Morgunblaðið - 25.08.1987, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 25.08.1987, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 Fornám: Inntökuskilyrði í Tölvuháskóla Verzlunar- skóla íslands eru stúdentspróf af við- skiptabraut eða samsvarandi menntun. Fyrir þá sem hafa lokið stúdentsprófi af öðrum brautum en hyggjast sækja um skólavist íTölvuháskólanum íjanúar býð- ur Verzlunarskólinn upp á aðfaranám í eftirfarandi greinum við öldungadeild skólans: Bókfærslu Reksturshagfræði Stærðfræði Vélritun Nánari upplýsingar um áfanga þessa eru gefnar á skrifstofu skólans 25.-28. ágúst kl. 08.00-19.00 og þar fást einnig um- sóknareyðublöð. Hársnyrti- stofa í Holiday Inn OPNUÐ hefur verið ný hár- snyrtistofa í Holiday Inn-hótel- inu sem ber heitið „Oh lala!“. Eigandi stofunnar er Guðríður Ólafsdóttir hárskeri og með henni starfa Ingunn Jónmunds- dóttir hárgreiðslumeistari og Sigr. Amalía Þórðardóttir hár- greiðslusveinn. Á hársnyrtistofunni verður veitt öll almenn hársnyrtiþjón- usta. Unnið verður með Sebast- ian-hársnyrtivörur og verða þær einnig til sölu á stofunni. Stofan verður opin alla virka daga kl. 9.00-18.00 og laugar- daga kl. 10.00-14.00. Morgunblaðið/BAR Guðríður Ólafsdóttir á nýju hárgreiðslustofunni „Oh lala!“, sem er borið fram „Úllala". Akranes: Haförn hf skipt- ir um eigendur Verzlunarskóli íslands Starfsnám Innritun í starfsnám Verzlunar- skóla íslandsferfram dagana 25.-28. ágúst kl. 08.00—19.00. Umsækjendur skulu koma á skrifstofu skólans og fá afhent umsóknareyðublöð þar og allar upplýsingar um námið og til- högun þess. Starfsnámið miðar að því að búa nemendur undir að auka hæfni þeirra til skrifstofustarfa og fer fram á tveim brautum, þar sem kenndar eru eftirtaldar greinar: Bókhaldsbraut Skrifstofubraut Bókfærsla Kostnaðarbókhald Rekstrarhagfræði Stærðfræði Tölvubókhaid Töivunotkun Bókfærsla Enska íslenska Stærðfræði Verslunarréttur Vélritun/ritvinnsla Innritun í aðrar deildir full- orðinsf ræðslu Verzlunar- skóla íslands fer fram á skrifstofu skólans á sama tíma. AkranesL Eigendaskipti hafa orðið á fiskvinnslufyrirtækinu Haferni hf. á Akranesi og hafa eigenda- skipti nú þegar farið fram. Kaupandinn er Þorsteinn Inga- son framkvæmdastjóri sem m.a. hefur rekið fyrirtækið Stokkfisk hf. á Laugum í Þingeyjarsýslu. Engin breyting mun verða á rekstri fyrirtækisins fyrst um sinn og öllu starfsfólki mun verða gefin kostur á að starfa áfram við það. Formleg eigendaskipti hafa nú þeg- ar farið fram og mun Guðmundur Pálmason sem verið hefur fram- kvæmdastjóri gegna starfí sínu áfram og sömuleiðis munu aðrir af fyrri eigendum starfa áfram við fyrirtækið að einum undanskildum. Eigendur Hafamar hf. voru fímm og eru þeir auk Guðmundar.Óskar Hervarsson, Páll Engilbertsson, Pétur Jónsson og Eiríkur Hervars- son. Þeir stofnuðu fyrirtækið fyrir tuttugu og þrem ámm og gerðu þá út einn bát. Sjö árum síðar kejrptu þeir fiskvinnsluhús Fiskivers hf. og síðan hefur verið um að ræða samfellda uppbyggingu fyrir- tækisins. Á síðasta ári luku þeir við að byggja upp nýja aðstöðu fyrir starfsfólk og skrifstofuhúsnæði en áður hafði frystihúsið verið end- umýjað og er því aðstaða fyrirtæk- isins hin glæsilegasta. Guðmundur Pálmason fram- kvæmdastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að ákvörðun um sölu fyrirtækisins hefði verið tekin að vandlega athuguðu máli. Að okkar mati er þetta góður tími til að selja. Við emm famir að eldast og því er ágætt að geta dregið örlítið í land. Við félagamir höfum starfað saman í 25 ár og samstarfíð hefur verið eins og best verður á kosið. Guðmundur sagði að þrátt fyrir allt væri viss eftirsjá í þessari ákvörð- un. Þetta hefur verið skemmtilegur og góður típii og við höfum lagt okkur alla fram. Þess vegna er skemmtilegt að geta skilað þessu í hendur nýjum eiganda í því ástandi sem fyrirtækið er nú. Við höfum nú nær lokið við endurbætur á öllum húsakynnum þess og starfsemin hefur gengið vel. Fyrirtækið er nú í góðum og traustum höndum Þor- steins Ingasonar og ég er sannfærð- ur um að það á eftir að eflast mikið undir hans stjóm á næstu ámm, sagði Guðmundur að lokum. Haföm hf. á 25% af hlutafé í Krossvík hf.sem gerir út skuttogar- anna Höfðavík og Krossvík. Hefur hluti af afla þeirra verið uppistaða í vinnslu fyrirtækisins. Þorsteinn Ingason hinn nýji eig- andi fyrirtækisins hyggur á nýjung- ar í rekstri og mun jafnvel ætla að færa út kvíamar. Hefur hann tekið á leigu fískvinnsluhús Þórðar Guð- jónssonar sem er í næsta nágrenni Hafamarhúsana og ætlar að hefja framleiðslu á gæludýrafóðri þar. Til þessa hefur sú framleiðsla hans farið fram í Reykjavík. Verslunarskóli íslands ■ ■ Oldungadeild Á haustönn verða kenndir eftir- farandi áfangar til verslunar- og stúdentsprófs við öldungadeild Verzlunarskóla íslands: Bókfærsla íslenska Bókmenntir Saga Danska Stærðfræði Efnafræði Tölvufræði Enska Verslunarréttur Franska Vélritun Hagfræði Þýska Áfangalýsingar liggja frammi á skrifstofu skólans, Ofanleiti 1. Innritun íallar deildir fullorð- insfræðslu Verzlunarskólans fer fram í Ofanleiti 1,25.-28. ágúst kl. 08.00—19.00. —JG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.