Morgunblaðið - 17.10.1987, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
62
KARATE
íslands-
mótiðí
dagí
Laugar-
dalshöll
Islandsmeistaramótið í karate
verður haldið í dag í Laugar-
dalshöll og hefst kl. 18.00.
Aðaldómari verður Ted Hedlund
frá Svíþjóð en hann er meðlimur
dómaranefndar Evrópusam-
bandsins.
Um 40 keppendur eru skráðir á
mótið og eru allir bestu karate-
menn í karla- og kvennaflokki
meðal keppenda. Sjö félög hafa
tilkynnt þátttöku.
Mótið hefst, sem fyrr greinir,
kl. 18.00 og talið er að því ljúki
um kl. 21.30.
f
í
\
Karatemynd ársins í fyrra, sem
Bjarni Eiríksson, ljósmyndari á
Morgunblaðinu tók. Hér eru það
Sylvía Gústafsdóttir úr Breiðabliki
og Kristín Einarsdóttir úr Gerplu
sem eigast við.
HANDBOLTI
Víkingar
leika 1. nóv.
í Höllinni
Víkingar leika fyrri leik sinn
í Evrópukeppni meistara-
liða í handknattleik gegn danska
liðinu Kolding sunnudaginn 1.
nóvember kk 20.30. Seinni leik-
ur fer svo fram ytra 8. nóvember
ki. 16.00.
KEILA
Reykjavíkur-
mótið hefst
Reykjavíkurmótið í keilu
hefst kl. 11.00 f.h. í dag
með keppni f liðakeilu. Leikið
verður baeði í dag og á morgun.
A miðvikudaginn hefst svo para-
keppnin kl. 19.30, og stendur
hún laugardags. Sunnudaginn
25. okt. hefst svo einstaklings-
keppnin. Keppnin fer fram í
keilusalnum í Öskjuhlíð.
HAPPDRÆTTI
Drætti frest-
að hjá Kefl-
víkingum
Drætti í happdrætti Hand-
knattleiksráðs, sem vera
átti í gær, hefurs verið frestað
um hálfan mánuð, til 30. októ-
ber.
ÍÞRÓTTIR HELGARINNAR
Mikið um að vera í
handboita og körfubolta
Morgunblaðið/Bjami
Qunnar Belntelnsson er einn hinna ungu og efnilegu leikmanna FH sem leikið hafa mjög vel í vetur. Gunnar hef-
ur skorað tíu mörk í leikjunum Qórum. Hér stekkur hann inn úr hominu í leiknum gegn Stjömunni og skorar eitt
fjögurra marka sinna.
HEIL umferð verður í 1. deild
karla í handknattleik um helg-
ina. Tveir leikir fara fram í dag,
laugardag og þrír á morgun,
sunnudag. Þrír leikir verða í 1.
umferð úrvalsdeildarinnar í
körfuknattleik, einn í dag og
tveir á morgun.
Islandsmeistarar Víkings leika
gegn KA frá Akureyri í Laugar-
dalshöll í dag kl. 15.15. Víkingar
hafa 6 stig og eru í 3. sæti 1. deild-
ar en KA hefur aðeins unnið einn
leik, gegn Fram í 2. umferð.
A Akureyri eigast Þór og Stjaman
við kl. 14.00. Stjaman hefur átt
misjafna leiki, unnið Víking og KA
en tapaði stórt fyrir FH á miðviku-
dagskvötdið og UBK í 2. umferð.
Þórsarar hafa enn ekki hlotið stig
í deildinni en munu örugglega
freista þess að bæta úr því.
A morgun verða þrír leikir og hefj-
ast þeir allir kl. 20.00. Breiðablik
og Valur leika í Digranesi. Breiða-
blik hefur unnið síðustu þijá leiki
sina og er í 4. sæti. Valur hefur
hins vegar ekki tapað leik, hefur
gert eitt jafntefli, við Fram í fyrsta
leik.
FH, sem em í efsta sæti 1. deildar
með fullt hús, fær Fram í heimsókn
í Hafnarfjörð. FH-ingar hafa sýnt
mjög góða leiki og virðast óstöðv-
andi um þessar mundir. Það er
spuming hvort hinu vængbrotna lið
Fram takist að stöðva sigurgöngu
þeirra.
Loks leika ÍR og KR í Slejaskóla.
ÍR er með tvö stig eftir sigur á Þór
fyrir norðan. KR-ingar hafa komið
á óvart það sem af er og em með
markahæsta leimann fyrstu deildar,
Konráð Olavson, innanborðs.
Tveir leikir verða í 3. deild karla
og einn í 2. deild karla á sunnudag-
inn. Völsungur og ÍA leika á
Husavík kl. 14 og IS og UFHÖ kl.
16.30 í Laugardalshöll. Armann og
ÍBV leika í 2. deild í Laugardals-
höll kl. 14.00.
Fimmta umferð 1. deildar karla
verður ekki fyrr en 28. október.
Haukar og Þor leika í úrvalsdeild-
Um helgina munu lið St. Louis
og Minnesota hefja úrslita-
keppnina í bandaríska hafnar-
boltanum (baseball) eftir að
undanúrslitaleikirnir kláruðust
í vikunni. Á fimmtudag lauk
einnig 24 daga verkfalli at-
vinnumanna í ameríska fót-
boltanum, eftir að verkalýðs-
félag þeirra gafst upp á því að
eiga frekar við eigendur lið-
anna við samningaborðið.
Ihafnarboltanum sigraði Minne-
sota lið Detroit nokkuð ömgg-
lega í „amerísku" deildinni og St
Louis tókst að slá út San Fransico
IBBBHi > æsispennandi
Gunnar keppni í „national"
Valgeirsson deildinni.
skrifar Lið Minnesota hefur
staðið sig mjög vel
á þessu keppnistímabili, en liðið er
mestmegnis skipað ungum leik-
mönnum. Hafa þeir staðið sig mun
betur en flestir sérfræðingar vestra
spáðu fyrir keppnistímabilið. Minn-
inni í körfuknattleik í dag kl. 14.00
í Hafnarfírði. Á morgun leika svo
Valsmenn sinn fyrsta heimaleik í
esota sigraði Detroit með fjórum
leikjum gegn einum í keppni þeirra
og stendur liðið vel að vlgi fyrir
„heimsseríuna", eins og lokaúrslitin
em kölluð í Bandaríkjunum.
Á sama tíma og Minnesota af-
greiddi Detroit átti St Louis í miklu
basli með San Fransisco. Eftir að
hafa verið 3:2 undir í leikjum sínum
við San Fransisco, tóku leikmenn
St Louis sig til og sigmðu í tveimur
síðustu leikjunum 1:0 og 6:0. Unnu
þeir því þessa undarúrslitalotu 4:3.
St Louis-liðið hefur verið talið sterk-
asta liðið í hafnarboltanum nú í ár,
en mikil meiðsl hafa þó hijáð
nokkra lykilmenn þeirra undanfam-
ar vikur. Em margir bandarískir
íþróttafréttamenn undrandi á
hversu vel liðinu hefur tekist að
leika þrátt fyrir þessa erfíðleika.
Meira að segja þjálfari liðsins er
undrandi yfír því að vera kominn í
úrslit. Hann sagði við fréttamenn
eftir sigurinn á San Fransisco: „Ég
hef ekki hugmynd um hvemig að
þeim tókst þetta úti á vellinum. Ég
hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi
að Hlíðarenda. Gestgjafamir em
nýliðamir úr Breiðablik og hefst
á varla nógu sterk orð að lýsa
keppnisskapinu hjá þessum strák-
um.“
Úrslitahrinan hefst nú í dag i
Metrodome höllinni í Minneapolis.
Veðja flestir sérfræðingar vestra á
lið Minnesota vegna meiðsla hjá
nokkmm lykilmönnum St Louis.
Enginn skildi þó afskrifa lið St
Louis, þar sem það hefur staðið sig
mjög vel þótt móti hafí blásið.
Verkfalllnu loklð
Nú í vikunni lauk loks verkfalli at-
vinnumanna í amerískum fótbolta
sem staðið hafði í 24 daga. Eftir
að eigendur liðanna höfnuðu boði
verkalýðsfélags leikmanna um að
fá sáttasemjara í málið ákvað
verkalýðsfélagið að hætta verkfall-
inu. Ákváðu leikmenn að stefna
eigendum fyrir brot á lögum um
einokunarmyndun, en hefja æfíngar
og keppni aftur. Ættu því leikir
helgarinnar í NFL-deildinni að
verða alvömleikir að nýju.
leikurinn kl. 20.00. UMFG leika
sinn fyrsta úrvalsdeildarleik gegn
KR í Grindavík kl. 20.00.
Staðan f
1. deild
Fj. leikja U J T Mörk Stig
FH 4 4 0 0 129:83 8
Valur 4 3 1 0 85: 63 7
Vikingur 4 3 0 1 107: 92 6
UBK 4 3 0 1 82: 78 6
KR 4 2 0 2 97: 97 4
Stjarnan 4 2 0 2 96: 105 4
KA 4 1 0 3 74: 88 2
ÍR 4 1 0 3 82: 97 2
Fram 4 0 1 3 83: 97 1
Þór 4 0 0 4 77: 112 0
Bjarnl Jóhannsson.
Bjami
áfram með
Tindastól
BJARNI Jóhannsson hefur ver-
ið endurráöinn þjálfari 2.
deildarliðs Tindastóls frá
Sauðárkróki.
Bjami stjómaði liðinu í 3. deild
í sumar og vann það sér sæti
í 2. deild undur hans stjóm. Tinda-
stóll hefur aðeins einu sinni áður
leikið í 2. deild í knattspymu það
var árið 1984.
Konráð hefur gert
31 mark í 4 leikjum
Markahæstu leikmenn 1. deildar karla í handknattleik eftir fjórar
umferðir:
1. Konráð Olavson, KR....................................................... 31/8
2. Hans Guðmundsson, UBK.....................................................27/10
3. Þorgils Óttar Mathiesen, FH................................................ 27
3. Skúli Gunnsteinsson, Stjömunni...............................................27
5. Héðinn Gilsson, FH...........................................................22
6. Karl Þráinsson, Víkingi....................................................21/4
7. Óskar Helgason, FH.........................................................21/5
8. Sigurður Gunnarsson, Víkingi...............................................21/6
9. Stefán Kristjánsson, KR.................................................. 21/6
10. Július Jónasson, Val..................................................... 20/6
BANDARÍSKAR ÍÞRÓTTIR
Úrslitin í hafnaboitan-
um hefjast um helgina