Morgunblaðið - 21.10.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1987
Fiskveiðistj órnunin:
Ráðgjafarnefndin skilar
áliti sínu innan skamms
Frumvarp væntanlegt fyrrihluta nóvembermánaðar
STEFNT er því í fyrrihluta
næsta mánaðar að sjávarútvegs-
ráðherra leggi fram frumvarp
um stjórnun fiskveiða, sem taka
á gildi um næstu áramót. Ráð-
gjarnefnd um stjómun fiskveiða
fjallar nú um málið og er stefnt
SAMTALS vom 16.809 fólksbif-
reiðar fluttar til landsins fyrstu
átta mánuði þessa árs, samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaðið
aflaði sér hjá Hagstofu íslands.
Þar af vom 2.767 notaðar bifreið-
ar og 3.167 bílar með drif á öllum
hjólum.
Fyrstu sex mánuði ársins voru
að því, að hún skili áliti sínu til
ráðherra eigi síðar en um mán-
aðamót. Meira er nú rætt um
hverjum skuli úthluta kvóta, en
hvort kvóti skuli áfram hafður á
veiðunum.
Ámi Kolbeinsson, ráðuneytis-
fluttar inn 8.628 nýjar fólksbifreiðar,
1.711 notaðir bílar og 2.450 aldrifs-
bílar. í júlí 347 aldrifsbílar, 1.495
nýjir bílar og 518 notaðir bílar. í
ágúst voru fluttir inn 370 aldrifs-
bílar, 862 nýjir bílar og 428 notaðir
bílar. Tölur fyrir bílainnflutning í
september liggja ekki fyrir.
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, er
formaður ráðgjafamefndarinnar,
en hún er skipuð fulltrúum helztu
hagsmunaaðila og fulltrúum stjóm-
málaflokkanna, sem eiga menn í
sj ávarútvegsnefndum, alls 20
manns. Ámi sagði í samtali við
Morgunblaðið, að lítið væri að segja
um störf nefndarinnar og það, sem
á fundum hennar gerðist. Hann
sagði þó, að meira væri rætt um
það en áður hverjum ætti að út-
hluta kvóta, en hvort kvóti ætti að
vera áfram. Þá væri einnig rætt
um áhrif kvótakerfísins á útgerðar-
hætti og hagkvæmni sóknar, um
fyrirkomulag djúprækjuveiða,
sóknarmark og fleiri þætti. „Þetta
er góður vettvangur fyrir skoðana-
skipti, en um hugsanlega útkomu
get ég ekkert sagt,“ sagði Ámi
Kolbeinsson.
Tæplega 17 þúsund bíl-
ar fluttir til landsins
VEÐURHORFUR f DAG, 21.10.87
YFIRLIT á hádoQÍ í gnr: Við suðvesturströnd iandsins verður lægð,
1 8em hreyfist suð-suðaustur.
8PÁ: I dag Ktur út fyrir norðlœga átt um norðvestanvert iandið en
hœga breytilega átt suðaustan til. Slydda eða snjókoma verður á
Vestfjörðum, Iftilsháttar súld við austur- og norðurströndlna en
annars þurrt. Hitlð 0—6 stig, hlýjast Suðaustaniands. \
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FIMMTUDAGUR: Fremur hœg sunnanátt, vfða skúrir eða slydduól
um sunnan- og austanvert landið, en að mestu þurrt f öðrum lands-
hlutum. Hiti 1—3 stig.
FÖSTUDAGUR: Hœgviðri — skýjaö en að mestu úrkomulaust. Hiti
2—4 stlg.
TÁKN: x, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius
HeiAskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V V Skúrir El
LéttskýjaA / r r r r r r Rigning Þoka
^^Hálfskýjað / / / * / * 9 9 9 Þokumóða Súld
^Skýjrf / * r * Slydda / * / * * * oo 4 Mistur Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * # K Þrumuveður
xn VEÐUR VlDA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veöur Akurayri 2 akýjað Reykjevfk 2 léttekýjað
Bergen 1ð ekýjað
Helsinki 8 þokumóða
len Meyen ♦1 enjókome
Ktupmenneh. 13 þokumóAa
Narteereeueg + 8 léttakýjað
Nuuk 1-8 léttekýjað
Óaló 10 þokumóða
Stokkhólmur 10 þokumóða
Þórshöfn 8 ekýjeð
Algarve 18 ekýjað
Amaterdam 14 mlatur
Aþena 20 akýjað
Barcelona 22 þokumóða
Berlfn 11 þokumóða
Chicago 3 hálfakýjað
Feneyjar 17 léttakýjaö
Frankfurt 10 alakýjað
Glaagow 12 rignlng
Hamborg 11 akýjað
LaaPalmaa 26 alakýjeð
London 14 rigning
Loa Artgelea 14 helðakfrt
Lúxemborg 12 •kýjað
Madrid 16 altkýfað
Malaga 21 hálfakýjað
MaHorca 26 mlatur
Montreal 11 þokumóða
NewYork 13 mlatur
n,„r. rwn 16 akýjað
Róm 23 akýjað
Vln 12 mlatur
Waahlngton 12 þokumóða
Winnlpeg 0 anjóél
Morgunblaiið/Bjami
Ólafur B. Thors, forstjóri Almennra Trygginga, afhendir Guðmundi
Bjarnasyni, heilbrigðisráðherra, eintak númer 1 af hinum nýja bækl-
ingi um alnæmi.
Bæklingur um alnæmi
inn á öll heimili landsins
BÆKLINGI með upplýsingum um alnæmi verður dreift inn á öll
heimili landsins innan skamms, en útgáfa og dreifing þessa bækl-
ings er langstærsta átak sem gert hefur verið í fræðslumálum um
alnæmi hér á landi til þessa, að sögn Guðmundar Bjarnasonar, heil-
brigðisráðherra. Bæklingurinn, sem ber nafnið „Láttu ekki gáleysi
granda þér“, er gerður í samvinnu nokkurra fyrirtækja og annarra
aðila við Landlæknisembættið, og verður hann gefinn út í 90.000
eintökum.
Ólafur B. Thors, forstjóri Al-
mennra Trygginga, afhenti
Guðmundi Bjamasyni, heilbrigðis-
ráðherra, fyrsta eintakið af bækl-
ingnum á fréttamannafundi í gær,
fyrir hönd þeirra aðila sem að útgáf-
unni standa. Fjölmargir aðilar hafa
gefíð vinnu sina við gerð bæklings-
ins, en það var ísafold sem hafði
frumkvaeðið að útgáfunni, í tilefni
af 110 ára afmæli ísafoldarprent-
smiðju. Texti bæklingsins er saminn
af Landlæknisembættinu.
Bæklingurinn er litprentaður, og
16 síður að lengd, og í honum er
að fínna upplýsingar um smitleiðir
sjúkómsins, vamir gegn honum,
mótefnamælingar, og önnur atriði
sem viðkoma alnæmi. Bæklingamir
verða tölusettir, og munu 32 ein-
staklingar og fjölskylur fá verðlaun,
eftir að valið hefur verið úr tölum
I ajónvarjíi. Er það von útgefenda
að þetta stuðli að því að fólk varð-
veiti bæklinginn.
Fyrr á þessu ári var bæklingi um
alnæmi dreift til ungmenna á aldr-
inum 14-24 ára, en útgáfa og
dreifing hins nýja bæklings er mun
viöameira verkefni. Ólafur Ólafs-
son, landlæknir, sagði á frétta-
mannafundinum í gær, að fræðsla
væri langmikilvægasti þátturinn í
baráttunni við alnæmi, og að til
stæði að gera skoðanakönnun á
þekkingu fólks um alnæmi eftir að
fræðsluátakinu lýkur.
Ekki hefur verið ákveðið ná-
kvæmlega hvenær bæklingurinn
verður borinn í hús, en að sögn
heilbrigðisráðherra verður þess ekki
langt að biða.
Lánskjaravísi-
talan mælir
33,7% verðbólgn
LÁNSKJARAVÍSITALAN í nóv-
ember verður 1841 stig, sem er
2,45% hærra en vísitalan í októ-
ber. Samsvarar þessi hækkun
33,7% árshækkun visitölunnar.
Umreiknuð til árshækkunar hef-
ur breyting á lánskjaravisitölunni
verið 24,5% síðustu þijá mánuði,
22,7% síðustu sex mánuði og 21,4%
undanfama tólf mánuði.
Dómur fyrir æru-
meiðandi ummæli
um lögreglumenn
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm undirréttar t máli ákæru-
valdsins gegn Þorgeiri Þorgeirs-
syni, rithöfundi, en hann var
ákærður fyrir ærumeiðandi að-
dróttanlr ( garð lögreglumanna
I tveimur greinum sem hann rit-
aði í Morgunblaðið árið 1983.
Þorgeiri var gert að greiða 10
þúsund krónur i sekt, auk áfrýj-
unarkostnaðar. Einn hæstarétt-
ardómari skilaði sératkvæði i
málinu og taldi að sýkna bæri
Þorgeir.
Veijandi Þorgeirs krafðist þess
fyrir Hæstarétti að hinn áfrýjaði
dómur og málsmeðferð yrðu ómerkt
og málinu vísað heim í hérað til dóms
að nýju. Þessa kröfu studdi veijand-
inn með því, að héraðsdómarinn,
Pétur Guðgeirsson, hafi starfað sem
fulltrúi ríkissaksóknara á þeim tlma
sem rannsókn málsins stóð yfír.
Hafl hann því verið vanhæfur til að
fara með málið og dæma það. Þá
hafi fulltrúi ákæruvalds ekki verið
viðstaddur réttarhöld I sakadómi og
ábending ákærða um að f ákæru
fælust brot gegn 4. grein höfundar-
laga hefði ekki komist til vitundar
ákæruvalds. Loks taldi ákærði að það
bryti gegn lögum að einn og sami
maður fari bæði með störf dómara
og ákæruvalds ( sama máli.
Af hálfu ákæruvalds var ómerk-
ingarkröfunni mótmælt og Hæsti-
réttur vísaði henni á bug. Dómurinn
komst að þeirri niðurstöðu, að ekk-
ert hefði komið fram um að meðferð
málsins hafí verið með þeim hætti
að valdið hafí vanhæfí dómarans eða
leiða ætti til ómerkingar hins áfrýj-
aða dóms. Var því dómur undirréttar
um sakfellingu staðfestur og Þor-
geiri gert að greiða allan áfrýjunar-
kostnað, þar með talin laun skipaðs
veijanda síns, Sigurmars Albertsson-
ar hrl., og saksóknarlaun.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
amir Guðmundur Jónsson, Guð-
mundur Skaftason, Magnús Þ.
Torfason og Amljótur Bjömsson,
prófessor, en Gaukur Jömndsson,
settur hæstaréttardómari, skilaði
sératkvæði. Þar segir, að í þeim
málum, sem höfðuð em til refsingar
fyrir æmmeiðandi ummæli, beri að
marka skýrt og ótvírætt, hvaða aðila
slík ummæli em talin meiða. Gaukur
taldi, að skilja yrði ákæm I málinu
svo, að brot beindist að lögreglu-
mönnum I Reykjavík almennt. Ekki
væm skilyrði til að refsa ákærða
fyrir brot á 108. grein almennra
hegningarlaga, sem skýra verði með
hliðsjón af gmndvallarreglu íslenskr-
ar stjómskipunar um frelsi manna
til að tjá sig I ræðu og riti. Þvl bæri
að sýkna Þorgeir og leggja allan
sakarkostnað í 'héraði og fyrir
Hæstarétti á ríkissjóð.