son, „og engin ástæða til að bæta sjálfum sér í þann hóp með því að sýna ekki nægilega varúð“. Úr heimstyrjöld 1 hryðjuverk Tom Clancy, sá sem skrifaði metsölubókina „Rauður stormur", er kominn aftur á kreik með nýja bók, sem á ensku nefn- ist „Patriot Games". Eins og margir vita, þá fjallaði „Rauður stormur“ um þriðju heimstyrjöld- ina, og kom ísland þar m.a. mikið við sögu. Sú bók sat í heilt ár á lista yfír 10 mest seldu bækumar í Bandaríkjunum og selst enn grimmt, enda þykir Clancy hafa einstakt lag á að lýsa vítisvélum nútíma hemaðar þannig að leik- menn á því sviði geti skilið. Nýja bókin fjallar hins vegar ekki um risaveldaátök, heldur al- þjóðlega hryðjuverkastarfsemi. Þar koma meðal annarra við sögu breska konungsfjölskyldan og Jack nokkur Ryan, sem var hetja fyrstu bókar Clancys, „The Hunt for Red October". Söguþráður bókarinnar skal ekki rakinn hér, en það eyðileggur varla ánægjuna fyrir væntanlegum lesendum að skýra frá því að hún fjallar um þau áform írskra hryðjuverka- manna að fremja mannrán aldar- innar, og baráttu Ryans, Breta og Bandaríkjamanna til að stöðva þá. Þá er bara að bíða og sjá hvort að hinum fyrrverandi trygginga- sölumanni frá Maryland hafi tekist jafn vel upp við að skrifa um hryðjuverk og hátæknivædda heimstyrjöld, og hvort „Patriot Games“ takist að fylgja eftir hinni ótrúlegu velgengni sem „Rauður stormur" naut. 51 ai V íslenskir dansarar vekja athygli í Englandi | slenskur danshópur á vegum Dansskóla Auðar Haralds fór til Englands í maí síðastliðnum, og vakti mikla athygli í tveimur danskeppnum þar. Hópurinn, sem kallar sig „Reykjavík Latin Team“, tók fyrst þátt í keppni sem kall- ast „Peter Miller Awards“, og síðan í alþjóðlegri danskeppni í Blackpool þann 29. maí. Fékk hópurinn mikið hrós fyrir frammistöðu sína þar, m.a. í hinu virta tímariti „Dance News“, sem spáði nýliðunum Metsöluhöfundurinn Tom Clancy. Gígja * 1 Súlnasal (*| ígja Sigurðardóttir er 19 ára gnndvíkingur sem gengur á skóla á austfjörðum en vinnur nú í verslunarbanka í Reykjavík stígur sín fyrstu spor sem söng- kona í Súlnasai Hótel Sögu um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.