Morgunblaðið - 21.10.1987, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 21.10.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1987 59 Blátt veski Blátt veski með skilríkjum o. fl. tapaðist laugardaginn 10. októ- ber. Finnadi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 685183. Fundariaun. Stór og feit læða Stór og feit læða, bröndótt með hvíta bringu, kom í hús á Melun- um fyrir nokkru. Eigandi hennar er beðinn að hringja í síma 25858. Eyrnalokkur Eymalokkur tapaðist fyrir nokkru á Holiday inn. Á eyma- lokknum er gyltur hringur með glæmm steinum. Skilvís finnandi er vinsalmlegast beðinn að hringja í síma 41845. Svört læða Kisa fór að heiman frá sér að Blöndubakka 7 fyrir rúmri viku. Hún er svört, afskaplega mann- elsk og gegnir nafninu Birta. Þeir sem hafa orðið varir við hana era beðnir að hringja í síma 73544. Páfagaukur Fagurblár páfagaukur tapaðist frá Sólvallagötu 6 miðvikudaginn 4. október. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 18332. Fund- arlaun. Kvenreiðhjól Kvenreiðhjól er í óskilum í Kópavogi. Þetta er nýlegt reiðhjól með gíram. Réttur eigandi getur gefíð sig fram í síma 46144 milli kl. 13 og 19 virka daga. Plasthöldur Spurst var fyrir um það í Vel- vakanda hvar plasthöldur á lítra- hymur væra fáanlegar. Slíkar plasthöldur hafa fengist í Ham- borg, Mjólkurbúðinni að Háaleitis- braut 2, Miklagarði og Kaupfélag- inu á Selfossi. B. Thorvaldsson, umboðs- og heildverslun, hefur heildsölubirgðir af þessum vam- ingi. Kvengullúr Kvengullúr tapaðist við Fellsmúla fyrir skömmu. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 32439. Fundarlaun. Skrifaði ekki greinina Elísabet Berta Bjamadóttir .félagsráðgjafi, hafði samband við Velvakanda og óskaði að það kæmi fram að hún skrifaði ekki greinina „Dagur vonar: Einstæður listviðburður" sem birtist í Vel- vakanda miðvikudaginn 14. október. Hvolpur Lítill svartur hvolpur með hvíta bringu fannst í Hamraborg í Kópavogi í gær. Upplýsingar í símum 42516 og 641046. Gul skólataska Lítil gul skólataska er í óskilum í Menntamálaráðuneytinu og get- ur eigandinn vitjað hennar í afgreiðsluna á 1. hæð Hverfisgötu 4. Sakna Andra Back- mann Kaupmaður í Norðurmýri hringdi: „Varla liður sú helgi að ég bregði mér ekki á Mímisbar Hótel Sögu. Undanfarin ár hefur Andri Backmann séð þar um músíkina ásamt félögum sínum. Þeir hafa leikið gömul góð lög sem fallið hafa í kramið hjá gestunum og gert kvöldin ánægjuleg. Nú bregður svo við að Andri er hætt- ur á Mímisbar og eram við fastagestimir afar óhressir með það. Við viljum fá Andra aftur og teljum okkur eiga inni hjá húsráðendum skýringu á því hvers vegna hann hætti." f Örlítil viðbót um reiðhjóiastuldi Til Velvakanda. Mig langar að koma með smáinn- legg í skrif um hjólreiðastuldi. Hjóli 9 ára sonar míns var stolið snemma í sumar. í viðræðum við lögreglu kom fram atriði, sem hlýt- ur að skýra að einhverju leyti hvað veldur því að böm geta birst með nýleg hjól á heimilum sínum. For- eldranum er einfaldlega sagt frá hjóli, sem „hann Siggi" ætli að selja á mjög góðu verði. Leyfi fæst til að „kaupa" það og þar með sjá foreldramir ekkert athugavert við tilkomu þess. Af þessum sökum vil ég brýna fyrir foreldram bama, sem koma með slík tilboð, að kanna hjá foreldram „Sigga", ef hann er þá til, hvort hann megi selja hjólið sitt. Ég vil einnig brýna fyrir foreldr- um að skrifa strax niður stellnúmer á hjólum, sem keypt era, gjaman inn á nótuna og geyma hana síðan. Þá er hægt að sanna eignarrétt, ef með þarf. Númerið er neðst á stellinu og þarf að snúa hjólinu við til að sjá það. Þetta vita ekki allir. Arvekni vinar sonar míns leiddi til þess að hjólið hans fannst 5—6 vikum eftir að því var stolið. Á því var drengur, sem í fyrstu sagðist hafa keypt það en síðan fundið það. Útlitinu hafði verið breytt og var hjólið nokkuð skemmt. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég talaði við móður drengsins. Hún sagði hann hafa fundið það, en hafði enga tilraun gert til að kanna hvort einhver hefði tapað því. Sigríður Halldórsdóttir Reiðhjól tek- ið á Bræðra- borgarstíg Reiðhjól af ítalskri gerð (Scoff) var tekið síðastliðið laugardags- kvöld fyrir utan Bræðraborgarstíg 49. Hjólið er blátt að lit og var með gulu og hvítu bandi utanum stýrið. Þeir sem geta veitt upplýsingar um hjólið era vinsamlegast beðnir að hringja í síma 16937. Skipsij órnarmenn Verið ávallt minnugir ábyrgðar ykkar á öryggi skipveija. Sjáið um að öll öryggistæki séu í lagi og að hver einasti skipverji kunni meðferð þeirra og viti hvemig og hvað hann eigi að gera á neyðarstundu. LISTASAFN ÍSLANDS hefur flutt skrifstofu sína að Fríkirkjuvegi 7. Jafnframt hefur það tekið í notkun nýtt símanúmer: 62-1000 ÓKEYPIS BÆKLINGUR Starfsframi, betri vinna, betri laun Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum starfsf rama og betur launaðri vinnu. Þú stundar námiö heima hjá þér á þeim hraöa sem þór hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón- ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Littu á listann og sjáöu öll þau tækifæri sem þérgefast. ICS-bréfaskólinn hefur örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír- teini í lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross i aöeins einn reit). Námskeiðin eru öll á ensku. □ Tölvuforritun □ Rafvirkjun □ Ritstörf □ Bókhald □ Vélvirkjun □ Almenntnám □ BiNólavirkjun □ Nytjaliat □ Stjórnun fyrirtœkja □ Garóyrkja □ Kjólasaumur O Innanhús- arkitektúr □ Stjórnun hótela og veitingastaóa □ Blaóamennska □ Keelitækni og lottræsting Nafn:....................................................... Heimilisfang:................................................ ICS Internatlonal Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High Street, Sutton, Surrey SM11PR, England. mHOTEL& " TOURISM h SCHOOL in m SWITZERLAND Hr. A. Semonite, stjórnandi HOSTA, auglýsir kynningarnámskeið H sem fjalla á um h hótelrekstur og ferðamannaiðnað ^ á Holiday Inn hótelinu í Reykjavík 22. október 1987 frá kl 20.30. H Allirsemáhugakunnaaðhafaeruvelkomnir. H Ef að einhver sér sér ekki fært að mæta, getur sá skrifað til aðfá nánari upplýsingartil: H HOSTA, Ch-1854 Leysin, sími 9041 /25 341814, H tlx: 456152. hhhhhmmhhhhhhhHHh Sýning á leikhúsmyndum Halldórs Péturs- sonar í Kristalsal Þjódleikhiissíns lýkur næstkomandi sunnudag 25. okt. Sýningin eropln aiia daga frá kl. 17—19. Ath. sýriing- in er sölusýning.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.