Morgunblaðið - 21.10.1987, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1987
Ný þingmál:
Rekstur fréttastofu
RÚV
Ingi Bjöm Albertsson (B.-Vl.)
hefur lagt fram fyrirspum til
menntamálaráðherra um rekstur
fréttstofu RÚV. Spyr Ingi Bjöm
hvort nauðsynlegt sé að Ríkisút-
varpið, sem rekur útvarpsstöð
með tveim rásum og eina sjón-
varpsstöð, haldi úti tveim frétta-
stofum. Einnig spyr Ingi Bjöm
hvað fréttaöflun frá erlendum
fréttastofnunum kosti og hver sé
kostnaðurinn af fréttamönnum er
starfi erlendis á þeim stöðum það-
an sem keyptar em fréttir, annað
hvort frá þarlendum fféttastofum
eða alþjóðlegum fréttastofum.
B-álma Borgarspítal-
ans
Svavar Gestsson (Abl.-Rvk.) og
Guðrún Helgadóttir (Abl.-Rvk.)
hafa lagt fram fyrirspum til heil-
brigðisráðherra um ýmis atriði er
varða B-álmu Borgarspítalans.
Milliþinganefnd um
staðgreiðslu skatta
ÓIi Þ. Guðbjartsson (B.-Sl.)
spjrr íjármálaráðherra hvers
vegna Samband íslenskra sam-
vinnufélaga var ekki gefínn
kostur á að tilnefna fulltrúa í
milliþinganefnd um staðgreiðslu
skatta og mál tengd henni.
Notkun farsíma
Guðrún Helgadóttir (Abl.-
Rvk.), ásamt fjómm öðmm
þingmönnum Alþýðubandalags-
ins, hefur lagt fram tillögu til
þingsályktunar um notkun síma í
bifreiðum. Lagt er til að Alþingi
álykti að fela ríkisstjóminni að
beita sér fyrir því að settar verði
almennar reglur um notkun
farsíma í ökutækjum hér á landi
og þær kynntar ökumönnum og
við ökukennslu.
Jarðhitaréttindi
Hjörleifur Guttormsson (Abl.-
Al.) og ijórir aðrir þingmenn
Alþýðubandalagsins hafa lagt
frumvarp til laga um jarðhitarétt-
indi. Hliðstætt frumvarp hefur
verið flutt á síðustu þingum af
þingmönnum Alþýðubandalags-
ins. í fmmvarpinu er lagt til að
lögfestar verði reglur um umráða-
rétt og hagnýtingarrétt jarðhita.
Utanríkisráð Islands
Lagt hefur verið fram stjómar-
frumvarp um breytingu á lögum
um Útflutningsráð íslands. í
breytingunni felst að Útflutn-
ingsráð heyri undir utanríkisráðu-
neytið í stað viðskiptaráðuneytis
í samræmi við samkomulag milli
stjómarflokkana um flutning ut-
anríkisviðskipta frá viðskipta-
ráðuneyti til utanríkisráðuneytis.
Kynferðisfræðsla
Kristín Halldórsdóttir hefur
lagt fram fyrirspum til heilbrigð-
isráðherra um framkvæmd þings-
ályktunar um fræðslu meðal
almennings um kynferðismál.
Pjöldauppsagnir á
Orkustofnun
Steingrímur J. Sigfússon
(Abl.-Ne) spyr iðnaðarráðherra
um „fjöldauppsagnir á Orkustofn-
un“. Meðal annars hveiju þær
sæti og hvort á döfinni séu frek-
ari aðgerðir af þessu tagi á
Orkustofnun eða öðmm stofnun-
um sem heyra undir iðnaðarráðu-
neytið.
MÞinCI
Frumvarp um
stjóm umhverfis-
mála fyrir áramót
MEÐAL þeirra mála er tekin
voru fyrir á fundi sameinaðs Al-
þingis í gær var fyrirspum
Hjörleifs Guttormssonar (Abl.-
Al.) til forsætisráðherra um
umhverfismál. f svari forsætis-
ráðherra kom meðal annars fram
að frumvarp um samræmingu
þessa málaflokks verður lagt
fram á Alþingi fyrir áramót.
Hjörleifur spurði hvemig ríkis-
stjómin hyggðist undirbúa fram-
kvæmd á þeirri stefnu sinni „að
sett verði almenn lög um umhverfis-
mál og samræming þeirra falin einu
ráðuneyti". Einnig spurði Hjörleifur
hvenær væri gert ráð fyrir að leggja
frumvarp um umhverfismál fyrir
Alþingi og hvaða ráðuneyti muni fá
það hlutverk að samræma stjóm
umhverfismála innan stjómkerfis-
ins.
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra, sagði að skipan þessara
mála í stjómkerfinu væri nú mjög
óljós og ætlunin að gera á því brag-
arbót. Sett yrðu almenn löer oer
samræming þeirra falin einu ráðu-
neyti. Nefnd hefði verið skipuð 3.
Þorsteinn Pálsson
september sl. er myndi undirbúa
frumvarp um samræmingu stjóm
umhverfismála. Sagði forsætisráð-
herra að frumvarp þetta yrði lagt
fram á Alþingi fyrir áramót. Ekki
hefði verið tekin ákvörðun um hvaða
ráðuneyti yrði falin stjóm þessara
mála, það væri nefndarinnar að
gera tillögu um það.
Utandagskrárumræður um Sláturhús Arnfirðinga:
Atta þingmenn vildu leyfa
slátrun með lagasetningu
MÁLEFNI Sláturfélags Arnfirð-
inga voru tekin til utandagskrár-
umræðu á Alþingi í gær að beiðni
Matthiasar Bjamasonar (S.-Vf.)
Voru allir þeir þingmenn er til
máls tóku sammála um að veita
ætti sláturhúsinu sláturleyfi en
landbúnaðarráðherra taldi sig
skorta lagaheimild til þess. Um-
ræðunum lyktaði á þann veg að
Eyjólfur Konráð Jónsson (S.-
Rvk.) kynnti lagafrumvarp þess
efnis að sláturhúsinu yrði leyft
að slátra á þessu ári. Það frum-
varp var svo lagt fram af átta
alþingismönnum úr öllum flokk-
um nema kvennalista.
Matthías Bjarnason (S.-Vf.) hóf
utandagskrámmræðuna. Sagði
hann Sláturfélag Amfírðinga hafa
starfað með ágætum öll þau ár sem
það hefði verið starfrækt. Er at-
hugasemdir hefðu komið fram fyrr
á þessu ári hefði þegar verið ráðist
í úrbætur en allt komið fyrir ekki.
Einnig hefði verið sett út á vatn
það er notað væri í sláturhúsinu en
talið eðlilegt að þetta sama vatn
væri notað í fiskvinnslu og til mann-
eldis. Sagði hann yfírdýralækni
hafa sýnt óbilgimi í þessu máli og
farið út fyrir valdssvið sitt.
Jón Helgason, landbúnaðarráð-
herra, sagði forsendu þess að
ráðuneytið gæti veitt sláturhúsinu
leyfí að dýralæknir gerði heilbrigð-
isúttekt á húsinu en til þessa hefði
engin fengist til þess verkefnis. Því
væri ekki heimild samkvæmt lögum
að veita húsinu sláturleyfi.
Sighvatur Björgvinsson (A.-
Vf.) sagði þetta mál meðal annars
snúast um uppgjör til bænda. Þeir
hefðu ávallt fengið skjótt og vel
greitt af Sláturhúsi Amfirðinga en
sömu sögu væri ekki hægt að segja
af þeim húsum sem þeim væri nú
vísað á. Sagði hann nokkra dýra-
lækna hafa gefíð sig fram til þess
að veita húsinu umsögn en þeim
hefði öllum snúist hugur á einni
nóttu. Taldi hann ástæður þess vera
annarlegar.
Karvel Pálmason (A.-Vf.) sagði
það vera öllum ljóst að þama væm
einkennilegir hlutir að gerast, einn
Jón Helgason landbúnaðarráðherra og Matthías Bjamason fyrsti
þingmaður Vestfirðinga vora meðal þeirra sem tóku þátt í umræðun-
um um Sláturhús Arnfirðinga.
Eyjólfur Konráð Jónsson sagði
að ef landbúnaðarráðherra teldi
sig skorta lagaheimild til þess
að veita Sláturhúsi Arnfírðinga
sláturleyfi væri auðvelt að bæta
úr því og kynnti iagafrumvarp
þess efnis.
(S.-Vf.)
einstaklingur í kerfinu væri að
stöðva þessa leyfisveitingu. Þetta
væri hefndarráðstöfun yfirdýra-
læknis á fólki í Amarfirði vegna
þess að það hefði ekki „dansað eft-
ir hans nótum" er grípa átti til
aðgerða vegna riðuveiki fyrir
nokkmm áram síðan.
Óli Þ. Guðbjartsson (B.-Sl.)
sagði að af þeim atriðum sem gerð-
ar hefðu verið athugasemdir við
ætti einungis eftir að lagfæra tvö.
Nú stæði á tregðunni í embættis-
kerfinu. Einungis þyrfti að senda
einn mann á staðinn til þess að
dæma hvort húsið væri í betra ásig-
komulagi en á síðasta ári.
Pétur Bjaraason (F.-Vf.) sagði
lítið vanta á í þessu máli. Amfirð-
ingar vildu ekki hefja slátmn fyrr
en leyfi fengist og skoraði hann á
landbúnaðarráðherra að beita sér
fyrir farsælli lausn á málinu.
Eyjólfur Konráð Jónsson (S.-
Rvk.) sagði það hafa verið síðsumar
1978 sem hann kynntist vinnu-
brögðum sem hann hefði haldið að
tíðkuðust ekki á íslandi. Þá hefðu
skagfirskir bændur átt í slag við
„SÍS-veldið“. Líkti hann þessu sam-
an við það sem væri að gerast á
Bíldudal og sagði að ofbeldi af þessu
tagi væri ekki hægt að líða - bænd-
ur ættu fullan rétt á að slátra sínum
kindum. Það ætti ekki að leyfa
mönnum að komast upp með að
bijóta á þennan hátt bæði lög og
siðferði. Sagði Eyjólfur Konráð að
mörg sláturhús sem væm verr búin
en það á Bíldudal hafa fengið slát-
urleyfi. Það hefði verið látið við-
gangast þar sem þau væm á vegum
SÍS.
Eggert Haukdal (S.-Sl.) spurði
hvort stóm risamir þoldu ekki sam-
keppni. Það lægi ekki fyrir annað
en að frá sláturhúsinu hefði komið
„góður matur“. Meðan svo væri
bæri að veita íslensku fólki sem
ynni hörðum höndum rétt til að lifa.
Júlíus Sólnes (B.-Rn.) sagði
byggð á þessu svæði síst mega við
ofríki valdsins í Reykjavík. Það að
enginn dýralæknir hefði fengist til
þess að fara á staðinn vekti upp
ýmsar gransemdir.
Albert Guðmundsson (B.-Rvk.)
sagði að í sjónvarpsviðtali við dýra-
lækni er hefði þetta mál með
höndum hefði hann svarað öllum
spumingum á þann veg að þetta
mál væri alfarið í höndum land-
búnaðarráðherra. Ráðherra segðist
hins vegar ekki geta tekið ákvörðun
þar sem hann skorti lagaheimild.
Sagði Albert ákaflega fátt vera í
lögum um landbúnaðarmál sem
gerði ráðherra kleyft að taka
ákvarðanir og minnti á samantekt
á þessum lögum er hann hefði látið
útbúa í fjármálaráðherratíð sinni
og dreift á Alþingi.
Matthías Bjaraason (S.-Vf.)
sagði menn oft spyija hver væri
munurinn á því að slátra nú og í
fyrra og væri lítið um svör. Taldi
hann ráðherra geta veitt slíkt leyfi.
Pálmi Jónsson fyrrverandi land-
búnaðarráðherra hefði á sínum tíma
gefið slíkt leyfi þvert ofan í vilja
yfirdýralæknis án þess að nokkur
véfengdi vald hans. Spurði Matthías
hvort landbúnaðarráðherra vildi
ekki frekar fara eftir samdóma áliti
þingmanna en „landbúnaðarmafí-
unnar".
í lok umræðnanna kvaddi Eyjólf-
ur Konráð Jónsson (S.-Rvk.) sér
hljóðs á ný. Sagði hann að land-
búnaðarráðherra teldi sig skorta
lagaheimild til þess að veita slátur-
leyfi og væri auðvelt að bæta úr
því. Kynnti hann fmmvarp er fæli
það í sér að Sláturhúsi Amfirðinga
yrði veitt leyfi til slátmnar og lagði
til að það yrði tekið til meðferðar
og samþykkt samdægurs.
Framvarpið var skömmu síðar
lagt fram og flytja það Matthías
Bjamason (S.-Vf.), Pálmi Jónsson
(S.-Nv.), Pétur Bjamason (F.-Vf.),
Albert Guðmundsson (B.-Rvk.),
Sighvatur Björgvinsson (A.-Vf.),
Hjörleifur Guttormsson (Abl.-Al.),
Óli Þ. Guðbjartsson (B.-Sl.) og
Eggert Haukdal (S.-Sl.). Það er
svohljóðandi: Sláturfélagi Amfírð-
inga, Bfldudal, er heimil slátmn í
sláturhúsi sínu 1987. Landbúnaðar-
ráðherra skipar hæfan mann til að
annast heilbrigðisskoðun og merk-
ingu á kjöti ef dýralæknir fæst
ekki til starfsins."
Fmmvarp þetta var ekki tekið
til afgreiðslu í gær en það er á
dagskrá fundar neðri deildar Al-
þingis í dag.