Morgunblaðið

Date
  • previous monthDecember 1987next month
    MoTuWeThFrSaSu
    30123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031123
    45678910

Morgunblaðið - 11.12.1987, Page 23

Morgunblaðið - 11.12.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987 23 Helstu þættir í þróun húsagerðar og heimila á (slandi, síðustu tuttugu árin, raktir og studdir ríkulega myndskreyttum dæmum og samræmdum grunnteikningum. Tímamótaverk um íslenskan arkitektúr. Pétur H. Ármannsson arkitekt er höfundur verksins. Ljósmyndir tóku Guðmundur Ingólfsson, Kristján Magnússon og Ragnar Th. Sigurðsson, allir í fremstu röð ÖOk ^ meðal íslenskra Ijósmyndara. ]goobok HEIMIU& Ymis skemmtiatriði í miðbænum á morgnn: Jólasveinar aka um á hestvagni Ný bílastæði á Völundarlóð tekin í notkun Jóhanna Álfheiður Steingríms- dóttir Bók af bökk- um Laxár ÚT ER komin hjá Almenna bóka- félaginu bókin Á bökkum Laxár eftir Jóhönnu Álfheiði Stein- grímsdóttur í Árnesi í Aðaldal. I kynningu útgefanda segir m.a.: „Jóhanna í Árnesi segir frá margs konar atburðum sem gerst hafa á bökkum þessarar frægu laxveiðiár, flestir á hennar dögum, en Jóhanna er borin og barnfædd á Nesi í Aðal- dal. Og hún segir frá mannlífinu á þessum slóðum og baráttunni við hina fögru á, sem svo margir þekkja og unna, en getur stundum orðið erfið viðfangs, ekki síst að vetrin- um. Efni bókarinanr er afar íjöl- breytilegt, skemmtilegar laxveiði- sögur, fyrirburðir, slysfarir, þættir um heimamenn á bökkum Laxár, svo sem Steingrím í Nesi, föður Jóhönnu, Huldu skáldkonu, Lissý á Halldórsstöðum, Egil á Húsavík o.s.frv. Og um frásagnarlistina þarf ekki að spyrja, Jóhanna í Árnesi kann hana og hefur sannað það áður í sínum fyrri bókum. Á bökkum Laxár er 168 bls. að stærð og prentuð í Prentsmiðju Árna Valdemarssonar. frá Hlemmi í hestvagni, sem ekur niður Laugaveg. Einnig verða jóla- sveinar á ferð um miðbæinn með góðgæti handa bömum. Kl. 14 hefst dagskrá á vegum Steina hf., hljómsveitin Grafík og Bjartmar Guðlaugsson koma fram, og verð- ur Bjartmari afhent gullplata. Kl. 15 mun Lúðrasveit verka- lýðsins leika jólalög á Hlemmi, og mun hún síðan leika * á ýmsum stöðum fram eftir degi. Kl. 16. leikur Hornaflokkur Odds Bjöms- sonar fyrir framan verslunina Pennann í Austurstræti, og laust eftir kl. 16 syngur Skagfirska Söngsveitin fyrir vegfarendur í Austurstræti. Björgunarsveitin In- gólfur verður með kynningu á starfsemi sinni á Lækjartorgi og fyrir framan Landsbankann, Laugavegi 77. Félagar sveitarinn- ar munu selja heitt kakó, pipar- kökur og kerti. Kl. 7.30 verða þeir síðan með flugeldasýningu á Arnarhóli. Ný bílastæði, á svokallaðri Völ- undarlóð, verða tekin í notkun í miðbænum á morgun, en einnig vilja samtökin um gamla mið- bæinn beina þeim tilmælum til starfsfólks verslana að eftirláta viðskiptavinunum þau stæði sem næst eru miðbænum, og nota held- ur þau stæði sem lengra em frá. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Frá verðlaunaafhendingunni. Á myndinni eru talið frá vinstri: Fríða og Sigrún Ammendrup, Júlía Björg- vinsdóttir, Steindór Emil Sigurðsson og Eygló Guðmundsdóttir forlagsstjóri. Isafold gefur út bók með verðlaunauppskríftum bama ÍSAFOLD hefur gefið út bókina Ánægjustundir f eldhúsinu, mat- reiðslubók fyrir börn, en hún er afrakstur uppskriftasamkeppni meðal barna í tilefni af 110 ára afmæli ísafoldarprentsmiðju. Verðlaun í samkeppninni voru afhent á miðvikudag. Uppskriftimar í bókinni, sem eru 110 talsins, eru merktar nöfnum bamanna sem sendu þær. Bókin skiptist í 5 kafla sem nefnast Drykk- ir, Kaldir réttir og grænmetisréttir, Heitir réttir, Ávaxtasalöt og græn- metisréttir og Bakstur og sælgæti. Auk uppskriftanna eru í bókinni ýmis heilræði, leiðbeiningar um mál og vog, öryggi og slysahættu, holl- ustu og heilbrigði, nesti og garðveisl- ur. Hússtjómarkennaramir Anna Gísladóttir og Bryndís Steinþórs- dóttir höfðu umsjón með útgáfunni og Vilhjálmur G. Vilhjálmsson mynd- skreytti bókina sem öll er litprentuð. Aðalverðlaun fyrir uppskriftir í bókinni fengu systumar Sigrún og Fríða Ammendrup en auk þess vom 5 viðurkenningar veittar, ein fyrir hvem kafla. Þær hlutu Ásbjörg Val- garðsdóttir, Ingibjörg Sveinsdóttir, Júlía Björgvinsdóttir, Steindór Emil Sigurðsson og Tjörvi Jónsson. SAMTÖKIN um gamla mið- bæinn gangast fyrir ýmsum uppákomum í miðbænum á morgun, laugardag, en þá verða verslanir opnar til kl. 18. Búist er við miklum fjölda fólks i miðbæinn i góða veðrinu, að því er segir í fréttatilkynningu frá samtökunum. Hljómsveitin Grafík, Bjartmar Guðlaugsson, jólasveinar og flugeldasýning eru meðal þeirra skemmtiat- riða sem vegfarendum í miðbænum er boðið upp á. Dagskráin verður sem hér seg- ir: Kl. 14 leggja jólasveinar af stað Tolli sýnir á Holiday Inn ÞORLÁKUR Kristinsson, Tolli, sýnir nú málverk í Gallerí Sig- túni á Holiday Inn. Sýningin stendur til áramóta, og er opin frá 18-22 á virkum dögum og frá 14-22 um helgar. Þetta er tólfta einkasýning Tolla, en hann hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum hérlendis og erlendis. Nú er boðið upp á sérstakt jóla- hlaðborð með dönskum hætti í hádeginu og á kvöldin á Holiday Inn, og er hægt að fá jólaglögg með. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tolli ásamt nokkrum verka sinna á Holiday Inn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue: 282. tölublað (11.12.1987)
https://timarit.is/issue/121537

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

282. tölublað (11.12.1987)

Actions: