Morgunblaðið - 17.10.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
31
Mesti veðurofsi
sem Bretar muna
London, frá Valdimar Unnarí Valdimarssyni, fréttarítara Morgunblaðsins. Reuter.
Reuter
Kona klöngrast yfir fallin tré á leið til vinnu sinnar í London í
gænnorgun.
VEÐUROFSINN sem gekk
yfir sunnanvert England i fyrri-
nótt er sá mesti í manna minnum.
Að minnsta kosti 13 biðu bana
og óttast er að sú tala eigi eftir
að hækka. Óveðríð olli einnig
usla á vesturströnd Hollands,
Frakklands, Portúgals og Spánar
og biðu að minnsta kosti 6 menn
þar bana.
Ofsaveðrið kom öllum á óvart,
ekki aðeins enskum almenningi,
hetdur einnig veðurfræðingum, sem
bókstaflega ekki vissu hvaðan á sig
stóð veðrið.
Það var um miðja nótt sem Lund-
únabúar og aðrir íbúar í suðurhluta
Englands vöknuðu upp við veðu-
rofsann, sem olli tugmilljóna punda
tjóni. Er eyðileggingin af völdum
veðursins raunar slík að menn rek-
ur ekki minni til annars eins hér í
landi ef undan eru skildar afleiðing-
ar loftárása í síðari heimsstyijöld.
Samgöngur lömuðust víða, ekki
sízt vegna trjáa sem rifnuðu upp
með rótum og lögðu stein í götu
manna. Raforkukerfið í suðurhluta
Englands fór úr skorðum og lestar-
ferðir lögðust niður. Má til dæmis
segja að samgöngukerfi Lundúna-
borgar hafí verið lamað langt fram
eftir degi af þessum sökum. Var
fólk raunar hvatt til að halda sig
heima við í lengstu lög. Þá fór raf-
magn af allri höfuðborginni um
tíma og er það í fyrsta sinn sem
hún myrkvaðist frá í loftárásum
Þjóðvetja í síðustu heimsstyijöld.
Víða jaðraði við neyðarástand og
hafa herdeildir verið kallaðar út til
að ryðja vegi og aðstoða við hreins-
un staða, sem verst urðu úti.
í frétt frá Reuíers-fréttastofunni
síðdegis í gær sagði að vitað væri
um 13 dauðsföll af völdum veður-
ofsans í Englandi en óttast væri
að sú tala ætti eftir að hækka. Þá
rak enzkt olíuleitarskip með 79
menn innanborðs stjómlaust á
Norðursjó í óveðrinu, en eftir að
veðurofsanum slotaði í gær var
ekki talin mikil hætta á ferðum.
Samkvæmt metabók Guinnes
gekk fárviðri yfír England í nóv-
ember 1703 með þeim afleiðingum
að 8.000 manns biðu bana. Er það
talið mesti veðurofsi þar í landi.
Óveðrið gerði einnig usla á vest-
urströnd Frakklands, Portúgals,
Spánar og í Hollandi. Biðu a.m.k.
tveir menn bana og 15 slösuðust í
Bretaníu og Normandí, tveir menn
biðu bana í Portó í Portúgal og
tveir í norðvesturhomi Spánar.
Nancy Reagan
Nancy Re-
gan með
krabba í
brjósti?
Washington, Reuter.
NANCY Reagan, forsetafrú
Bandaríkjanna, gengst í dag,
laugardag, undir skurðaðgerð til
þess að fá úr því skorið hvort
æxli i vinstra bijósti sé illkynja,
að sögn Hvíta hússins.
Reynist æxlið illkynja verður
bijóstið og vöðvar umhverfís það
fjarlægðir með skurðaðgerð.
Æxlið í btjósti forsetafrúarinnar
kom í ljós við læknisskoðun 5. októ-
ber sl. Nancy er 64 ára. Hún var
lögð inn á sjúkrahús sjóhersins,
Bethesda, skammt frá Washington,
í gærkvöldi, að sögn Marlin Fitz-
water, talsmanns Hvíta hússins.
hann ávarpaði fijálslynda í Torquay
á miðvikudaginn var. Réðst hann
þar allharkalega að fyrrum félaga
sínum David Owen, sem nú hefur
ákveðið að beijast til þrautar undir
merki lýðræðislegrar jafnaðar-
stefnu á Bretlandi.
David Owen hefur sem kunnugt
er sagt skilið við fyirum flokks-
bræður í flokki jafnaðarmanna.
Hann vildi ekki sameinast Fijáls-
lyndaflokknum en hyggst síður en
svo hætta afskiptum af stjórn-
málum. Hafa ýmsir fyrrum flokks-
menn ákveðið að feta í fótspor
leiðtoga síns og þora fáir að af-
skrifa pólitíska framtíð þessa
vinsæla stjómmálamanns. David
Steel hefur þó sagt að nafni sinn
hafí nú haldið í pólitíska eyðimerk-
urgöngu sem ekki getað endað vel.
Hvort sú spá rætist mun framtíðin
j^in skera úr um og þá ekki síst
gengi hins nýja flokks fijálslyndra
og jafnaðarmanna, sem menn em
ekki sammála um hvað heita skuli.
BÍLASÝNING
FORD SIERRA 1988
SÝNUM í DAG '88 ÁRGERÐINA AF FORD SIERRA
OPIÐ FRÁ 10 - 17 í DAG LAUGARDAG
Komið - skoðið og reynsluakið frábærum bíl frá Ford.
SVEINN EGILSSON HF.
Framtíð við Skeifuna. S. 685100/689633