Morgunblaðið - 08.10.1987, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987
19
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^íöum Moggans! A
„Það væri samt ljótt ef
það vitnaðist að verið
væri að beita Morgnn-
blaðinu, „blaði allra
landsmanna“, gegn Út-
varpi Rót, sem lið í
árásum hægri stúdenta
í háskólanum á núver-
andi meirihluta í stúd-
entaráði.“
ir kasta á báða bóga til að sýna
Lram á meinta róttækni hlutafélags-
ins Rótar. Það væri gaman að fá
viðhlítandi skýringar á því hvað
manninum gengur til með þessum
skrifum, sérstaklega þó ef undir
nafni væri. Það væri samt ljótt ef
það vitnaðist að verið væri að beita
Morgunblaðinu, „blaði allra lands-
manna", gegn Útvarpi Rót, sem lið
í árásum hægri stúdenta í háskólan-
um á núverandi meirihluta í stúd-
entaráði.
(BŒA)
Kringlunni
sími: 689122
Höfundur er framkvæmdastjóri
Rótarhf.
ÚtvarpRót
og róttækni
eftirÞórodd
Bjarnason
Það er harla fátítt að stofnun
hlutafélags ergi Morgunblaðið. Nær
sanni væri að blaðið teldi slíkt óska-
lausn í velflestum mannlegum
samskiptum. En allt er í heiminum
hverfult og í morgun, 6. október,
voru gervailir Staksteinar Morgun-
blaðsins lagðir undir níðskrif um
útvarpsfélagið Rót hf. Ástæða árás-
ar úr svo óvæntri átt virðist vera
sú, að Stúdentaráð Háskóla íslands
íhugar að fylgja í fótspor Sambands
íslenskra námsmanna erlendis og
Bandalags íslenskra sérskólanema
og kaupa hlutabréf í grasrótarút-
varpinu Rót.
I því útvarpi býðst samtökum
færi á að vinna og senda út dag-
skrá eftir eigin höfði, og mun hafa
verið rætt innan námsmannahrejrf-
ingarinnar að halda úti nokkurs
konar námsmannaútvarpi. Allir sjá
hvílíkur akkur samtökum af marg-
víslegum toga væri í slíkri útvarps-
stöð, enda er áhugi á þátttöku í
útvarpi Rót mikill og á breiðum
grunni. Hlutafjársöfnun, jafnt með-
al einstaklinga sem samtaka, hefur
enda gengið framar öllum vonum.
En af hveiju er Mogginn svona
reiður? Jú, hann hefur nefnilega
fundið það út, að hér muni vera á
ferðinni róttækt útvarp. Til að það
færi nú ekki fram hjá neinum, dugði
ekki minna en hálf tylft ítrekana á
orðasambandinu róttækt útvarp i
annars lipurlega rituðum pistli.
Gott og vel. Róttækni eða ekki rót-
tækni er náttúrulega bara spuming
um skilgreiningu. Við skulum að-
eins líta á þau rök sem Staksteinar
færa fram stóradómi sínum til
stuðnings:
1) „ ... meðal þeirra sem vinna að
undirbúningi þess (innsk. átt er
við Útvarp Rót) er enginn annar
en Þorbjöm Broddason, er hefur
hingað til skipst á að tala um
íjölmiðlun í nafni félagsvísinda-
deildar háskólans og Alþýðu-
bandalagsins.“
2) Ragnar Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur, er í vara-
stjóm hlutafélagsins.
3) Félag Vinstrimanna í Háskóla
íslands á hlut í félaginu.
4) „The Economist telur sósíalfska
flokka vera búna að glata hug-
sjóninni og þar með markmiðinu
sem sameinar félaga í þeim und-
ir einu merki. Þess í stað væru
flokkamir að breytast í einskon-
ar regnhlíf fyrir hópa sem
beijast fyrir þröngum, einangr-
uðum markmiðum ... Róttæka
útvarpið á að vera einskonar
regnhlíf, eða grasrótarút-
varp...
5) í fréttatilkynningu frá Rótinni
segir: „Markmiðið er ekki að
afla hagnaðar heldur skapa vett-
vang fyrir þjóðfélagslega og
menningarlega umræðu. Mun
útvarpið leggja sérstaka rækt
við umræðu um: Mannréttinda-
mál, þjóðfrelsismál, velferðar-
mál, verkalýðsmál, umhverfís-
mál, menningarmál, friðarmál,
kvenfrelsismál og uppeldis- og
menntamál." Þessa klausu til-
færa Staksteinar í heild og
hnýta við til skýringar: „Þeir
málaflokkar sem þama eru
nefndir, gefa til kynna hvaða
skoðanir einstakir hópar á bak
við stöðina tilvonandi hafa.“
Aðrar skýringar á því hvers
vegna um róttækt útvarp sé að
ræða fundust nú ekki í pistlinum.
Það er því enn á huldu hvort það
sé eftirsóknarvert eða ekki að telj-
ast róttækur samkvæmt skilgrein-
ingu Staksteina. Skoðum aðeins
betur þessi fímm atriði sem einhver
handfesta gæti verið í.
l.atriði
Rangt. Það hefur enginn Þor-
bjöm Broddason unnið að undirbún-
ingi Útvarps Rótar. Það væri
gaman ef satt væri, en hafa ber
það sem sannara reynist. Mér dett-
ur helst í hug að þessi leiðinlegi
misskilningur sé til kominn vegna
ráðstefnu um útvarpslögin sem
Útvarpsréttamefnd hélt sl. laugar-
dag. Þeim einkaaðilum, sem lejrfí
hafa fengið til útvarpsrekstrar, var
boðið að tilnefna nokkra menn hver
á ráðstefnuna. Útvarp Rót mátti
tilnefna fímm, og nýttum við það
góða boð til fullnustu. Einn þeirra
sem við buðum að taka þátt í ráð-
stefnunni var einmitt Þorbjöm
Broddason. í upphafí ráðstefnunnar
þakkaði hann aðstandendum Rótar
fyrir að hafa veitt sér tækifæri til
þátttöku enda hefði hann á efíiinu
mikinn áhuga vegna starfs síns við
félagsvísindadeild háskólans. Til að
fyrirbyggja allan misskilning tók
hann sérstaklega fram að hann
gæti á engan hátt skoðast málsvari
einhverrar ákveðinnar útvarps-
stöðvar.
2. atríði
Rétt. Ragnar Stefánsson er í
varastjóm Rótar hf. og?
3. atríði
Rangt. Það er í mínum verka-
hring að halda hlutaskrá Rótar hf.
og Félag vinstrimanna í Háskóla
íslands á ekki hlut í félaginu, hvað
sem síðar verður.
4. atríði
Ég skil þessa regnhlífarrökfræði
ekki alveg. Hvað er átt við?
5. atriði
Hvaða skoðun á upptöldum mála-
flokkum er að vilja skapa vettvang
Þóroddur Bjaraason
fyrir umræður um þá? Mér sýnist
hér örla á gamalli Morgunblaðs-
meinsemd; að telja það róttækni á
háu stigi að vilja þjóðfélagslegar
umræður. Útfrá slíkri röksemda-
færslu má vel segja að Útvarp Rót
sé róttækt, því við ætlum svo sann-
arlega að efla umræður um þjóð-
félagsmál eftir föngum.
Að öðru leyti vísa ég heim til
föðurhúsanna þeim hæpnu og órök-
studdu fulfyrðingum sem Stakstein-
Haust-
tilboð
Kosta Boda
20%
Staðgreiðsluafsláttur
af öllum vörum
í verslunum okkar
út þessa viku.
KOSTA BODA
Bankastræti 10,
sími: 13122