Morgunblaðið - 18.10.1987, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1987
Frá vinstri:
María Siguröardóttir
viðskiptafræðingur, Davíð
Bjömsson rekstrarhagfræðingur,
Dagný Leifsdóttir
viðskiptafræðingur, dr. Pétur
Blöndal framkvæmdastjóri,
Sigurður Dagbjartsson sölustjóri
fasteigna, Andrea Rafnar
viðskiptafræðingur, Vilhjálmur
Bjamason viðskiptafræðingur,
Helgi Óskar Óskarsson
viðskiptafræðingur, Hilmar
Baldursson lögfræðingur.
KAUPÞiNGHF
Húsi verslunarinnar. sími 68 69 88
Verðbréfadeild: Einingabréf og Lífeyrisbréf fyrir þá, sem vilja tryggja
framtíð sína. • Fyrsta stóra skuldabréfaútboð fyrirtækis, auk tjölda annarra
nýjunga.
Deild efnahagsmála og erlendra viðskipta: Vikuleg útgáfa
„Vísbendingar", sérrits um efnahagsmál og alþjóðaviðskipti.
Fasteignadeild: Auk venjuiegrar þjónustu í fasteignaviðskiptum, bjóðast
viðskiptavinum tölvuunnin yfirlit yfir greiðslubyrði, samanburður ólfkra
tilboða, núvirðisútreikningar og greiðslutrygging kaupsamninga. • Ráðgjöf
við fjármögnun og ráðstöfun fjár. • Aukið öryggi í fasteignaviðskiptum.
Kröfukaupadeild: Útvegun rekstrarfjármagns til framleiðslu og verslunar.
Innheimta á reikningum og öðmm kröfum.
Ráðgjafadeild: Víðtæk ráðgjöf til handa fyrirtækjum og einstaklingum.
Sérstök ráðgjöf við gjaldmiðils- og skuldastýringar • verkefnastjómun.
Fjárvörsludeild: Ávöxtun fjárjafnt fyrireinstaklinga sem fyrirtæki. • Hvers
kyns fjármálaumsýsla, kaup, sala, endurfjárfesting. • Núvirðisreiknað
eignayfirlit ársfjórðungslega.
Kaupþing h. f. annast fyrirgreiðslu, ráðgjöf og þjónustu, jafnt við einstaklinga
sem stofnanir og fyrirtæki og býður nýja sem eldri viðskiptavini velkomna nú
á afmælisárinu, sem og endranær.
Hjá Kaupþingi h.f. fögnum við nú fyrsta 5 ára
áfanganum í sögu fyrirtækisins. Á þessu
tímabili hefur verið skammt stórra högga í
milli. Kaupþing h.f. hefur víða látið til sín taka
og verið brautryðjandi á sviði nýjunga í
íslensku fjármálalífi.
Viðskiptavinir Kaupþings h.f. koma
hvaðanæva að úr þjóðfélaginu og þeim fer
sífellt fjölgandi, enda er megináhersla lögð á
fjölþætta og persónulega þjónustu.
Innan vébanda Kaupþings h.f. eru nú
starfræktar 6 deildir, sem hver um sig annast
ákveðið svið fjármálaumsýslu og hefur á að
skipa sérþjálfuðum starfsmönnum með
víðtæka þekkingu og reynslu.
OCTAVO/SlA